mánudagur, febrúar 28, 2005

Íslandsvinur með fyrirlestur.

Sat fyrirlestur í dag um Evrópusambandið og þjóðernishyggju í Danmörku. Síðan voru fyrirspurnir til fyrirlesarans. Sem er prófessor í Evrópufræðum. Hann var spurður um hátterni dönsku þjóðarinnar og hvað þeir gerðu til að halda í sérkenni sín innan Evrópusambandsins. Hann sagði þá svolítið merkilegt. "Tja við danirnir erum nú ekki í svo föstum skorðum eins og Ísland t.d varðandi tungumálið". Og hann hélt áfram "en á Íslandi er það skylda að öll erlend orð sem notuð eru fá íslenska þýðingu".

Og prófessorinn hélt áfram og það var ekki laust við að ég færi að hlusta á hann með báðum eyrum, því hann var afspyrnu lélegur fyrirlesari. En hann hélt áfram...."já ég get sagt ykkur það að þegar CD diskarnir komu á markað þá fundu íslendingarnir upp orð sem er svona langt". Síðan rétti hann út hendurnar og lét í ljós að orðið fyrir CD væri um tveir metrar á lengd. En hann sagði að íslendingar hefðu nú gefist uppá að nota orðið því það væri svo langt og það væri hægt að kaupa bara CD á Íslandi. Orðið sem hann hafði í huga var Geisladiskur. Ekki sagðist hann vita hvað orð þeir notuðu yfir DVD.

Hann hélt áfram með dæmin og nú kom það merkilegasta að mér fannst. Hann sagði "já íslendingarnir þeir fundu nýtt orð yfir Computer, og það get ég sagt ykkur það er sko ekkert skylt orðinu Computer. Orðið er ekki Tromkúter, eða eitthvað í þá veru. Nei vitiði hvað. Á Íslandi er það þannig að það er svona spákona, sem sér ýmsa hluti. Já hún notar kristalskúlu og þar skýrast allir hlutir framtíðarinnar. Konan les útúr þessari kúlu upplýsingar og þaðan kom nafnið á Computer. Málið er nefnilega að konan er kölluð Vöölva og orðið Tölva er tilkomið vegna þessa.

Prófessorinn, íslandsvinurinn bar þessi orð framm á íslensku og sagði "Túúlfa" og "Vúlffa" Þetta þótti mér merkileg kenning, og þetta hljómar nú bara nokkuð trúverðugt verð ég segja. En hvort þetta hafi nú verið svona er önnur saga....en ekki fer Prófessor í Háskólaborginni Árósum í Danmörku að ljúga þessu...fjandinn hafi það....


Kristinn Vúlfi.

sunnudagur, febrúar 27, 2005

Fyndin börn.

Ég man hvað ég var hrikalega fyndinn þegar ég var lítill. Já ég var bara allveg rosalega skemmtilegur. Og ég man hvað mér fannst ég sjálfur vera fyndinn alla daga, alla mánuði, alltaf. Ég er ennþá fyndinn en ekki eins fyndinn og áður....Axel Orra finnst hann vera hrikalega fyndinn og hann minnir um margt á mömmu sína í þeim efnum. Axel Orri gerir stundum eitthvað rugl, einhverja vitleysu við matarborðið og hlær mest sjálfur. Ég veit það ekki, en hann er bara ekki næstum eins fyndin og ég var.

Axel Orri vaknaði fyrstur í morgunn, kom uppí til foreldra sinna. Faðir hans sagði því við drenginn "já komdu nú hérna og smelltu á hann pabba þinn einum", áður en Axel Orri svaraði skaut mamma hans inní "Já gefðu honum pabba þínum nú einn koss, ég er búinn að fá þúsund kossa í morgunn og mörg knús". Axel Orri svaraði "Get þa ekki, þeir eru búnir".


Við kvöldmatarborðið vorum við að tala um kertastjakka sem Dagmar á, og fékk á sínum tíma að gjöf. Kertastjakinn minnir um margt og já bara líkist drullusokki. Og nú er mikilvægt að þú lesandi góður vitir hvað Drullusokkur er. En Anna Marín sagði einmitt "jáááá amma jóna er með svona drullusokk" og eitthvað hlógum við að þessu en Axel Orri virtist ekki allveg ná umræðunni en vildi vera með og sagði "já heyrðu Amma Björg er líka drullusokkur" Við hváðum nú af þessu hjá honum svo hann hélt áfram að útskýra "já svona drullusokkur sem maður klæðir sig í á fótinum".


Kristinn Óstíflaður (eða bara pípandi).

mánudagur, febrúar 21, 2005

21.febrúar

Jón Baldvin á afmæli í dag og ég sendi honum hér mínar, bestu afmælis og heillaóskir.
Mér hefur alltaf fundist Jón Baldvin ákaflega heillandi og skemmtilegur maður. Og aldrei farið leynt með dálæti mitt á honum.

Um helgina fengum við okkur snakk meðan við horfðum á sjónvarpið. Eitthvað hafði þetta snakk nú beðið lengi í hillunni í búðinni því það bragðaðist ekki vel. Dagmar sagði því "þetta er nú ekki í lagi, þetta er bara gamalt snakk". Axel Orri svaraði til baka "já, við skulum bara gefa Ömmu Línu það"

Hvaða snakk eða kex til heyrir þessum degi og fellur í minn hlut kemur í ljós.


Kristinn Baldvin.

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Derrik og hitaveitan.

Það er ekkert grín að nota of mikið heitt vatn til kyndingar hér í Danmörku. Ónei maður skal nú heldur betur fylgjast með neyslunni svo aurinn fari ekki úr böndunum. Ég hef nú kallað eftir sérfræðiaðstoð frá Hitaveitunni til að gefa góð ráð. Hann kom og kíkti á mælinn. "jú kallinn þetta er allt eins og það á að vera, þetta er eðlilegur hiti og allt í orden" og svo sagði hann "Heyrðu það lekur hor úr nefinu á þér, viltu ekki snýta þér og þú virðist skjálfa...." nei hann sagði reyndar ekki þessa seinni setningu en ég hugsaði hana....


Nú þegar næturhiti himinsins hvolfist yfir menn og málleysingja hér í Danmörku og fer niður í 15 gráðu frost með tilheyrandi raka, þá er ekki að spyrja aðþví.. Það er næsta víst að með stækkunargleri finni maður dindilinn til að pissa og ísmolarnir sem koma út...tja það er bara eðlilegt. Morgunpiss í klakaböndum.

Nú og hvað gerir maður þá. Ég fór vitanlega að ræða við Derrik um málið. Nágranna okkar sem býr í eins húsi, og notar sömu kyndingu. Ég bankaði og kom innum gættina, fann strax að ég svitnaði, hitnaði, fann svima og var heitt. Tók af mér hanskana, trefilinn, eyrnaskjólinn. Og sagði "Derrik/Henrikk hvað notið þið mikið svona í kyndinguna hjá ykkur, hvað er svona normal rennsli á vatninu og hitinn ? "

Þá sagði Derrik, "hvað við erum nú svosem ekki mikið að skoða það en þú mátt kíkja á mælinn". Það gerði ég og var fljótur að sjá að Derrik kyndir ekki bara eins og hann sé kominn með fyrsta barn í hús, ó nei. Hann kyndir eins og áttrætt gamalmenni á dvalarheimili sem er kulsækið og ávalt með lugnaþembu, astma og kvef. Eðlilegt rennsli vatnsins á að vera kringum 35-40 lítrar á klukkutíma...Derrik er með 121 líter á klukkutíma. Eðlilegur hiti vatnsins þegar það fer útúr húsinu á að vera í kringum 30 gráður. Derrik skilar vatninu út í kringum 60 gráðurnar. Ofnarnir hjá manninum eru gjörsamlega í botni.

"Nei, nei, nei,nei Derrik, slökktu, slökktu þetta gengur ekki. Þú verður að taka bankalán til að borga hitaveitureikninginn". Derrik var sjokkeraður og vissi ekki hvað hann átti að gera, hann settist niður í bambusstólinn sinn og andvarpaði. "Hvað ertu að segja Kristjanin er þetta virkilega svona mikið hjá mér?, ég ræði við hitaveituna á morgunn"

Hitaveitann fékk áfall, þegar þeir kíktu á mælinn, sögðu honum að þetta væri ekki eðlilegt. Hann skyldi skrúfa fyrir. Seinnipartinn í dag kom hann hingað yfir, skjálfandi og ég er ekki frá því að hann hafi haft hor. "Kristjanin þetta var allveg rétt hjá þér, við notum alltof mikið vatn ég fæ auka reikningin, en við erum að frjósa núna"

Derrik við vorum frosin hér fyrstu mánuðina, þinn tími er kominn. Þolið okkar er langt undir því sem dönsk viðmið segja. Við erum eskimóar. Megi þér hitna í framtíðinni.

Kristinn Klaki.

föstudagur, febrúar 11, 2005

Skólalíf og Tyrkirnir.

Anna Marín og móðir hennar fóru á bekkjarkvöld í skólanum hjá henni í vikunni. Þar hélt hún fyrirlestur um Noreg. Verkefni í skólanum þar sem kynna átti öll norðurlöndin. Hún fékk Noreg og kynnti þar þjóðbúning norskra kvenna. En hún hafði..nei reyndar ekki...það var aðalega móðir hennar sem klippti út dúkku og útbjó þennan kjól. En Anna Marín talaði síðan fyrir framan bekkinn og foreldrana og kynnti málið. Það gekk vel. Við Axel Orri vorum heima þar sem hann var slappur.

Axel Orri fór síðan í leikskólann seinnipart vikunnar þar sem ekki þýðir að hanga heima alla daga....faðir hans er jú kominn í nám og það þarf að mæta sko....

Og í vikunni fór ég í alla þá tíma sem mér er ætlað að taka þessa önn. Já það rifjaðist nú upp fyrir manni gamlir lestrartaktar...en kvöldin í vikunni fóru einmitt í lestur um Lýðræði og undirbúning á fyrirlestri sem ég á að halda ásamt öðrum nemenda nk. þriðjudag. Jebb fyrsta verkefnið komið af stað. Annan dag fór ég síðan og hitti leshópinn sem ég er í að lesa um dönsk stjórnmál. Dagana áður kepptist ég við að lesa efnið og hafa það á hreinu. Hollendingurinn í hópnum og Tyrkinn voru reyndar ekki búinn að lesa efnið, og fjórði Tyrkinn ákvað að skella sér til Amsterdam og hitta vini sína...Þetta var því frekar slappt og á endanum tók minn maður af skarið og sagði..."viljið þið nú ekki bara fara heim og kíkja á þetta og við getum síðan þá hist í næstu viku". Jú jú það fannst þeim voðalega fínt.....það er bara að maður haldi þessum dampi út önninna...það kemur víst í ljós...

Ég var spurður aðþví í vikunni hvað ég ætti gömul börn. Málið var að í lok eins fyrirlestursins ákvað prófessorinn að bjóða hópnum í kaffi. Sátu nú allir að spjalli. Fjórar stelpur frá Tyrklandi sátu við borðið. Ein sagði við mig á ensku "Kannast þú við Nú bínó ?" Neiiii...ég sagðist nú ekki allveeeg áttaa mig, nei því miður". "Núúú" sagði hún það hlýtur að vera. Ég bað hana þá að skrifa þetta nafn niður ef hún kynni það....hún hélt það nú og skrifaði "Núúí Albínói" Jú sagðist nú kannast við þá mynd. Já Tyrkirnir höfðu þá nýlega séð þá ræmu og vildu fræðast um íslenskar myndir...ég snéri mér útúr því og nennti ekki að ræða málið....

...en ég hefði kannski betur haldið mig við bíóið því þá kom spurning "Hvað fluttir þú hingað með fjölskylduna..núúú og hvað áttu gamalt barn ? " Barn sagði ég, ég á börn ég á nefnilega tvö..." haaaaaa, hvað segir þú átttuuuuuu tvöööö böööörn ?" Sögðu Tyrkirnir. Og sögðu þetta í raun óþægilega hátt, það fór því ekki frammhjá neinum að Tyrkirnir voru frekar hisssa. "Já já", einmitt sagði ég. "Hvað eru þau gömul" kom þá. Ég svarði bara "tja þau eru Tíu og þriggja". Skyndilega sat ég við borðið það sem bara svona óp heyrðust, já næstum öskur. Forviða yfir svarinu. Þessu trúðu Tyrkirnir ekki. Og bara stóðu þarna gapandi með gólandi gúlann... Þá brást minn maður við og breytti bara svarinu, því ég var sannfærður að ég hefði sagt einhverja bölvaða þvælu...ég breytti því svarinu og sagði..." nei nei þau eru bara átta og þriggja" Næsta spurning Tyrkjanna var því "hvað ert þú eiginlega gamall ?" Ég svaraði því og skyndilega fóru Tyrkirnir að reikna á puttunum og sögðu..." ókey það getur passað"....ég þakkaði fljótlega prófessornum fyrir kaffið og dreif mig út.

Ég sjálfur taldi á puttunum og tánum þegar ég kom útí bil. Og fann út réttann aldur á þeim börnum sem ég á.


Kristinn Achmed Turkís.

miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Dapurlegir Danir.

Ég varð nú bara að bæta við pistil dagsins...hér þegar klukkan er að verða hálfeitt á kosningakvöldi. Já maður sofnar nú ekki strax og sefur værum svefni. Það er óvíst hvað maður fær að vera lengi hér í Danmörku. Innflytjendur og útlendingar ja það er nú óþjóðalýður sem ólíklegt er að verði lengi hér um slóðir. Skattahækkanir og einkavæðing. Ja þeir fá það nú óþvegið danirnir...þetta hafa þeir kosið yfir sig. Og verði þeim að góðu.

Socialdemókratarnir...dapurlegt var það, stórtap. Formaðurinn Mogens segir af sér og það voru dramatískar ræður fluttar í kvöld. Já sviptingar hér ljótt er það.

Ég reyni bara að flýta náminu....eða þannig...

Kristinn Útlendingaskratti.

þriðjudagur, febrúar 08, 2005

Tungumálavandamál og Eyrnaslapi.

Skóli í dag, Lýðræði í Skandinavíu. Og það hjá sjálfum Palla Sveinssyni, prófessor. Síðar í dag þegar ég var að sækja Dagmar var hann í viðtali í Ríkisútvarpinu (DR) vegna kosninganna. Já það er mikið að gera hjá prófessorunum í stjórnmálafræðinni þessa dagana vegna kosninganna hér í dag. Palli var semsagt að tala um þátttökuna og möguleg úrslit. Í hádegisfréttunum voru síðan aðrir prófessorar í stjórnmálafræðinni í deildinni minni í viðtali.....já það er skemmtilegt.

Nám og samtöl við aðra erlenda stúdenta. Samskiptin verða liprari með hverju samtalinu, ekki bara að maður sjálfur sé að komast í gang í enskunni heldur líka að átta sig á ensku með tyrkneskum, Hollenskum, Þýskum og Barselónskum hreim. Já það eru fjölbreytilegar útgáfurnar. Í dag ákvað ég bara að tala örlítið hægar enskuna og hugsa um hvert orð...svo þetta yrði ekki Enska með dönskum slettum. Það tókst næstum. Þegar við komum hér fyrir ári síðan þá ákváðum við strax að gefa dönunum aldrei tækifæri á að tala við okkur ensku. Heldur skildum við segja "ja ja, nemlig" sem þýðir "Já, já akkurat/einmitt" við öllu því sem sagt væri við okkur, án þess að skilja nokkurn skapaðan hlut. Þetta varð síðan til þess að við komumst miklu fyrr inní málið en ella. Við höfum því ekki beitt fyrir okkur enskunni hér þann tíma sem við höfum búið á svæðinu. Nú þarf því að rifja aðeins upp...engilsaxneska hreiminn sem maður bjó og býr yfir sem er svo sjarmerandi.

Dagmar fékk einn af fasta kúnnum sínum í stólinn í dag. Veit ekki hvað hann heitir en kýs að kalla hann Jens. Málið með Jens er að það má alls ekki, og þá meinum við ALLS EKKI snerta eyrun á honum. Honum finnst það svo obbboslega óþægilegt, hann bara þolir það ekki. Þótt Jens sé að verða fimmtugur þá er hann þó nokkuð á eftir sínum jafnöldrum. Í dag var hann klipptur og þegar Dagmar hafði komist fimlega hjá því að snerta á honum eyrun, bæði með skærum og puttum. Var klippingin næstum búinn....nema þá rekur hún baugfingur hægri handar í neðan verðan eyrnasnepil Jens.. Segir þá Jens svo ómar um alla hárgreiðslustofofuna: "vóóóó óóóóó, eyrað...eyrað. Passa eyrað. Ekki fikta í eyranu" Fipaðist frísörin nú ekki við þetta en hélt áfram að klippa. Fékk nú Jens á sjá árangurinn, og seig nú kappinn heldur betur niður í stólnum og síðan heyrðist í Jens: "ohhhooooo, ooooooooo, hummmmmmm, ooooooo of mikið klippt hjá eyranu, ooooo" "Nei, nei þetta er voða fínt" sagði Dagmar og brosti sínu heillandi sættuþigbaraviðþettabrosi. Jens aftur: "oooo, hooooo, of mikið, ooooooo" Þá segir gæslukona Jens "svona, svona Jens minn, þú ert voðalega flottur, þetta vex nú bara aftur við eyrað á þér. Ofsalega ertu fínn Jens"

Vandamálið var að augljóslega var Jens hrikalega fúll með klippinguna þarna við eyrað. Frisörin hafði klippt of mikið fyrir peninginn, og nú var háríð farið. Tækni frísörsins við þessar aðstæður er og urðu eftirfarandi. Hún sagði bara: "Jens, þú mátt nú ekki vera fúll við mig, þú ert hrikalega flottur maður" þetta sagði frisörin með smeðjulegum tón. Uppfull af þjónustulund og með aura-glampa í augun. Og það virkaði. Jens "eyra" rauk þegar af stað tók utan um frísörin og faðmaði. Sagðist vera mjög ánægður með klippinguna og þakkaði fyrir sig. Gæslukona Jens borgaði síðan og saman hélt hún og Jens á vistheimilið sem Jens býr á hér rétt við Skanderborg.


Kristinn Enski.

laugardagur, febrúar 05, 2005

Aarhus Universitet.

Fékk í dag formlegt bréf frá skólanum. "Þú ert hér með innritaður í kandidatsnám í stjórnmálafræði". Já ég var nú búinn að fá vísbendingar um að þetta yrði nú samþykkt það er umsókn mín. En maður veit jú aldrei. Það er sérstök tilfinning að vera byrjaður aftur í skóla. Þetta er í raun óskrifað blað og maður veit í raun ekkert hvernig fer. Það eru þó tvö bréf sem maður bíður eftir. Bréfið sem ég fékk í dag um að nú væri ég innritaður og síðan hitt bréfið sem ég bíð eftir, þú ert útskrifaður. Það kemur vonandi síðar.

Foreldraviðtal í vikulokin á leikskólanum. Já fengum umsögn um unga íslendinginn Axel Orra. Hann vill fara sínu fram, vinnur svona stundum á sínum hraða. Flýtir sér ekki að borða, situr við allann tímann. En vill hugsa málin. Segir hinum krökkunum þegar þau biðja hann að leika. "æi nei ég nenni því ekki núna". Hann getur leikið við hvern sem honum sýnist. Honum er heilsað af hinum krökkunum og kvaddur. Það hópaðist um hann liðið þegar hann kom frá Íslandi, en hann nennti víst ekki að leika við alla. Þegar hann síðan útskýrir eitthvað fyrir gæslufólkinu, þá hættir hann ekki fyrr en þau skilja hann. Hann gefur sig aldrei ef þau skilja hann ekki í fyrstu atrenu. Ef tungumálið flækist fyrir honum eða vantar orð. Fer hann aðra leið og kemur málinu í gegn.

Í upphafi viðtalsins var hann vinsamlegast beðinn um að vera úti, forstöðukonan sagði við okkur að það væri ekkert gott að hann hlustaði á allt sem hún segði um hann. Hann skildi jú allt sem hún segði....hann var því rekinn út á meðan.

Helgin er hafin, hér er kvef. Axel Orri hóstar og hnerrar á víxl. Og maður verður að ská skjóta sér til hliðar ætli maður ekki að verða fyrir frussinu. Hann náði þó bæði móður sinni og föður í morgunknúsinu....þar sem komu tveir hnerrar, einn hósti og þrjú fruss....ekki gott. Anna Marín er komin á þann aldur að samhæfingin er fullkomin. Þegar hún hnerrar, hóstar, frussar...þá er hendinni brugðið fyrir. Það er af sem áður var. Dagmar í vinnu í dag, hóstalaus ennþá.....

Andleg íhugun og slökun, fyrsta heila skólavikan framundan, ný vinnuvika. Öskudagurinn í öllu sínu veldi, búningar og söngur.

Kristinn Horaði.

miðvikudagur, febrúar 02, 2005

Fyrsti skóladagurinn.

Ég vaknaði í morgunn með mikinn hjartslátt. Já það ólgaði í mér blóðið og ég var rjóður í framan. Dreymdi að ég hefði hitt skólastjórann sem hefði sagt mér til syndanna. "Lærðu heima drengur og snýttu þér svo, girrtu þig" Já eða ég man þetta nú ekki allveg. Fyrsti tíminn var í Evrópufræðum, Evrópusambandið og allt sem því fylgir. Ég fór í skólafötin mín og tók gömlu skjalatöskuna mína sem nú er orðin skólataska. Dagmar tók mynd af mér eins og Önnu Marín þegar hún byrjaði í sex ára bekk. Ég stóð stoltur á myndinni með fiðring í maganum. Hvernig yrði mér tekið ? Hvar á ég að sitja ? Skilur einhver mig ? Verð ég aleinn, alltaf ?

Ég ók af stað á Ljóninu eftir hraðbrautinni og ég fann þegar ég nálgaðist borgina að ég var að hverfa til upprunans. Litli businn, litli nemandinn, skælandi með hor. Ég vældi þó ekkert í bílnum. Það er jú fátt pínlegra en mæta í háskólann sinn með grátbólgin augu og hor. Brattur með skólatöskuna í annarri og og netisboxið mitt í hinni.

Á seðlinum sem ég hafði fengið stóð "Bygging 325" síðan stóð "1.40" Ég var búinn að finna bygginguna á kortinu áður en ég fór af stað og fann hana því auðveldlega. Lagði skammt frá og fékk þá tilfinningu strax. "hér er ég, einn af ykkur" innan um alla háskólastúdentanna sem ýmist þrömmuðu áfram vegin eða hjóluðu. Einn af þeim 22 þúsund nemendum sem læra við Aarhus Háskólann. Nemandi númer 22.001 það er ég. Ég labbaði inn í byggingu 325. ´

Það gekk vel, klukkan var að verða. Ég kom inná fyrstu hæðina, ekkert fólk, enginn kennari, ekki neitt. Í fáti sá ég engann, eina sem ég sá var rauður hnappur ef það yrði eldsvoði, neyðarhnappur. Ég ýtti ekki. Nú fann ég svitann koma á bakinu. Hvar í fjandanum er stofann ? Ég fór að ganga rösklega, anda örar. Ætlaði ég að koma of seint fyrsta daginn, fyrsta tímann, fyrsta sinn. Ég bölvaði. Fann stofur sem allar voru tómar. Í dauðans ofboði hljóp ég á skrifstofuna og spurði til vegar. Hvar er stofan ? fékk fín svör rataði rétta leið. Klukkan orðinn. Ég skammaðist mín fyrir að leggja ekki fyrr af stað. Ég hljóp síðustu metrana...kom að stofunni. (Textinn 1.40 þýðir 1.hæð stofa 40). Ég kom, ég sá stólinn minn, ætlaði inn í stofuna, enginn. Aleinn. Miði á töflunni. "Kennsla fellur niður í dag vegna veikinda." Ég fór heim með skólatöskuna og nestið. Kannski er tími á morgunn.


Kristinn Busi.

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Salsa, sólskin og skólinn.

Jæja kominn heim sveittur eftir salsakvöldsins. Já tíminn gekk bara vel. Við vildum jú ekki byrja í byrjendahóp svo við skráðum okkur í framhaldshóp....já jú jú það vantar nú kannski eitthvað örlítið uppá en hvaaa...við æfum okkur nú öllum stundum heima og heima. Telja í 1, 2og3. Hraðinn er mikill og skemmtuninn umtalsverð. Anna Marín hefur ráðið sig í vinnu á meðan danstímunum stendur og stefnir held ég einna helst á Pleisteisjón með karókí.

Annars er það skóladagur á morgunn hjá Ritstjóranum, það verður mikil breyting og ekki laust við að maður sé kominn með fiðring í magann. Já það er langt síðan setið var á skólabekk en það gersit á ný á morgunn.

Helgin var róleg hjá okkur fjölskyldunni. Fengum hinsvegar góða gesti en frænka hennar Dagmar, hún Sigrún kom með fjölskyldu sína hér í miðdagsmorgunnkaffi. Þau voru á leið heim eftir helgarferð til Aarhus. Það var mjög skemmtilegt og fórum við með hefbundinn kynningarpistil um húsið og nágrannanna.

Kosnignarnar nálgast hér í Danmörku, og það eru kappræður hér í sjónvarpinu einmitt núna. En það er jú annað landslag hér en á Íslandi. Það er spennandi að fylgjast með þessu þótt að kratarnir standi nú ekki nógu vel um sinn....en þeir munu ná sér á strik áður en lokað verður fyrir kjörstaðina. Annars kom frétt í sjónvarpinu um fystu vorblóminn sem voru að gægjast upp. Glampandi sól í dag og milt veður.

Annars snýst umræðan nú um búningana....öskudagurinn nálgast sem óðfluga, drengurinn hefur ákveðið að fyrsti búningurinn hans verði Spædermann. En Anna Marín hallast aðþví að vera Andrés Önd. Ég hallast aðþví að vera ostur og Dagmar stefnir á að verða hártoppur eða kolla.


Kristinn nemandi.

Counters
Web Site Counter