miðvikudagur, september 29, 2004

Árshátíð hjá Bifo - fyrsti hluti.

Já það fór nú aldrei svo að maður færi ekki á árshátíð hjá gleraugnaliðinu. Maður lifandi, hingað komu útlendingarnir Mosdals fjölskyldan frá Kaupmannahöfn og gættu hús og barna. Þetta gerðist allt sl. laugardag. Dagmar var að vinna til hádegis tók eina brúðargreiðslu og förðun eins og ég veit ekki hvað. Síðan keyrði ég Marlene og Morten vinnufélagann ásamt okkur á lestarstöðina þar sem Bífó rútan beið. Heimir tók síðan bílinn heim og Dagmar og ég fórum um borð í rútuna. Já guð minn almáttugur þegar komið var í rútuna. Já þetta var enginn venjuleg rúta...þetta var langferðabíll. Rútan var af þeirri stærð sem Teitur Jónasson hefur til þórsmerkurferða. Já 45 sæta rúta....en það voru enginn 45 sæti ó nei. 20 leðurstólar voru í þessari rútu. Sætaskipan eins og í einkaþotu. Ví Æ Pí hét rútan. Já það var ekkert minna. Mér fannst ég vera orðin eins og Mikk Djagger á tónleikaferðalagi með Rolling Stones...svo flott var þetta.

Dökkur viður í allri rútunni borð milli sæta, barinn opin og klósettið pólerað með gulláferð. Flottari rútu höfum við aldrei komið í. Ferðin var því miður aðeins klukkutími og á þeim klukkutíma drukkum við einn kaldann í flösku....eða tvo.

Nú síðan komum við til Vejle og þar var farið með töskurnar inná hótel og síðan var arkað í bóling (hér er ekki átt við Bólið heldur Bowling/keilu) þar áttum við draga spil því tveir og tveir áttu að spila saman. Var nú stokkurinn settur á borðið og drógum við spil hvert á fætur öðru. Dagmar dróg spil og ég dróg síðan spil þegar ég hafði farið á klósettið....viti menn..við drógum sama spilið og áttum að vera saman í liði. díseskræst..sambúð uppá 13 ár og maður gat ekki einu sinni fengið að spila með einhverjum öðrum af þessum 40 manna hópi en með henni, Dagmar. Því var reddað og ég skipti við annan síðan spiluðu sex saman á hverri braut. Mín braut var síðan með hæsta skorið og fögnuðum við ógurlega.

Og var maður í sigurvímu...því verðlaunaafhendingin var planlögð á næsta bar. Fórum við síðan þangað og pantaði hver og einn fyrir sig...á reikning Gleraugnaglámsins. Nú kom að verðlaunaafhendingu og var kallað upp þau spil sem unnu...sé ég ekki hvar liðsfélagi minn stendur upp og gengur að verðlauna borðinu. Þaut ég því af stað og tók undir hendur þeirra sem beggja sem þá voru komin til að taka við verðlaunum, lyfti þeim upp og galaði stundar hátt "We are the champions, we are the champions" og segi " það vantar einn, það vantar einn"...jú vegna þess að við vorum sex saman á brautinni. Okkar braut hafði hæðsta skor. Lyfti ég nú höndum og hneigði mig........hvur þremillinn.....kallar nú Dagmar til mín og segir "Kristinn minn, viltu setjast, viltu setjast NÚNA" ég held áfram að fagna og segi aftur "Hvar er sá sem var með okkur" þá heyrist í Dagmar...."kristinn komdu, þú varst ekki að vinna neitt, sestu og sestu núna". Reyndi ég með tæknilegum leikaraskap að snúa þessu uppí grín...og segja bara tja ....erum við ekki öll sigurvegarar eða eitthvað í þá áttina. Ég hafði gleymt því að tveir og tveir voru saman í liði en ekki þeir sex sem spiluðu á brautinni. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég var sestur og sat undir fyrirlestri sambýliskonunnar í hneykslunartón og það hefði ekkert, það hefði nákvæmlega ekkert að gera með það hvað brautinn hefði skorað hátt. Þessi tvö sem hefðu verið uppá sviðinu hefðu unnið með hæðsta persónulega skor..."en ekki þú. ekki þú Kristinn litli"
Ég fékk mér annan sopa af bjórnum sem ég hafði pantað.


Kristinn Sigurvegari.

föstudagur, september 24, 2004

Jarðarför hjá Svend.

Fór í dag við útförina hjá Svend. Nágranna okkar. Það var svolítið sérstakt allt saman. Dagmar komst ekki þar sem það var svo mikið að gera í vinnunni í dag. Ég fór því sem fulltrúi okkar. Það mættu þó nokkuð margir nágrannar okkar hér í Rosenkjærvej, en í kirkjunni voru svona um það bil 70 manns. Ég tók mér frí eftir hádegi í dag til að gera mig klárann.

Það virðist nú vera stigsmunur á þeim dönsku og íslensku jarðarförum sýnist mér. Ef ég leyfi mér að alhæfa semsagt útfrá þeirri sem ég upplifði í dag. Ég fór og skipti um föt, dróg framm "gömul" dökk bankamannajakkaföt, fann hvíta skyrtu og setti á mig svart bindi. Já ég leit bara virkilega vel út. Þetta var klassískt og ég fann eftir klippinguna í gær að ég var nánast eins og sá sem átti að jarða. Svo fínn var ég. Ég arkaði nú af stað útí bíl og keyrði í kirkjuna. Þar streymdu að gestirnir. Veitti ég því athygli að ekki voru þeir nú allir mjög prúðbúnir, enda miður vinnudagur og fólk kannski ekki haft tök á því að fara heim og skipta um föt.

Nú ég geng í salinn og sest hjá nágrönnum mínum á þriðja aftasta bekk í kirkjunni. Áður en ég settist var mér líkt og öðrum gestum afhent sálmabók. Enginn dagskrá var afhent eins og svo algengt er á Íslandi. Enginn tónlist var spiluð þarna í upphafi. Og fólkið streymdi nú inn.

Kistan var á miðju gólfinu eins og svona lög gera ráð fyrir. Hinsvegar sat eiginkona hins látna ekki á fremsta bekk í kirkjunni heldur á hlið, á móti kistunni. Þannig sat hún með vangann að kirkjugestunum, og þannig sá hún í raun alla sem komu til kirkju. Fyrir aftan hana sátu síðan systkini hennar og nánasta fjölskylda. Athugið ekki á kirkjubekkjunum eins og hinir, heldur þarna á stólum sem raðað hafði verið sitthvoru megin við kistuna. Þannig sátu nánustu ættingjar hins látna sitthvoru megin við kistuna. Líkmennirnir voru einnig þar. Kirkjan hefur ca. 15 bekki í röð sitthvoru megin. Þannig að kistan var svona við tólfta bekk.

Á miðju gólfinu inn allt kirkjugólfið sem er svona 15 metrar var búið að raða blómavöndum sem gestir höfðu komið með og/eða var partur af skreytingunni í athöfnninni. Ég taldi 32 blómvendi sem raðað var í beinni röð frá kistunni og útað dyrum. Síðan voru 13 blómvendir við kistuna og síðan nokkrir kransar. Annað eins blómahaf hef ég nú bara aldrei séð. Síðan voru sungir í athöfninni þrír sálmar. Athöfnin tók um 40 mínútur. Kistan borin út og að hliði kirkjunnar, en þar stóð líkbíllinn. Kistan í bílinn og þar með var jarðarförinni lokið. Presturinn hafði áður kastað rekunum við altarið og þarna stóð síðan allur hópurinn á kirkjuhlaðinu í svona 3 mínútur. Kirkjuklukkan hringdi nokkur slög og síðan keyrði bílinn í burtu. Kirkjugestirnir gengu síðan að ekkjunni og dóttur hennar og vottuðu henni samúð sína.

Jarðarförin var ósköp látlaus og hvorki í raun fugl né fiskur. Hvorki svo sorgleg eða hátíðleg. Þetta var í raun svolítið sérstakt allt saman. Og það sem meira var þá taldist mér svo til að ég væri fjórði best klæddi maðurinn í kirkjunni. Já þú trúir því ekki. DANIR NOTA EKKI BINDI Í JARÐARFÖRUM......já hér kom alhæfing. Það var undantekningalust karlmenn í ljósum skyrtum úr vinnufatabúðinni, í háskólabolum, stuttermabol, leðurjakka, eða óskilgreindum norskum ullarpeysum. Já, ég segi ekki að ég hafi fengið taugaáfall, en mér datt í hug að reyna rífa af mér bindið og hneppa frá efstu fimm tölunum. Fremsti líkmaðurinn, var t.d. með svera hálskeðju, í ljósri skyrtu og leðurjakka sem hann hefur örugglega keypt á Kanarí í kringum 1980.
ég sá hinsvegar þrjá aðra en mig sem voru með bindi. En að einhver væri þarna í dökkum jakkafötum, í hvítri skyrtu með svart bindi...ónei....það er bara Litli Lagermaðurinn....díseskræst. Enda komu nágrannar mínir allir á gallabuxum í vinnuskyrtunnum og strigaskóm. Ég varð þó ekki fyrir aðkasti.

En næst já næst sem ég vona hinsvegar að verði ekkert næst, mun ég mæta í joggingbuxum, og Don Cano íþróttagallanum sem móðir mín keypti á mig. Það var þegar Jón Múli var í útvarpinu, Magnús Bjarnfreðsson var með "Dagskrá næstu viku" þáttinn sinn í sjónvarpinu. Og þorgeir Ástvaldsson var í Sumargleðinni. Og spilað var látlaust í útvarpinu Rabbabararúna...

Kristinn Tískulögga.


fimmtudagur, september 23, 2004

Lífið í dag.....

jæja nú er sólarhringur þar til barnapíurnar frá Kaupmannahöfn koma í hús. Já það verður síðan stokkið af stað um hádegisbil á laugardaginn. Axel Orri og Anna Marín eru spennt yfir komu Mosdals fjölskyldunnar frá Kopenhagen.

Annars fóru þau móðir og sonur til Silkeborgar í hádeginu í dag, þar sem tekin var ný mynd af hendinni á þeim brotna. Það lýtur mjög vel út og er útlit fyrir að hendinn verði betri en ný...já hvernig sem það verður nú hægt. En það gekk mjög vel og næsti tími er hjá lækninum eftir þrjár vikur til að taka þetta af. Axel Orri var hinn rólegasti í skoðuninni og viðtalinu við læknanna. Já fyrirmyndarþjónusta á þeim bænum.

Við eigum síðan von á óvæntum gestum frá Íslandi nk. sunnudag en þá ætlar Rósa frænka hennar Dagmar og Helgi sonur hennar að koma hingað í heimsókn til okkar. Það er mikill spenningur í gangi og erum við búinn að taka fram kynningarmyndbandið og bækurnar um Skanderborg. Fyrirlesturinn er klár um fegurð staðarins og haft hefur verið samband við helstu túristastaðina. Anna Marín er líka búin að gera óvæntar ráðstafanir vegna komu frænda síns.

Nú við feðgar fengum síðan hársnyrtingu hjá frísörnum á stofunni nú síðdegis. Og gekk þetta ljómandi vel hjá henni. Við vorum báðir mjög ánægðir sko. Síðan er jarðarför á morgun hjá okkur en ég fer en Dagmar verður við störf...já vinna vinna allt inná bók. Og síðan hin stórkostlega árshátíðarferð okkar til Velje er yfirvofandi...já það verður fróðlegt að sjá hvernig þeir halda árshátíð þarna í GleraugnaBífó.

Kristinn Alltafað.

miðvikudagur, september 22, 2004

Axel Orri og Anna Marín og Halli....

Viti menn í dag gleymdu foreldrarnir að fara með handleggsbrotna drenginn til skoðunar á sjúkrahúsið. Jú jú það var lesið skakkt á miðann. Töldum við víst að það ætti að vera á morgunn. Nei nei, hringir ekki hér síðdegis læknaritarinn úr Silkeborg. "já við erum nú búinn að bíða hér í dag eftir Exel Oððði Christiansjon" já guð og amen og allt það. Faðirinn í sjokki og hringdi þegar í stað í móður drengsins sem fékk einnig tilfelli. En við fengum nýjan tíma og eigum að koma með litla skinnið á morgunn um hádegisbil í viðtal og myndatöku. Móðir hans fer með hann til skoðunnar.

Anna Marín og móðir hennar fóru síðan á foreldrafund í gær og ræddu við kennarana. Og það er skemmst frá því að segja að umsögnin var nú í fínu lagi sem áður. Kunnulegar setningar komu útúr kennaranum um ástundun dóttir vorar. Og tók hún síðan sérstaklega fram að "hún hefði svo skemmtilegan húmor" hvað sem það þýðir. En það má ljóst vera að þótt móðir hennar sé nú með þeim fyndari og komin að meinfyndu Vesturlensku húmorkyni þá er húmorinn hjá föður hennar nátturlega allgjör snilld. Þótt næstum öll hans fjölskylda sé nú húmorslaus. Þá er eins og þetta kristallist í barninu Húmor Föðurs + Temmilegur Húmor móður = Anna Marín.
Guð má vita hvað blessað barnið hefur verið að segja í skólanum við kennarann. En hún semsagt sagði þetta og síðan það að "hún væri afskaplega ánægð að hafa hana í bekknum".
Við foreldrarnir vorum vitanlega himinlifandi yfir þessum kommentum kennarans. Og það undirstrikar bara það að þetta gengur vel.

Ég fór síðan á fund í gærkvöldi í húsfélaginu. Já og það vantar nú ekki brandarana þar. En svo vill til að allt fólk er nú ekki eins. Hér á móti okkur búa nokkrir öryrkjar, já og þetta er vitanlega ekki illa meint. En við gerðum okkur það að leik hér á fyrstu mánuðunum sem við bjuggum hér að skíra flesta íbúana uppá nýtt. Þar sem við vissum ekki nöfnin. Fór þetta ýmist eftir útliti, framkomu og hegðun fólks. Og við sesmagt settum nafn hér á mann á miðjum aldri. Það vill til að þegar hann labbar hér í ruslatunnurnar með sorpið sitt, þá gengur hann á inniskónum sínum og dregur lappirnar á eftir sér. Hann nennir ekki að labba. Síðan lafir hakan á honum niður á miðjan brjóstkassann, þar sem hálsinn á honum er svo stuttur. Hausinn kemur síðan eins og klessa ofaná axlirnar. Og þegar hann talar eitthvað, þá rymur svona í honum og hann tuldrar og þá mest svona inní sjálfan sig. Og fæstir skilja hvað hann er að segja eða hvort hann sé bara að ropa.

Ekki veit ég hvort lýsingin nái í gegn til þín sem lest þetta. En segja má að hann sé enginn Gunnar á Hlíðarenda. Nú hann er sesamagt ofaná allt annað raunverulegur öryrrki...höldum við. Á fundinum fékk hann líka þetta rosalega hóstakast í miðri ræðu formanns yfir ársreikningum, þannig að fundargestir héldu að hann væri að skilja við.. Hann tróð nefnilega í sig köku sem hann hafði komið með heimanað frá sér og gleymdi að súpa með.

Þessi maður hefur frá fystu tíð okkar hér ávallt verið kallaður Halli Hauslausi. Nú víkur nú sögunni að fundinum, þar sem komið er að liðnum önnur mál. Þar gaspraði hver íbúinn á eftir öðrum um meinta galla í íbúðunum sínum. Einn hafði bilaða hurð, gluggi lak í öðru húsi, og geymslan opnaðist illa í hinu þriðja. Allt voru þetta ábendingar sem áttu ágætlega við, það er að segja voru kvörtunarhæfar. Segir nú Halli Hauslausi stundar hátt "öhöö ég hef hérna öhööö eina kvörtun" greinilega ekki búinn að jafna sig eftir kökuátið...nú segir formaðurinn, já lát heyra. "já þar er nefnilega þannig að uppum veröndina hjá mér þá kemur svona sko, já öhöö það kemur bara gras þar uppá milli" Nú áttu aðrir fundarmenn erfitt með að hemja flissið í sér. Og sjálfur formaðurinn vissi ekki almennilega hvernig hann átti að svara þessu. En sagði eftir smástund að það væri nú ekki mikið hægt að gera í því að grasið kæmi upp. Það væri nú bara þannig með gras. Og þetta teldist nú varla kvörtunarhæft til leigufélagsins. Sagði þá annar fundargestur og benti Halla Hauslausa á að fá sér bara kanínu. Var mér þá hugsað til Freðriks/Mary heitins.

En allt fór þetta vel að lokum og fengum við smurt brauð (ein sneið á mann) og síðan öl eða gos eftir þörfum. (ég tók ölið ...svona til tilbreytingar)


Kristinn Brandari.


sunnudagur, september 19, 2004

Nám eða vinna.

Já það togast á ýmsar vangaveltur um þessar mundir, hver stefnan sé. Eða eins og segir í dægurlagatextanum “Hvert skal halda hvar er fjör” Það er kristaltært að árið í viðbót verður ekki lifað af í gleraugnabransanum. Nei það getur ekki orðið. Hinsvegar er því oftar en ekki haldið fram að menntun sé máttur. Og það hefur hvarflað að húsbóndanum að þreifa örlítið fyrir sér með menntunarmöguleika hér í Danmörku. Okkar stærsta háskólasamfélag í Árósum er spennandi kostur og margt hægt að leggja fyrir sig þar. Umræða um þetta er nú að fara í gang á heimilinu og er í raun óvíst hvað verður. Ég hallast aðþví að taka Mastersnám í einhverju sem tengist stjórnmálafræðinni en síðan hef ég einnig hugleitt framhaldsnám í einhverskonar stjórnun, starfsmannamálum, eða því sem tengist rekstri fyrirtækja.

Mér hefur líka dottið í hug að láta gamla drauma rætast að fara í tónlistarnám, læra söng, spila á trommur, vera í hljómsveit, stjórna hljómsveit og kór. Gerast heimsborgari og ferðast um öll heimsins höf. Rækta sjálfan mig og sálina. Hugsa um fjölskylduna og það líf sem maður lifir…..til hvers er lífið….sitja á kaffihúsi og ræða um tilgang þess…sitja meðal öldunga á kaffihúsi á Sikiley og spila Kotru..gangast á hönd Guðföðursins á Ítalíu og sinna skyldum mínum gangvart honum og fjölskyldunni. Ferðast með Clinton og aðstoða hann við fyrirlestrana....já er það ekki yndislegt að láta hugann reika.


Kristinn Draumur.

Matarverð í Danmörku.

Einn af þeim kostum að búa hér í Danmörku er klárlega verðlagið á matvörunni. Við erum nú hætt að skoða Hagkaup og Bónusbæklinga til samanburðar. En við veltum þó stundum fyrir okkur verðlaginu. Við fórum t.d. í innkaupaferð nú um helgina. Já matarinnkaupaferð og borguðum dkk. 500.- sem svarar til þess að borga ísl.kr. 6000.- já maður staldraði nú við áður en maður borgaði. Og staldraði líka við heima þegar við tókum uppúr pokanum.
Við náðum nefnilega að kaupa svolítið af kjúkling sem dugar okkur í sex máltíðir (skinnlausar og hreinsaðar bringur) 4kg, og síðan 2kg af kalkúnabringu, ½ kg af hakki (fitulitlu), hamborgaraghrygg 2kg auk þess sem við fengum okkur Herragarðs skinku 1,2 kg. Já það er merkilegt hvað danirnir geta haft álagninguna og kostnaðinn lítinn við matarinnkaupin.

En almennt um lífið eftir handleggsbrot þá er Anna Marín ánægð í klúbbnum sem hún er í eftir skóla, hún er farin að föndra þar ýmsa muni og gengur vel. Við erum alltaf jafn undrandi á þessari “sjálf-lærðu” dönsku hennar. Hún segir okkur fyndnar sögur af skólafélögum sínum og notar óspart danskar slettur í lýsingum sínum. Já þetta er merkilegt hvað börn, ekki bara mín heldur öll börn, geta aðlagast fljótt og lært nýtt tungumál án þess að lenda í miklu basli með það.

Við fórum í kvöld yfir til nágrannans, Bíbíar og vottuðum henni samúð okkar. Við færðum henni kerti og blóm og var hún mjög ánægð að við skyldum koma. Svend var 62 ára gamall og hefði átt afmæli nk. þriðjudag. Hann fékk blóðtappa í hjartað í Tyrklandi. Við ræddum svolitla stund við hana og buðum fram aðstoð okkar. Alfreð hundurinn var hinn fjörugasti yfir komu okkar og tók inniskó okkar traustataki en sleppti fljótlega þegar hann varð var við lykina sem komu frá skóm sambýliskonu minnar.....eða voru það mínir....æi það skiptir ekki máli. Við reyndum að segja Axel Orra frá því að vinur hans Svend yrði ekki meira hér. Hann var ekki á ná því og er næstum öruggt að hann muni spyrja um Svend næst þegar hann hittir Bíbí, en svona eru börnin.

Nú og afmæliskveðja í lokin hér. Amma mín, já heldur uppá afmælið sitt í dag, og fær sér að öllum líkindum, stórt glas af sérrí....jafnvel einhverju sterkara. Já, amma til hamingju með afmælið.


Kristinn vel á verði.

fimmtudagur, september 16, 2004

Axel Orri á sjúkrahús í Silkeborg.

Já það gengur mikið á þessa dagana í Rosenkjærvej. Um kvöldmatarleytið í gær þegar undirbúningur fyrir kvöldmáltíðina stóð sem hæst. Já þá satt Anna Marín við heimanám við eldhúsborðið og móðirinn yfir pottunum. Faðirinn var að velja kaflabrot fyrir húslestur kvöldsins (það er alltaf kvöldlestur öðru hvoru). Já þá fór Axel Orri inn til systur sinnar, á þann stað sem er margbúið að banna honum að fara.

Hann klifraði uppí rúmið hennar sem er jú nokkuð hátt uppi og sat þar í rólegheitum. Ákvað hann síðan að fara niður með þeim hætti að í stað þess að bakka niður stigann þá snúa sér fram og fara svoleiðis niður. En það vita nú allir sem hafa farið upp háan stiga að maður snýr með baki í "aksturstefnu" þegar farið er niður. Ekki Axel Orri. Og síðan þegar hann átti tvö þrep eftir niður. Festi hann með einhverjum hætti hendina í stiganum og datt framm fyrir sig. Rak upp þó nokkurt óp. Svo móðir hans hrökk við og heyrði á hrynjandanum í barka barnsins að eitthvað hafði gerst.

Settust þau í sófann og kom þá skyndilega stór kúla á handlegg vinstri handar og hendin bólgnaði ógurlega. Móðirinn kom með úrskurð "hann er brotinn". Faðirinn í símann, hringir í 112 og er bent á að hringja á skiptiborð slysavarðsstofunnar. Það er skiptiborð sem ýmist vísar sjúklingum til Árósa (15 mín akstur) eða Silkeborgar (25mín akstur). Segir nú konan á skiptiborðinu að við getum komið til Árósa þar séu hinsvegar 22 aðilar sem bíða þjónustu. Hún segir síðan " já já það eru jú nokkrir sem bíða en þið skuluð bara taka því rólega og ekkert fara strax af stað. Hann ætti að komast inn líklega um ellefu leytið". (þá var klukan sjö). Faðir drengsins ávallt geðgóður og skiptir jafnan ekki skapi....segir þá með léttum önugstón...og athugið á dönsku " Heldur þú að ég segi 3ja ára gömlu barni, handleggsbrotnu að VERA BARA RÓLEGT OG HINKRA ?, finnst þér nú það eðlilegt ?" "Ha, nei nei líklega ekki" segir konan "heyrðu það eru sjö sem bíða í Silkeborg" það er einmitt það segi ég. Þakka þér fyrir vertu sæl við förum þangað.

Í rallýakstri ók heimilisfaðinn til Silkeborgar með fjölskylduna í aftursæti Ljónsins. Þangað komum við og var tilkynnt að einhver væri biðin, en hann fengi forgang. Var nú tekin mynd, og kom í ljós að hendin hafði gefið töluvert eftir og brotnað. Það er báðar "pípurnar" í vinstri hendi. Var boginn það mikill að hann varð að fá svæfingu og rétta þær við og síðan gifsa. Við Anna Marín fórum heim um kl. 23 en Dagmar var hjá honum um nóttina. Um klukkan 01 var þessu lokið, og um tvöleytið fóru þau niður á sjúkrastofu. Hann var í klukkutíma á "vöknunar-herberginu" eftir svæfinguna.

Hann var ótrúlega rólegur allan tímann, fékk töluverða aðdáun fyrir rólegheit og yfirvegun læknafólksins (minnir á föður sinn). Hann var síðan ekki tilbúinn að fara heim í dag af spítalanum þar sem hann var að horfa á sjónvarpið í rúminu sínu.

Kristinn yfirlæknir.

þriðjudagur, september 14, 2004

Svend.

Þær afar dapurlegu fréttir fengum við nú síðdegis í dag að nágranni okkar, Svend. Sem jú býr hér við hliðina á okkur lést á ferðalagi í Tyrklandi. Hann og frúin höfðu verið hjá dóttur sinni og í brúðkaupsferðalagi. Þótt Svend hafi nú ekki verið náinn fjölskylduvinur eða ættingi. Þá koma þessu tíðindi afar óþægilega við okkur. Og það verður ekki annað sagt að maður sé hálf dapur yfir þeim.

Ég sagði síðast í gærkvöldi við Dagmar hvað mér fyndist þau vera búin að vera lengi í burtu en ræddum jafnframt að nú hlytu þau að fara koma heim. En fyrir hálfum mánuði fóru þau í ferðalagið. Þau áttu eimitt að koma heim í gær. Við höfum nú ekki kynnst mörgum hér í hverfinu en Svend og Bíbí ræddum við oft við og ekki síst Axel Orri sem gerði í því að hlaupa yfir til þeirra og ræða við Svend. Og við á eftir að afsaka drenginn. En það verður jú ekki meir.

Þau voru nú einnig boðin og búinn og sérstaklega Svend að aðstoða okkar ef við þyftum eitthvað. Þannig ræddi ég oft við hann um bílamál ofl. Við áttum síðan skemmtilega stund með þeim í garðveislunni fyrir skömmu þar sem Svend lék á alls oddi og kynntumst við honum ennbetur fyrir vikið.
Já við eigum eftir að sakna nærveru hans hér og góðsemi sem hann sýndi ávallt í okkar garð.
Það verður öðruvísi stemmnig hér í Rosenkjærvej þegar Svend er farinn.

Kristinn.

Mublan í stofu stendur.

Vinnufélagi Morten bjargði nú málunum með flutrninginn á stofuborðinu. Hann fékk bíl tengdaföður síns sem er næstum eins og bíll t.t. föður míns (tt=tilvonandi tengdafaðir)
Mátti ég á nýjan leik aka eins og óður maður eftir vinnu og sækja dótið. Já þeir vilja komast heim skipamennirnir. Ég náði þó fimm mínútur fyrir lokun og sótti dóttið. Í stresskasti og búinn að éta fjórar sprengitöflur, náði ég þó áttum og bað lyftaramanninn, geðillann dana á sextugsaldri að setja bara brettin með dótinu út fyrir og þá væri maður ekkert að tefja þá kappa. Með fýlusvip sagðist hann gera það. En minnti mig á það væri búið að loka.
Morten birtist síðan og við hófumst handa við að hlaða bílinn.

Klukkan farinn að ganga fimm. Anna Marín fékk það hlutverk að sækja bróður sinn til dagmömmunnar klukkan fjögur og passa hann til klukkan fimm. Nú leið tíminn við kapparnir hlóðum bílinn og þetta rúmaðist bara allt saman mjög vel. Hinsvegar hafði Anna Marín ákveðið að fá sér nýjan hægindastól í herbergið. Og bað ég nú Morten um að nálgast hann með mér í eitt mollið inní Aarhus sem heitir Bruuns gallerí. Sóttum við stólinn en myndir af honum munu birtast á heimasíðunni innan skamms. Klukkan var nú orðin tíu mínútur í fimm. Anna Marín hringir nú og minnir föður sinn á að fyrsti danstíminn í svokölluðum Show-dance sé umþað bil að byrja. En hún hafði skráð sig í hann í skólanum. Þetta er dans sem hún æfir einu sinni í viku. Og fyrsti tíminn í námskeiðinu var einmitt að hefjast. Faðir hennar varð nú æði stressaður þar sem nánast útililokað var að ná heim á ný á tíu mínútum nema þá helst í þyrlu.

Afgreiðslan í búðinni tók lengri tíma en ætlað var og fór nú svitinn að leka niður bakið. Og já bakvið eyrun. Morten sagðist nú vera allveg rólegur en það var ég nú ekki. Stóllinn kom og settum við hann útí sendibílinn. Hringir nú Anna Marín á ný, og segir klukkuna vera orðna fimm, og tíminn byrjaður. Faðirinn staddur í miðbæ Aarhus (370 þúsund manna bær, í lok dags þar sem allir eru á leiðinni heim frá vinnu, í mikilli umferð og töfum) Faðir hennar segir henni því að útilokað sé að ná þessu, ég komist ekki heim fyrr en í fyrsta lagi eftir hálftíma. Með brostna rödd segir þá dóttir mín “ En pabbi þetta er fyrsti tíminn” það var ekki laust við að ég missti úr slag. Með samviskubit yfir seinkunn minni og yfir þeim dapurlega veruleika að dóttirinn missti af fyrsta tímanum sem beðið hafði verið í hálfan mánuð. Reyndi ég að sefa dóttur mína og sjálfan mig líka. Og skýra út þá óviðráðanlegu aðstöðu sem ég var í. Það tókst bærilega.

Við ókum nú heim og um hálf sex vorum við komnir heim. Á móti mér tók dóttir mín, eylítið súr á svip, og vonbrigðin leyndu sér ekki. Hún tók þó gleði sína á ný þegar við héldum á nýja stólnum inní herbergið hennar. Nýr stóll sem hún sjálf hafði valið og sómir sér vel í herberginu hennar. Framundan er endurskipulagning á heimilinu þar sem stofuborðið er komið í hús og þeir stólar sem því fylgja.

Kristinn Á 10ára dóttur.

mánudagur, september 13, 2004

Fleiri afmælisveislur og helgin sem var.

Jæja þá er að líta yfir farinn veg. Við héldum litla heimilislega afmælisveislu sl. föstudag. Elduðum okkur góðan mat og höfðum það svona huggulegt. Faðirinn mátti í dauðans ofboði aka til Aarhus og sækja það sem hægt var að setja í Svarta Ljóinið af búslóðinni. En fyrst var að sækja drenginn. Vinnudegi lauk að vanda sl. Föstudag hálf þrjú. En klukkan hálf fjögur ætluðu verkamenn Samskipa heim í helgarfrí. Svo það varð hún heldur betur að aka þetta létt yfir. Já Jeminn eini. Sótti drenginn þegar í stað 15:32 og ók sem leið lá beint útá hraðbrautina þar er hámarkshraðinn 110 km. En bóndinn og sonur óku nú létt yfir þeim mörkum. En allt þó fjarri því að hætta hafi skapast…já já fyllsta öruggis gætt. En 7 mínútur fyrir lokun vorum við komnir og sveittir vorum við á bak við bæði eyrun. …ja for sören….við hófumst nú handa við að troða í bílinn sem mest við máttum. Sátum við kengbognir og skakkir eftir að hafa sett allt lauslegt í bílinn.


Eftir að hafa sett í bílinn þar á meðal afmælisgjöf frá Ömmu og afa drengsins í Garðabæ. (sem ég n.b. neitaði að taka með í handfarangur í síðustu ferð minni til íslands) Henni náðum við úr Frystikistunni og annað lauslegt. Eftir það sátum við uppgefnir útá bílastæði og reyndum að anda með nefinu…..en þreyttir og sveittir vorum við. Ókum við síðan í rólegheitum heim.

Dagmar var að vinna til klukkan sex og við hófumst handa við veisluundirbúningin. Já það var notaleg stund á heimilinu og gott ef maður fékk sér ekki eina rauða með matnum.

Við fórum síðan á laugardeginum og keyptum afmælisgjöfina fyrir drenginn. Sem voru borð og stólar og bekkur inní herbergið hans. Hann hefur því nú fengið mublurnar sínar. Hann var mjög ánægður með þetta og sat og lék sér.
Á sunnudeginum höfðum við síðan boðið Dorrit og fjölskyldu í afmæliskaffi, en Dagmar hafði einmitt nokkru fyrr skellt í þrjár tertur…já það er ekkert keypt hér á heimilinu í þeim efnum. Nei nei baka baka. Og þær slógu vitanlega í gegn.

Drengurinn var nú að leika sér við gestina framanaf en skyndilega var hann horfinn. Faðir hans leitaði nú á báðum hæðum hússins en hann fannst nú ekki. Fóru nú að renna á föður hans tvær ef ekki þrjár grímur….en viti menn. Afmælisdrengurinn hafði ákveðið að leggja sig og hafði hjúrað sig inní sæng móður sinnar og lá þar steinsofandi “með horn” Já farinn úr veislunni og hafði ákveðið að leggja sig.

Dagurinn endaði síðan í sjónvarpshorfi og slökun. Ný vika framundan með nýjum áskorunum og væntingum til lífsins, tekist á við fjölbreytt viðfangsefni líkt og í aldingarði Edens…(messu nei við fórum ekki í neina messu um helgina)


Kristinn Schumakker.


fimmtudagur, september 09, 2004

Sendiferð hálfa leið til Kúbu.

Jæja dagurinn fór nú rólega af stað. Drengurin og móðir hans fóru til dagmömmunnar með köku skreyta í hinum ýmsu dýrum. Já kökuskrautið í ár voru Svín, kindur, hundar og hestar. Já það er svona landbúnaðarbragur yfir þessu öllu saman hjá okkur. Hann átti síðan góðan dag og fékk fína afmælisveislu. Hann fékk gjafir frá öllum þremur dagmömmunum sem hann hefur verið hjá og góðar kveðjur frá þeim öllum. Það er látið vel að drengnum það vantar nú ekki.....

Kristinn litli fékk rétt um hádegið beiðni um að fara í sendiferð fyrir Bífókallana, já sagði yfirmaðurinn gætir þú ekki skotist hérna með gleraugu til viðskiptavinar. "jú jú" sagði ég. "já það er einmitt það, þú tekur bara fyrirtækisbílinn, þetta er á Fjóni"
Já það var nefnilega það, sendiferð með eitt stykki gleraugu til Fjón. Þangað eru 120 km. Svo það var þokkalegur bíltúr rúmur klukkutíma akstur á dönskum hraðbrautum. Innan um alla stærstlu trukka landsins. Farið yfir Litla beltið og ekið sem leið lá í átt að Óðisnvé. Síðan þefaði ég uppi lítinn smábæ Aarup þar sem gleraugun voru afhent.

Gleraugnasalinn á staðnum var himinlifandi yfir sendingunni. En viðskiptavinur hans hafði brotið gleraugun sín í gær, átti pantað í þriggja vikna verð til Kúbu, og hefði verið blindur í öllum skoðunarferðum þar, hefði hann ekki fengið gleraugun. Þau áttu að fara í póst frá Bífó í gær en þau týndust innan fyrirtækisins og því var ekki annað að gera en senda Litla sendilin af stað.
Já maður tók því nú með mátulega miklum æsingi og slakaði vel á og virti fyrir sér nátturuna og umferðina. Ferðin gekk vel og allir voru ánægðir.

Nú er restin af búslóðinni komin til landsins, og því verður hægt að nálgast hana á morgunn inní Aarhus. Það verður allt reynt til að nálgast pakkana á morgun, en Dagmar er næstum búin að skreyta jólatréð, henni finnst eins og Litlu jólin séu að koma. Allir óvæntu pakkarnir sem ég pakkaði niður í ferð minni til Íslands. Hinsvegar byrja þeir seint og hætta snemma í skipaafgreiðslunni svo maður veit ekki....en það kemur í ljós.

Nú að lokum ríkisstarfsmaðurinn í danska Landbúnaðarráðuneytinu hjá Guðna Geit hinum danska. Heimir Helgason, bróðir Dagmar á afmæli í dag. Og við sendum honum að sjálfsögðu afmæliskveðjur hér í dagbókinni. Hemmi litlu minnkaðu nú við þig þetta bjór sull þú ert nú orðin faðir, og gerðu hana móður þína stolta af þér.

Kristinn Sendill.

miðvikudagur, september 08, 2004

Fyrsti í afmæli.

Þá er hafinn undirbúningur fyrir afmæli Axels Orra. En á morgunn verður veisla hjá Lailu dagmömmunni. Það verður boðið 10 krökkum og þremur fóstrum. Já og húsmóðirin stendur hér kökuvaktina og bakar í yfirvinnutíma. Ég sjálfur veiti svona meira andlegan stuðning. Fyrsta veislan er því á morgun, næsta á föstudag á sjálfann afmælisdaginn og síðan sunnudagskaffi.

Annars gengur lífið sinn vanagang, við höfum verið að leita að afmælisgjöf fyrir drenginn en gengið rólega. Við ætluðum að kaupa húsgögn í herbergið hans en innnanhúsarkitektin móðir hans sættir sig ekki við hönnunina sem við fundum. Og faðir hans Trésmiður frá Vestfjörðum sættir sig ekki við efnið í viðnum. Þannig að við munum halda leit okkar áfram. Síðan er bara að sjá hvað verður.

Við höfum nú ákveðið að fara í helgarferð/sólahringsferð með Bifo liðinu í lok september og höfum keypt barnapössun frá Kaupmannahöfn. Já já það er ekkert minna, farið hálfa leiðina til Íslands til að fá pössun. Óskuðum aðstoðar Heimirs og kærustu við pössun gegn boðsmiðum í lestarferð framm og til baka. Þau samþykktu, svo það Bjargaðist.

Kristinn alltaf í afmæli.

sunnudagur, september 05, 2004

Ferðalag um Fríhafnir Íslands og Danmerkur.

”Sigurjón þú kaupir ekki nokkurn skapaðan hlut hér, heyrirðu það” já mér brá nú óneitanlega þar sem ég stóð í Flugstöð Leifs Heppna og labbaði um. Þarna voru þau hjónin Sigurjón og Anna Hulda að bregða sér helgarferð til London. Og hún hélt áfram með lesturinn “Sigurjón þú hlýtur að sjá það maður að þessar spólur eru miklu dýari en í bænum, þú kaupir ekkert” hann svaraði bara “Anna Hulda þessa mynd höfum við bara ekki séð, eigum við ekki bara að kaupa hana fyrir krakkana”. Ég læddist í burtu og leit á þetta sem varnarorð til mín og keypti ekki neitt sjálfur. Enda er verðlagið í Flugstöðinni með þeim hætti að það fær mann til þess að reyna að anda með nefinu og halda aftur af sér að bölva ekki starfsfólkinu og verðlaginu. Já sveiattann, hátt er það. Og ekki tók betra við á Kastrup, þar sem maður verslar nú sem innfæddur í Danmörku þekkir maður nú nokk verðlagið svona á ýmsum vörum. Og með verðlagsminni, sá ég hvern hlutinn á fætur öðrum langtum dýrari í Fríhöfninni en í mínum heimabæ. Nei, á Kastrup verður ekki verslað, hvorki áfengi né annað.

Kristinn Kaupóði.

fimmtudagur, september 02, 2004

Afhending á Sólheimum.

Já þá er maður kominn til baka. Það verður nú ekki annað sagt en það hafi verið notalegt að koma aftur til sinna heimkynna og hitta eiginsambýliskonuna og börnin. Já það var gott. Lefðu mér hinsvegar að taka þig með mér lesandi góður í ferðalag, já ferðalag inní fjórðu víddina……..ég lagði af stað eldsnemma morguns keyrður af hinum eigandanum að Ljóninu til lestarstöðvar. Börnin sváfur og allt með kyrrum kjörum. Syfjulegur lestarvörður mætti mér og ég fann fljótt sætið mitt. Þremur tímum síðar kominn til Köben Kastrup og uppí vél fór ég, sat í sætaröð ellefu.

Eftir ítrekaðar tilraunir til að halla sætinu mínu, gerðist það að farþeginn fyrir aftan mig bölvaði á sænsku.
Ég hafði þá reynt í góða stund með því að rykkja bæði höfðinu og skrokknum ítrekað afturá bak, og svona henda mér “létt” á sætisbakið til þess að fá það afturábak. Þá í sömu mund var allt að fara til fjandans hjá svíanum kaffið og koníakið. Kemur þá ekki flugfreyjan askvaðandi að mér, þar sem ég sit löðursveittur, sótrauður í framan af bræði, svo næstum vætlaði útúm munnvikin. Þá kemur hún þessi elska, uppmáluð af þjónustulund og stífelsi. “Það er því miður ekki hægt að halla sætunum afturábak í sætaröð ellefu og tuttuguogsex í þessari flugvel, því miður” Þetta ku vera einu sætaraðirnar í allri flugvélinni sem ekki er hægt að halla vegna neyðarútgangsins...og þarna sat ég...já það var æðislegt nánast með blóðtappa í hálsinum og stífan skrokkinn sat maður uppréttur í þrjá tíma og reyndi að sofa…tókst ekki.

Flugferðin gekk vel og í gegnum fríhöfnin brunaði ég án þess að hirða um að kaupa nokkurn skapaðn hlut. Enda skyldi halda rakleitt í Sólheimana og hefja hugsun.

Föstudagur í Reykjavík.
Kom til Íslands um klukkan 1500 að staðartíma og hélt til foreldra minna, karl faðir minn sótti mig útá flugvöll. Fór til foreldrahúsa þar sem ég skipti um föt, og fékk mér íslenska mjólk. Fékk síðan afhent lyklavöld af bíl móður minnar og keyrði ég á honum það sem eftir lifði ferðar. Það kom sér heldur betur vel, í þeim snúningum sem fyrir höndum var. Var í skúrnum til að verða 23 það kvöldið. Var þó nánast í þráðbeinu sambandi við Dagmar til að spyrja hvort þetta mætti eða hitt….samstarfið gekk vel. Fór á íslenskan pöbb með Jóni Þór og eiginkonu hans Vigdísi. Hittum íslenskar bankafyllibyttur. Við Jón fengum okkur bara öl
(Vigdís smakkaði ekki dropa..keyrði...skyldhún vera ófrísk eða bara heilsulaus)

Laugardagur í Reykjavík
Fór af stað rúmlega átta, en áður en mætt var í skúrinn var tekinn sundferð. Og þvílíkur unaður. Fór í sundið og skellti mér í sturtu, þar skrúfaði ég allt í botn og lét vatnið dynja á mér. Skyndilega áttaði ég mig á því að nú var kominn tími til að fá sér vatnssopa…svo ég bara labbaði úr sturtunni með allt í botni,…og fékk mér vatn…fór síðan aftur í sturtuna og lét vatnið leika um mig…liðu nú nokkrar mínútur þar til ég áttaði mig á því að ég þurfti að pissa, úr sturtunni fór ég með allt í botni. Naut þess síðan að koma aftur undir bununa og standa þar ennþá lengur. Já ég náði líklega átján mínútum í sturtunni á leið ofaní laugina.

Það var bara lán að vörðurinn kom ekki til að reka mig útí laug. Síðan tók ég aðrar sautján mínútur í sturtunni þegar ég fór uppúr nánast endurtók leikinn frá því ég hafði farið ofaní. Já það verður að viðurkennast að með baðvatnið að vopni hefur Ísland vinningin á þeim sviðum. Þegar heim var komið fór ég í gamla farið. Skrúfa frá bleyta sig allann (42 sek). Sápa líkamann hár og húð (36 sek). Skolun með vatni (49 sek) Samtals sturtu tími 1 mínúta og 27 sekúndur.

Brunaði síðan í bílskúrinn, fékk aðstoð frá Garðabæjarbúum Helga og Björgu (fulltrúi Dagmar) um að koma dóti í geymslu og skip, það verður seint fullþakkað. Já og Jón litli var mér nú líka innanhandar. Hann er yndislegur þegar hann vill það við hafa, öðlingurinn sá. Matarboð í Breiðholtinu þetta kvöldið. Var fínt.


Sunnudagur í Reykjavík
Aftur í sund, sama stað sama aðferð. Þótti gott. Áfram tekið til hendinni í skúrnum. Minningarnar flugu.

Mánudagur í Reykjavík
Vaknað klukkan sjö, aftur í sund, sama stað sama aðferð. Sendi með Samskipum þrjú bretti af mublum og dóti. Það verður eins og að taka upp jólapakka þegar þetta kemur til okkar. Allir verða spenntir. Tók síðan daginn í bankaferðir. Sagði upp þjónustu Sparisjóðsins, og stofnaði reikning í Íslandsbanka. Já það er ekkert nema kostnaðurinn hjá þeim Sparisjóðsmönnum. Get nú varla mælt með þjónustunni eða gjöldunum sem borga á fyrir greiðann.
Skoðaði nýja íbúð hjá þeim Jóni Þór og Vigdís, glæsileg íbúð í nýju hverfi í Garðabæ. Allt nýtt.
Spanderaði nokkrum símtölum á ættingjana og fór síðan í matarboð í Garðabæinn. Var fínt.
Hitti síðan leigjandann og afhenti honum tryggingarvíxilinn fyrir leigunni. Þakkaði honum samstarfið og bað hann vel að lifa. Hitti kaupandann og afhenti honum lyklana að geymslunni og bílskúrnum. Sólheimarnir eru farnir í hendur annarra. Það dæmi er búið. Seðlabúntin í banka.


Þriðjudagur í Reykjavík
Allt á síðasta snúning við að gera ekki neitt. Fór með flugrútunni til Keflavíkur ásamt þýskum túrristum, spurði hvort þau þekktu Derrik en enginn kannaðist við hann. Kom til Köben um kvöldmatarleyti, beið í klukkutíma eftir lestinni og var síðan komin heim um klukkan 01. Gekk vel. Var sóttur í dönsku kvöldkyrrðinni af sambýliseiginkonunni á svarta Ljóninu sem kom öskrandi að sækja mig.

Miðvikudagur í Danmörku.
Axel Orri kom hálfsofandi sóttur af móður sinni inní hjónarúm. Sá mann í rúminu og sagði “ heyrðu er þetta pabbi ?”
(HVER ANNAR SEGI ÉG NÚ BARA). Drengurinn og systir hans sem kom fljótlega uppí, voru glöð að fá pabba sinn, og það var ljúft að fá aftur litlar tær í andlitið og pot í auga og nef.

Kristinn ferðalangur.

Counters
Web Site Counter