Helgin.Já fyrir helgina var nú tekið eitt munnlegt próf, gekk nú svona slarkandi, sko. Já maður vill alltaf meira en maður fær. Hvort sem það er í skóinn eða eitthvað annað...segi ekki meir.Djö...en það er frá þessi kúrsussinn. Nú síðdegis var afmælisveisla í Leikskólanum allir mættu með nestiskörfunar sínar og rauðvínið og tilheyrandi. Svona líka glimrandi hiti og notalegheit. Axel Orri tók þátt í skemmtiatriði sem fólst í því að leika og syngja hið rómaða dægurlag "Hjólin á Strætó snúast hring hring hring" börnin fengu öll sitt hlutverk í söngnum, einn hélt á hjólabarða, annar hélt á strætsivagnahurð og sá þriðji hafði hatt á höfði sem hefðarfrú ogsfrv....nema hvað Axel Orri sonur minn hafði það hlutverk að leika eldri hefðarmann, og að gömlum sið í Danmörku þá eru reykingar allstaðar leyfðar. Hann hélt því á þessu líka risa stóra vindli og reykti hann allt lagið.....okkur fannst þetta voða flott "ferða-útvarp" sem hann hélt á nei nei, var drengurinn ekki í hlutverki stór-reykingarmanns í leikskóla atriðinu. .....hann sagði líka við mömmu sína í dag en sagðist hafa sagt það í gríni....."mamma ég fer útí garð að reykja" kræsturinnn.......
Nú við sturtuðum bara í okkur rauðvíninu og reyndum að brosa að þessar uppeldisstefnu, en eins og áður hefur komið hér fram, þá eru stærðfræðibók dóttur okkar myndskreytt með Túborg og Carlsberg öl kössum...til að margfalda og deila...ogsonna.....já nóg um það.
Laugardagurinn var síðan afmælisdagur hjá Önnu Marín, hún bauð fjórum bestu vinkonum sínum og fengu þær ferð í tívolí allann daginn. Við fórum líka fjölskyldan og fórum í hvert hryllingstækið á fætur öðru. Gekk svona glimrandi vel og allir fjarska glaðir. Síðan fengu þær að gista útí garði í tjaldi en sökum hita varð lítið um svefn...þær ku hafa verið að kafna.
Í dag var síðan farið á ströndina og aðeins í sjóinn en hann var nú ekki sérlega heitur. Full ströndin af sólþyrstum ungum sem gömlum. Við náðum að brenna okkur og svíða af okkur skinnið, þannig að forhitun er hafin fyrir Spán. Borðað úti í kvöld og notið andartaksins. Ein ritgerð eftir þar til sumarfríið hefst....eða þann fimmtánda. Góðar stundir.
Kristinn Rauði.