Chína og Rold skógurinn.Það er nú ekki úr vegi að rifja upp stöðu mála. Hér ríkir jafnaðarástand, þannig að maður verður nú ekki fyrir aðkasti sem íslendingur af fjármálalegum ástæðum., En samúðin skín úr augun vinnufélaga og nágranna. Eftirársfríinu fer senn að ljúka en blessuð litlu börnin hafa verið í fríi þessa viku. Við höfum náð að gera eitthvað saman þessa daga en það verður erfiðara og erfiðara að þóknast öllum. Já endalausar málamiðlanir og diplómatískar leiðir er það sem þarf að gera. En við náðum þó að fara í Rold skóginn sem er stærsti skógur í Danmörku. Við þrömmuðum daglangt og enduðum á að kveikja bál, tókum með kakó og létta brauðrétti (ala samlokur). Allt var þetta í miklum kærleika og fjölskylduanda.
Í lok dags var síðan komið við á Kínversku veitingahúsi og tekið með nokkrar djúpsteiktar rækjur, kjúklingabitar og ilmandi hrísgrjón af austurlenzkum anda. Síðan var sest við sjónvarpið og horft á fjölskyldumynd meðan hinar kínversku veitingar voru gaddaðar í sig. Eftir máltíðina voru allir temmilega uppþemdir af því austurlenska og fullyrðingar einz og ....”þetta borðum við aldrei aftur” og “þetta var nú meira ógeðið”...og “usss hvað þetta var feitt og fitandi”. En nú sátu menn hljóðir,
Axel hélt því hinsvegar fram að honum væri illt í maganum, en vegna mikillar útiveru og þreytu náðum við að sussa það niður....hann gekk þó svo langt að setja á sig ennismælir og halda því fram að hann væri veikur...meira bullið. Það var því ekki annað hægt en reka drenginn í rúmið og hækka sjónvarpið. Hjónin fundu líka fyrir temmilegri upp-þembu. Tók fólk á sig náðir og gekk til hvílu.....leið nú ca. klukkustund af værum svefni þegar Axel birtist í herbergi hjónanna og segist vera slappur....og síðan bætir hann við....ég þarf að gubba....móðir hans sprettur upp, rífur hann inná bað...en ekkert kom....hann bætti þó við.....búinn að gubba sko, inní herbergi. Hrísgrjón, rækjur og kjúklingur lágu nú vel dreift á rúmlega fermeter á gólfteppinu...og lyktinni þarf ég ekki að lýsa....móðir hans hrökklaðist út. Svo faðir hans mátti standa á miðju gólfteppinu með gula gúmíhanska á nærbuxunum í netabol að þrífa gósssið.....ÞAÐ VERÐUR ALDREI KEYPTUR KÍNAMATUR Á OKKAR HEIMILI AFTUR.
Kveðja,
Kristinn ChinYanhoo.