sunnudagur, október 12, 2008

Vertu bara kúl.

Axel tilkynnti okkur við morgunverðarhlaðborðið að hann ætlaði að fá sér bæði nýja klippingu og verða kúl....ég missti nú bara útúr mér til hvers hann ætlaði að verða kúl og hann svaraði með spurningu..."Pabbi hvernig náðir þú mömmu?" Ég ekkert svar. Hann "maður verður að vera kúl" Við gátum ekki annað en hlegið og spurðum hann hvort hann væri að spá í að ná sér í konu, sem hann staðfesti að væri ekki.

Við feðgar fórum á sundæfingu í vikunni klukkutíma, og þegar út var komið var jakkinn minn horfinn, ég formælti auðvitað sundstaðnum sem er jú þekktur fyrir að vera aðsetur og vettvangur ræningja hverfisins. Þegar heim var komið hringdi í lögregluna og kærði atburðinn eftir ráðleggingum sundlaugavarðarins. Og þar sem ég stóð og ræddi þetta við dönsku rannsóknarlögregluna, sagði Axel. "En pabbi afhverju hringdir þú ekki í lögregluna síðast?" Ég "ha síðast hvað gerðist þá?" jú sagði hannn, þegar var stolið fötunum mínum sagði hann og bætti við "þú hringdir ekki í lögregluna þegar sokkunum mínum var stolið" ég átti erfitt með að útskýra þetta fyrir honum....en það var satt ég kærði aldrei þjófnaðinn á sokkunum hans.

Og annað horfði á Egil Helgason í Silfri Egils í dag tala við Jón Ásgeir, þar sem fjölmiðlamaðurinn opinberaði ekki bara sjálfan sig í fíflaskap og heimsku heldur varð allgjörlega móðursjúkur. Varð sér og fréttamiðlinum til skammar. Munurinn á stórum erlendum fréttamiðlum og þeim íslensku er fagmennskan sem tapast þegar mikið liggur við. Mætti spyrja hvort Egill sé fífl og dóni?

Kristinn fátæki.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já sá stóri Helgason var aldeilis froðufellandi í dag.

kveðjur frá gjaldþrota eyjunnni

g.thor

11:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter