mánudagur, apríl 20, 2009

Lyngbakken Paris.

Hef ákveðið heimildanna vegna að halda litla dagbók hér fyrir líf okkar með hundinum.
Þannig að viðbúið er að nokkrar færslur birtist hér.

Þetta er opinbera nafnið á hundinum okkar sem nú er tæplega 9 vikna en hjá okkur heitir hún bara Paris eftir borginni fögru. Hún hefur verið á heimilinu í 5 daga. Næturnar hafa verið erfiðar fyrir heimilisföðurinn sem vaknar ítrekað oftar en hundurinn...svolítið sérstakt og erfitt að skilja....en áhyggjur heimilisföðursins yfir því að gert sé númer 1 og númer 2 í sjónvarpsherbergið hefur valdið honum andvöku. Hundurinn hinsvegar sefur værum blundi vaknar klukkan 01, síðan 03 og síðan 06. Tekur ýmist til hægða sinna eða þessa einföldu bunu.

Við höfum þegar kennt henni að stitja, bíða og leggjast...og bætum stöðugt við hún er augnayndi og eins og með öll ungabörn...er hún best þegar hún sefur....segja systkinin.. Það hefur nefnilega gerst það sem gerist í hverju hvolpa lífi....það er glefsað hingað og þangað..og í semsagt í dag voru systkinin tekin í lexíu af ungrú París sem beit þau bæði svo ekki bara ótti við galsalætinn í hundinn varð töluverður og rispur og glefsför voru ásjánleg á báðum blessuðum börnunum.

Axel hefur hótað á fimmta degi að klippa á öll samskipti við hundinn ef hún lætur ekki af þessari hegðun, og unglingurinn hefur aldrei fyrirhitt annan eins “geðsjúkling”. Heimlisfaðirinn er þó nokkuð rispaður en af einhverjum ástæðum sem við reyndar vitum, hefur Meistarinn aldrei fengið glefs.

Þessir fyrstu fimm dagar eru því rússíbani fyrir blendnar tilfinningar í garð hunda og manna....við höfum þá alltaf 2ja ára ábyrgð samkvæmt kaupsamningnum ef illa fer.

Kv.
Hundapabbi.

þriðjudagur, janúar 06, 2009

Nýtt blogg ! ! ! !

Hef ákveðið að opna nýtt blogg þar sem tæpitungulaust verður skrifað
um líf Dönsku Draumafjölskyldunnar....afsakið óþægindin hér er slóðinn...og rúsínan í
pulsuendanum er að héðan í frá krefst lestur minna pistla aðgangsorðs. Já í ljósi þess að hvorki hefur það skilað auri né gjafa verður hér með lokað fyrir aðganginn.

En þú traustur lesandi...klikkaðu á slóðann óskaðu eftir aðgangi og ég sendi þér lykilorð um hæl. Þín bíða krassandi "skúbb-sögur" af lífi okkar og ævintýrum.
Verðum í bandi.

http://www.skanderborgin.blog.is/blog/skanderborgin/



kv. Kristinn

miðvikudagur, desember 31, 2008

Áramótaávarpið 2008.

Ég hef nú skrifað áramótaávarp frá því við fluttum til Danmerkur brot úr textunum er hér að finna......

Áramótaávarpið 2004
Vissulega höfum við átt tíma þar sem efinn, óvissan og kannski lítið eitt af einsemdinni hefur gert vart við sig. En við höfum kannski, einmitt vegna þessa sem fjölskylda kynnst eilítið betur fyrir vikið.....

Áramótaávarpið 2005

Árið hefur einkennst af veikindum og ferðalögum já bæði gleði og ógleði. Við sjálf höfum náð að aðlagast enn meir því samfélagi sem við búum í og líður vel. Við höfum nú átt svolítið við veikindi að stríða af ýmsu tagi á árinu og þurft hjálp frá sjúkrahúsum og læknum...........

Áramótaávarpið 2006

Við höfum verið hér í hæðstu hæðum og upplifað djúpar niðursveiflur. En það er svo magnað hvað við búum yfir miklum krafti á raunarstundu, og komum sjálfum okkur stöðugt á óvart.......


Áramótaávarpið 2007

Viðburðaríkt ár er senn lokið en ýmislegt hefur gengið á, við urðum hjón eftir tiltölulega langt tilhugalíf, við keyptum okkur hús, fyrirtækið varð eins árs, Axel Orri byrjaði í skóla og Anna Marín byrjaði í fermingarfræðslunni.

Áramótaávarpið 2008

Árið hefur verið okkur gott við vitum þó alltaf betur og betur hvert við viljum stefna í lífinu, og það hlýtur að vera að með aldrinum að ró og vizka færist yfir sálu manna. Og maður geri sér í raun betur og betur grein fyrir hver maður raunverulega er. Hvað maður vill gera, hvert vill maður fara, hvernig lífi maður vill lifa. Á árinu útskrifaðist ég úr háskólanum fékk fína vinnu og missti hana síðan í lok árs. Enginn alvarleg veikindi en árangursríkur fyrirtækjarekstur var allt árið þótt kreppan kæmi við marga. Sumpart finnst mér ég vera í sömu sporum og fyrir ári og að hlutirnir gangi hægt fyrir sig. Það eina sem gerist hratt, alltof hratt þetta árið var hvernig börnin mín þroskast og vaxa. Við reynum að njóta hvers augnabliks með börnunum okkar á nýju ári njóta augnabliksins og halda áfram að lifa í núinu. Ég er sannfærður um að nýtt ár verður líkt og liðin ár, ár tækifæra og sóknar, ár nýrra hugmynda og lausna. Lífið er einfaldlega skemmtilegt og alltof stutt.

Ég sendi þér lesandi góður einlægar áramótakveðjur og vona að árið verði þér og fjölskyldu þinni til gæfu og góðra verka á nýju ári. Gleðilegt ár.

Séra Kristinn.

laugardagur, desember 27, 2008

Þar skall hurðinn......

Í gærmorgun ákváðum við skyndilega að Meistarinn færi til Kaupmannahafnar að sækja foreldra sína í stað þess að ég færi af stað. Meistarinn og bróðir hennar óku af stað í hálku og þoku...og þegar 20 mín voru liðnar frá brottför til höfuðborgarinnar hringir síminn minn....Á hinum endanum er Meistarinn og það verður að segjast, frekar strekkt, æst og óróleg. Á hraðbrautinni mættu þau bíl sem keyrði á léttum hraða þetta ca 110km og þegar hann nálgaðist fór bíllinn skyndilega að rása til,ekki þeirra heldur hinn.... sem varð til þess að bíllinn rataði útí kant og ekki bara það heldur tókst á loft og valt 3 til 4 veltur. Skíðaboxið flaug af þakinu, bíllinn gjörsamlega í klessu og móðir með þrjú unglingsbörn flugu útúr bílnum....þetta sáu þau systkinin allt í beinni útsendingu frá upphafi til enda. Bíllinn hvarf síðan öðru megin við hraðbrautina sem varð til þess að enginn sá neitt sen frammhjá keyrði.

Unglingarnir voru þetta 14 til 17 ára lágu í jörðinni meðan þau systkin tóku til við fyrstu hjálp. Meistarinn hringdi á sjúkrabíl og lögreglu en hafði gleymt því góða kerfi sem hér finnst nefnilega kerfið með vegstikurnar. Á hraðbrautinni hefur hver einasta vegstika sitt númer sem gerir sjúkraliði kleyft að staðsetja viðkomandi með ca. 50 metra skekkju...Meistarinn fattaði þetta þó að lokum og þau voru staðsett. Fjórir sjúkrabílar, slökkviliðsbíll með klippur og her af lögreglum mætti á svæðið. Meistaranum var mikið brugðið en náði fljótlega jafnvægi...þarna hefði getað farið illa...ekkert blóð en mar og fótbrot og lost og líklega fleira sem óvíst er um...allir með meðvitund en föt og töskur úr jólaleyfinu útúm allt. Um afdrif fólksins vitum við ekki enn....og svo er ekki laust við að maður spyrji sig..hvað ef þetta og hvað ef hitt...Það er vafalaust erfitt að verða vitni af atburðum sem enda voflega...með dauða..sem hæglega hefði getað orðið í þessu tilfelli...og auðvitað spyr maður sig hvað nú ef...En það er nú bara þannig að það gildir einu hvort það eru jólin eða aðrir dagar lífið er óútreiknanlegt.

Kristinn Áfallahjálpari.

miðvikudagur, desember 24, 2008

Gleðileg Jól.

Eftirvænting er í húsinu, ilmur jólanna að leggjast yfir allt. Og þessi stemning sem tilheyrir jólum er að heltaka mann. Ég sendi þér lesandi góður hugheilar jólakveðjur og óska þess að þú fáir gleðileg jól.

Kristinn.

fimmtudagur, desember 18, 2008

Jólin nálgast.

Streitan og álagið er farið að gera vart við sig. Fjölskyldumeðlimir eru að komast á yfirsnúning. Svo fór að sonur minn þrætti fyrir og mótmælti harðlega röð jólasveinanna til byggða í gærkvöldi....að það var engu lagi líkt. Hann hélt því fram að röðin hefði breyst, sem þó hefur verið óbreytt frá örófi alda....Meistarinn mátti hafa sig alla við í rökfærslum og sýnidæmum, myndasögum, myndböndum og kennsluefni. En hann sonur oss, taldi þetta allt saman dómadagsþvælu. Þessi jólasveinn kemur ekki núna heldur næst. Púnktur. Á endanum fór hann í spæling og hann byrjaði að “brynna músum” sem sagt er svo fallega....eða með öðrum orðum fór hann ekki bara að grennja, orga, væla. Og var hafnað um allan lestur. Enda gerðist það í morgun að jólaveinninn sendi honum línu þar sem háttarlag hans var harðlega gagnrýnt....og þegar faðir hans gekk á hann í morgunn og spurði já með léttum húmör...stríðnis og hæðnistón....”hvað fékk nú kallinn í skóinn” þá var hann fljótur að sýna mér lítilsháttar góðgæti sem hann fékk....en blákalt starði hann í augun á mér og hélt því fram að annað hefði nú ekki borist í dag. Meistarinn sem stóð við hlið mér, gat þó ýtt undir spurninguna og ítrekað hvort ekki hefði verið fleira....Sonur minn sem er úrræðagóður brosti nú skyndilega hringinn “yfir lýginni” og hélt því fram að hann brosti af gleði. Hann væri svo glaður. En faðir hans vissi að þetta var jú glott “lyga-laupsins”. Enda fór svo að hann viðurkenndi allt og jafnframt að hann hefði farið yfir strikið en fullyrti samstundis að hann yrði allveg svakalega skemmtilegur og góður í dag....jájá show me þe monní son.

Kristinn Aðstoðarm. Jólasveinsins.

föstudagur, desember 12, 2008

Á leiðinni í hundana.

Mikið ofboðslega getur aðventan orðið manni erfið. Ég minnist þess varla að hafa farið í gegnum aðventuna án þess að lenda í miklum áttökum við heimilisfólkið. Og einmitt nú í vikunni varð semsagt ”Fyrsti í Áttökum” hjá mér og þá eru jú þrjú ”átttök” eftir. Sko í mínum huga er aðventan tími fyrir smákökur og skraut. Já sonnna eitthvað huggulegt, með nistilteininn í loftinu og soleiðis bara allveg hreint yndislegt. Kanillstangir í potti á eldavélinni sem gefur ilminn í húsið.

En nú gerðist það í vikunni að dóttir mín blessuð fékk sendingu frá Ísalandinu góða. Sendinginn voru svokallaðar ”piparjúnkur” sem hefur undanfarin ár verið sérbakaðar af móður æskuvinar hennar. Og síðan gerðist það að ég að kristnum sið ”smakkaði” á þessum köku-púddum kallaðar ”piparjúnkur”. Og þær voru virkilega góðar, já allveg æðislegar. En nú hef ég sem kunnugt er síðustu daga verið heima við undirbúning jólanna svona með skraut og kökur og huggu sko.....sem Reeeeyndar...varð til þess að ég óvart kláraði allar ”júnkurnar” Og viti menn ”Fyrsti í Átttökum” kom í gær.

Þegar Meistarinn og dóttirinn saman í liði skömmuðu og svívirtu blessað jólabarnið, mig, fyrir það að hafa borðað of mikið af smákökum. Þetta var nákvæmlega sami söngurinn og ég heyrði í fyrra....en þá mátti ekki snerta á kökunum fyrr en í fyrstalagi næstum eftir jól...Þar sem ég sat á stólnum í eldhúsinu undir gaggginu gat ég ekki annað en fundið minningarnar þjóta fyrir hugskotsjónum mínum og rifjað upp undanfarin ár....ég hefnilega svo oft og mörgum sinnum í fyrra, og hitteðfyrra og þaráður lent í þessu sama. Þær skilja það bara ekki að þessi tími, aðventunnar er tími skrauts og piparjúnka,loftkaka,engiferkökkna og súkkulaðis.

Ég viðurkenni þó að það var kannski ekki fallegt að borða AAALLAR smákökurnar sem hún fékk sendar, en þær voru virkilega vel heppnaðar í ár. Já bara allveg þrælgóðar. Og ég bauðst líka til að bæta þennan skaða með því að kaupa kleinur í bakarínu handa dóttur minni. Í öllum æsingnum kom þó aðþví að dóttir mín og Meistarinn (sem eru ótrúlegar saman í liði) voru orðnar lafmóðar af æsingi....þá bendir dóttir mín mér á að smákökurnar umræddu hefðu "tilfinningalegt gildi fyrir sig"...það átti ég sko reyndar mjög erfitt með að skilja...og hugsaði bara um hann Ólaf R þegar hún sagði þetta....En ef einhver lifandi maður skilur tilfinningalegt gildi þess að borða smákökur þá er það ég. Ég elska smákökur.

Kristinn Piparkökudrengurinn.

Counters
Web Site Counter