föstudagur, apríl 27, 2007

Helgarpistill - Kristinn á Hlíðarenda.


“Heyrðu vinurinn viltu nú ekki róa þig niður” heyrði ég nágrannan huxa þar sem hann labbaði frammhjá með grábröndóttann púdill hund innpakkaðann í breskt Börberrí bómullartross. Já ég hægði ósjálfrátt á mér og róaði mig niður. Skömmu áður hafði ég skipað krökkunum að koma sér burt og færa sig frá. Sjálfur tók ég mér stöðu á nýja fimm metra stóra trambolíninu okkar og hoppaði eins og ég hefði gjörsamlega tapað glórunni. “Krakkar, snautið burt” sagði ég. Og stökk eins og Gunnar á Hlíðarenda í öllum fötunum, upp fleiri,fleiri metra og fann hvílíkann ógnarkraft ég hafði í höndum og fótum. Þarna hoppaði ég, blóð-rauður í framann, slefandi af áfergju og ótta um að mér yrði stungið inn, hjalaði með sjálfum mér og stundi í hverju hoppi af áreynslu...upp niður, sundur, saman....Ég hálf fullorðinn karlmaður í nýja íbúðarhverfinu okkar vakti greinilega athygli allra nágranna. New kid in town.... Þetta ætlar að verða hin besta skemmtun að nota svona trambólín og ég er strax farinn að hlakka til að hoppa í kvöld.

Ég hafði þó varann á, í búðinni og spurði ég karlmann á miðjum aldri í afgreiðslunni, varfærnislega hvort það væri óhætt fyrir t.d móður þeirra að hoppa á þessu, hún hefði svo gaman af svona...löguðu.... Það stóð ekki á svarinu frá Herrr Lars “ Heyrðu kallinn minn, hún getur verið hundrað kíló, ég segi hundrað kíló að þyngd og hoppað eins hátt og hún lifandi getur, trambolínið þolir hundrað kíló-mann, og þrefaldaðu það kallinn minn. Þrefaldaðu það, trambolínið mun halda” sem sagt hátt í þrjúhundruð kíló geta hamast á trambolínu eins og ekkert C.” Ég þakkaði Lars og það var ekki laust við að ég keyrði hraðar heim, reif upp trambolínið og krakkarnir urðu svona líka rosalega glaðir..tímabundið eða þangað til ég rak þau inn að leika sér....snautið burt.....TRAMBOLÍNIÐ er mittt.


Kristinn SkoppandiHoppandi.

þriðjudagur, apríl 24, 2007

Tilvondandi njósnari í húsinu.


Sonur minn sagði mér í morgunn að hann ætlaði að verða njósnari þegar hann yrði stór. “nú já er það” sagði ég með þó nokkurri undrun. Því ég hafði ekki heyrt um áhuga hans á þessu starfi fyrr. Hann bætti þá við “en ég get ekki ákveðið hvort ég verð flugmaður, njósnari eða lögga” og var svona grettinn í framann. Ég sagði þá við hann að hann gæti bara orðið allt þetta, hann þyrfti ekki að velja, hann gæti bara verið það sem hann langaði til.....en þá kom útskýring sem ég hafði ekki áttað mig á....”pabbi maður getur ekki verið bæði njósnari (hann notar reyndar danska orðið Spíjón”) og flugmaður, maður getur heldur ekki verið njósnari og lögga, vegna þess að ef maður er spíjón þá getur maður dáið, það oft verið að deyja (lesist: myrða eða drepa) spíjónan”. Sagði hann með miklum áherslum og nokkuð pirraður í tóninum.

Ég vildi þó reyna ennfrekar að sannfæra hann um að hann gæti verið bæði flugmaður og Spíjón. En hann bætti við “Spíjón getur til dæmis fengið agúrku sem er búið að setja gift í (setja eitur í) og þá deyr maður og þá getur maður ekki flugið (lesist: flogið)” Þetta hafði ég nú ekki hugleitt og ég get ekki ímyndað mér hvaða kvöldsögur afi hans hefur lesið fyrir hann hér í heimsókninni eða hvaða netsíður drengurinn hefur verið að þvælast inná núna, jeminneini.


Kristinn Bond James Bond.

mánudagur, apríl 23, 2007

Flutningar og Fermingar.


Já sæl að nýju góðir hálsar, þetta var töff, já það hefur verið umtalsvert álaga á manni undanfarið og ekki laust við að síþreytan sé að taka öll völd. Það er búið að mála og flytja, og mála aftur og afhenda. Já auðvitað varð það svo að við þuftum að mála meira en gert var ráð fyrir. Eftir að hinir geðþekku skólakennararar fluttu út og tóku niður sín málverk, sátu í raun málverkin ennþá á veggjunum....Ladý með glans 10 var því þrusað á alla veggi hátt og lágt og betrekkkið er á leið til landsins. Svo þótt málingarvinnu sé lokið er þetta ekki búið. Síðan málaði ég sjálfur hátt og lágt okkar fyrri íbúð og Meistarinn kom svo og sótthreinsaði og ræsti allt út með eyrnapinna og tanstöngli. Enda þegar kom að sýningardegi hjá leigufélaginu...spurði Knoll og Tott “kaahjerna hafiði ekkert búið hérna...svona góð umgengni sést nú bara ekki” Það þýddi síðan að fyrirfgramgreiðslan og tryggingarféð mun skila sér óskaddað.....


Móður Amman og afinn komu hingað um páskana og hjálpuðu rækilega til, hér voru endalaus ljós tengd og séð til þess að hver vinnumaður fékk reglulega næringu. Ömmu pönnukökur bakaðar og sælubrosið viðstöðulaust á krökkunum. Meistarinn tók sér frí frá fyrirtækinu og tók sér pensil í hönd og ég veit ekki hvað og hvað.


Nú er lifið að færast í réttar skorður enda búið að þrífa penslana og veruleikinn tekinn við. Vorum þó með þéttsetna dagskrá um helgina, áfram unnið að uppsetningum á heimilinu en eitt stykki fermingarveisla tekinn með trompi sl. sunnudag. Já Meistarinn tók á móti fermingarbarninu 06:27 á sunnudagsmorgni til að setja upp hár og síðan mættum við í dansk-þýska fermingarveislu í hádeginu, sem síðan stóð til klukkan átjánhundruð. Það gekk fínt og óskuðu nokkrir veislugestir eftir að fá að komast í meðhöndlun hjá Meistaranum vegna framúrskarandi fegurðar á hári fermingarkrakkans. Já já já alles gúdd sagði ég alltaf tilbúinn með nafnspjöldin og alltaf tilbúinn á þýsku...og veifaði þeim hátt á loft það er útlit fyrir fjölgun í kúnnahópnum sem þó er nú stór fyrir.


Kristinn Málarameistari.

mánudagur, apríl 02, 2007

Helgi, Helgi.

Fór í æfingarbúðir um helgina, já málaði eitt stykki íbúð í miðbæ Orhús. Tók að mér aukaverkefni...Já það var bara frá morgni til kvölds. Og í lok dags fann ég hvorki fyrir rasskinnum né öðrum útlimum..þetta tók svo sannarlega á. (Ég notaði þó hefðbundinn verkfæri við verkið). En það var þess virði. Meistarinn var að vinna og það er bara ekkert öðruvísi en mars mánuður er stærsti mánuður frá upphafi, og það hrúgast inn kúnnarnir. Þær þykja ótrúlega liprar í faginu og fagmenn frammí fingurgóma (sem ég reyndar vissi). Kjaftasagann um frábæra frísöra gengur um bæinn og allt er í ljóma.

Já og síðan var viðskiptafundur í rekstrarráði stofunnar þar sem ég (formaðurinn) og næsti-formaður Jan fórum yfir stöðuna. Ræddum reksturinn og skoðuðum rekstraráætlanir og ég veit ekki hvað og hvað. Við mættum til þeirra í morgunkaffi og ég stóðst ekki freistinguna og fór í einkennisbúninginn okkar með svart bindi. Hvítu spariskyrtuna mína með lógói stofunnar.....Brunuðum síðan heim og svarta Ljónið var bónað svo hrikalega að annað eins hefur ekki sést lengi, Derrik kom og sagði “það er nú aldeilis þrifið” og ég gat staðfest að t.t.móðir væri á leiðinni og það væri ekki annað hægt en bjóða henni í hreinan bílinn.

Dagarnir líða hratt, heimilið er í rúst hér allt komið á hvolfi og líf okkar er að pakkast í pappakassa. Og við erum nánast með spennu-niðurgang hér allann daginn, spenna og eftirvænting allt í einum pakka, flutningar og afi og amma á næsta leyti.


Kristinn Íspreng.

Counters
Web Site Counter