miðvikudagur, september 26, 2007

Ást er miklar væntingar.......

Svona hljóðar speki dagsins þann 21.september sl. í Morgunblaðinu. Já það er ekki að sperja aðþví og hvernig veit ég það. Jú frumburður tengdaforeldra minna lét ekki sitt eftir liggja þegar hann átti að senda okkur hjónum kveðjur í tilefni af brúðkaupsafmælinu okkar. Og viti í dag kom svo bleikt og fagurt kort sem bar okkur kveðju hans og einmitt teiknimyndin Ást er..... úr hinu merka Morgunblaði. Já hann er ekki sooo galinnn kallinnn...þegar hann tekur sig til.

Kristinn Ást.

föstudagur, september 21, 2007

Helgparistill – Róandi samkvæmt sjálfráði.

“Kottu sæll og blessaður þetta er flutningamaðurinn sem talar Nílsen hér” akkurat sagði ég í simann þið eruð semsagt á leiðinni. Ég og konan mín höfðum nefnilega pantað sófa fyrir FIMM vikum síðan, ég skrifa aftur 5 vikum síðan og nú var hann loksins tilbúinn. Nílsen sagði svo: “við verðum hjá þér eftir augnablik” Ekkert mál sagði ég og lagði já. Nú birtist tólf hjóla trukkur fyrir utan húsið með liftu og alles, út stekkur Herr Nílsen og sérlegur aðstoðarmaður hans lærlingur Jensen. Hefjast þeir nú handa við að taka sófann úr bílnum og setja á hjólbörurnar sínar....”já já það er líklega best að koma hér bakvið með þetta sko í gegnum garðinn” sagði ég við þá. En skipti mér ekki frekar aðþví. Enda ljóst að Herr Nílsen og Lærlingur Jensen eru augsýnilega þaulvanir mublu-útkeyrslu menn, þreklega vaxnir ofan beltisstað. Þar sem ég stend í stofunni tilbúinn að taka á móti fimm vikna sófanum heyri ég skyndilega...”æ æ æ, Jensen, stopp,,,Nílsen bíddu” Ég stenst ekki mátið og labba rösklega útúr stofunni og þar sem ég birtist í svalahurðinni sé ég nýja sófann minn, fljúgja í stéttina...Herr Nílsen og Lærlingur Jensen gala hvor á annan heffurrru annnn....ert a missannnn....og simmsalabimm...sófinn veltur yfir grindverkið í garðinum, kollsteypist yfir handriðið, dettur í róssarunnan með tilheyrandi þyrnum....braki og brestum...ég fölna upp.....Herr Nílsen stendur álengdar skömmustulegur....”hva þett a alltí lagi þetta er svo vel pakkað inn sko” Lyfta þeir nú sófanum aftur upp og gera sig líklega til að bera hann inní húsið... Lærlingur Jensen fer á undann og Herr Nílsen ýtir á eftir...stendur nú sófinn eitthvað á sér í gatinu svo Herr Nílsen ýtir með miklum krafti á eftir sófanum svo hann hlunkast inná stofugólfið...Lærlingur Jensen galar eitthvað um að sófinn hafi líklega lent á löppinni á sér og barmar sér mikið. Ég eigandi sófanz er nú orðinn svo skelkaður á þessu öllu saman að ég má vart mæla. Herr Nílsen og Lærlingur Jensen leggjast síðan framm á olnboga sér á sófabríkinni og andvarpa ógurlega.....ég labba til þeirra skjálfandi af bræði á meðferð nýja sófans og segi þeim að ég geri ráð fyrir að sófinn sé í lagi eftir þessa meðferð...Herr Nílsen lítur á mig hálffrussandi með svitadropa á nefinu “hvaaa, þetta e soo velpakkað mann”. Þeir fara í flýti. Ég pakka sófanum út. Sófinn er rifinn,skakkur, rispaður og marinn og búið að brjóta af einni löppinni. Ég hringi í húsgagnabúðina, helli mér yfir sölumanninn og segi honum að senda nýjann sófa....”agalegt segir hann, heyrðu við björgum þessu það kemur nýr sófi eftir tvær vikur þú mátt bara hafa hinn sófann á meðann sko”. Ég legg tólið á og tek valíum töflunar sem líklega amma mín gleymdi hér um árið sezt í ónýta sófann og finn hvernig ég slaka á í hverjum vöðva ég get nú setið glaður hér um helgina. Góðar stundir.

Kristinn Sófus.

þriðjudagur, september 18, 2007

Veislan búinn.


Þetta varð líka svona glimrandi fín veisla sem tókst framar vonum. Fyrstu gestir mættu í kokteilinn klukkan fjögur og þeir síðustu fóru heim klukkan tvö. Það er ekki hægt að segja annað en þetta hafi tekist vel, og þótti vinum okkar þetta mjög svo skemmtilegt. Jú jú einhverjar voru ræðurnar og sonna....annars nefndi nú sonur vor það hvort ekki væri hægt að hafa færri gesti næst hann gæti bara ekki vakað svona lengi. En það var spjallað mikið og töluvert rætt um dönsku kunnáttu hjónanna sem þykir hafa tekið miklum framförum. Já og töluvert af gjöfum bárust í hús. Himneskt bara. Annars er allt við það sama, Meistarinn fær reglulega nýrnasteinakast og er að skilja við, ég farinn að skoða heimasíður um stress-less, Anna Marín kvefuð og Axel Orri danskur. Svo þetta er nú bara allt eins og best verður á kosið. Er ekki lífið yndislegt.


Kristinn Becks.

föstudagur, september 14, 2007

Veisla um helgina.

“Guðminn almáttugur og Alla sjálfur” hrökk ég upp við að EIGINKONA mín sagði í nótt. Í svitakasti og með angistargrettu, uppgötvaði hún að veislan sem við ætlum að halda nú um helgina er í stórkostlegu uppnámi....hrikalegu uppnámi. Við erum nú búinn að kaupa allar veitingarnar bæði fljótandi og tyggjanlegar. Við ákváðum að hafa þetta einrétta það er bjóða liðinu í kaldann hamborgarahrygg. Salat og allt mögulegt. Dökkur og ljós öl, og sterkt eftir matinn. Já, sko veislan er svona síðsumar veisla sem við ákváðum að halda fyrir nokkra vini okkar sem hjálpuðu til við flutninga og hafa verið almennilegir frá upphafi....já semsagt matseðillinn klár og eiginkona mín með köfnunartilfinningu og súrefnisskort í hjónarúminu okkar. “veistu Kristinn, veistu hvað ég var að átta mig á?” Nei ég hafði nú ekki humynd um það.....”Við verðum að breyta matseðlinum” Ekki var ég nú að átta mig á ástæðunni en skyndilega fattaði ég að við höfðum boðið Achmed MedSalem Orhann, frá Bosníu sem er góður vinur okkar og hann hefur aldrei nokkurtímann borðað neitt sem tengist svínum. Og hann mun ekki byja á því í veislunni okkar....það er ljóst....Þetta kallar maður að eiga alþjóðlega vini. Nú munum við finna útúr því í dag, hvað við bjóðum uppá fyrir Múslimina sem koma. Það er ljóst að það verður ekki svínahnakki eða hamborgarhryggur eða purusteik....nokkrar hugmyndir ?


Kristinn Grís.

þriðjudagur, september 11, 2007

Axel Orri 6 ára.

Við vorum óróleg í maga og tókum róandi áður en gestirnir mættu. Bekkjarbræður Axels Orra voru hingað boðaðir í veislu. Sl. Sunnudag var haldið uppá afmæli drengsins, en dagurinn sá rétti er vitanlega 10.sept. Já hingað komu þeir allir sem einn og það var nú fróðlegt. Maður sá fljótlega hvernig samfélag sex ára er. Einn neitaði að koma inn og skilja við pabba sinn, stóð hér vælandi fyrir utan og þorði ekki inn. Ég sagði að þeir feðgar mættu allveg koma báðir....en það tókst ekki. Þeir hjóluðu einn hring og komu svo, samt var hinn nú kjökrandi áfram. Pabbinn fylgdi honum inní herbergi og hann hætti bölvuðu vælinu. Stuttur tími leið og hann var sá fjörugasti í afmælinu og neitaði að fara heim. Þegar við hentum þeim öllum út klukkan 1700. Þá hafði afmælið staðið síðan tvö. Við Anna Marín tókum að okkur skipulag og stjórnun leikja. Og vorum við gjörsamlega á fullu að finna nýja leiki...og þá kom uppí manni gamli skáta skrattinn....og við hlupum í skarðið...það þekkti þeir ekki en þótti fyndið...nema Jakob....þegar Jakob átti að hlaupa þá hvöttu hann allir og hrópuðu nafnið hans...skyndilega stoppaði Jakob og fór að HÁ-Há grenja...”ég vill ekki láta kalla nafnið mitt” Og þar með hætti hann í leiknum...við fórum þá í stórfiskaleik....Jakob náðist og átti að vera ‘ann...Jakob snar stoppaði og fór að Há, há grenja.....Við Anna Marín krossuðum okkur....svona hélt þetta áfram og Jakob náði líklega að grenja fjórum eða fimm sinnum áður en hann snautaði heim....grenjuskjóða....

Afmælið endaði í fjársjóðsleit í skóginum þar sem faðir afmælisdrengins klæddist skikju og góðum búning og hlóp öskrandi á eftir afmælisgestunum....og kastaði í þá eplum af eplatrénu okkar...það þótti þeim skemmtilegt.. Axel Orri var svona líka hrikalega ánæðgur með veisluna sína og spurði oft gestina hvort þeim fyndist þetta ekki bara vera kúúl veisla. Hann var glaður og við urðum það líka.

Kristinn ÖskrandiLjón.

fimmtudagur, september 06, 2007

Gömul tíðindi og ný.....


Já takk kærlega fyrir öll símtölin, en æðislegt að fá svona mikil viðbrögð við íslenska símanúmerinu....sem ég keypti í sumar fyrir okurfé....og virkar ekki rassÍbala....allavega hringir enginn. Takk kærlega fyrir.....nú en að öðrum fréttum.....Endurgift já eða þannig fórum í tvöfallt fertugsafmæli og 10 ára brúðkaupsafmæli um helgina til vina okkar Dorit og Torben. Já þau buðu til feiknarinnar veislu með gistingu og tilheyrandi. Vorum bara í 15 mín fjarlægð frá heimili okkar og þessum hrikalega huggulega stað. Síðdegiskaffi, kvöldmatur, öl og vín og morgunmatur.


Já ekki slæmt. Maður tók nú samt mátulega mikið á því sko...enda sprækur í messu á sunnudag. Já við feðginin mættum í okkar fyrstu fermingarundirbúnings kirkjuferð. Og það var nú heldur betur skemmtilegt...já já....það er ótrúlegt hvað það getur verið leiðinlegt að sitja í messu. Já það vantar alla skemmtun og grín. Og kórinn...jeminn eini....þar voru fjórir pensjónistar og einn sem vildi tryggja að rödd sín heyrðist...je-dúdda-mía. Það var ljótur söngur, hræðilegur söngur. Presturinn er þó á miðjum aldri og í lokinn sýndi hann myndband með Mækel Jaksson, já eitt stykki myndband til að tala um trúnna, vonina og hið góða. Earth Song heitir lagið og á að nota í fræðuslunni. Það var bara gott hjá honum. Og hefur örugglega gripið athygli einhverja. En líkt og hjá mér er mætingarskylda fermingarbarna í messu...og síðan sagði presturinn “Krakkar þið þurfið að mæta 8 sinnum í messu...en krakkar ef þið mætið 10 sinnum þá fær ALLLURRR bekkurinn FLÖÖÐUBOLLUR....og síðan bætti hann við OOG ef einhver mætir 20 sinnum þá fær sko allur bekkkurinn AFTUR FLÖÐUBOLLUR” Já það er nú pottþétt að þarna náði Prestley heldur betur til krakkanna..(þau flissuðu).....flöðubollur og þú mætir 20 sinnum í messuna....er maðurinn bilaður !!!!!!!

Axel Orri var tæpur um helgina að verða veikur, hann jaðrar við að fá síþreytu einkenni, enda var síðasta vika ansi þétt setinn hjá honum. Fótbolti og Sund og langir dagar...en það slappp ennþá. Sagðist þó vera slappur í morgunn.

Anna Marín hefur lagt sundfötin á hilluna. Já það var nú ekki sérstaklega í þökk föður síns sem það gerðist. Og þrátt fyrir hrikalega há peningarleg áheit og frækilegann stuðning við sund þjálfunina. Hafnaði hún allgjörlega að synda meir....eins og hún er góð...og eins og ég er vatnshræddur.... Heyður góðir gestir birtust hér...fyrrum landar okkar í Danmörku eða þannig Sigrún og Gylfi Þór....þau sem leiddu okkur í sannleikann um hið Danska líf hér úti á sínum tíma. Það var skemmtilegt og óvænt.

Allavega maður er jú alltaf að plögga og kynntist vélaverkfræðingi um helgina sem hannar heyrnartól fyrir heyrnarlausa, og er á leið í hönnun fyrir sjálfa Sennheizer...já maður fær kannski heyrnatól á góðum prís þegar það gerist. Kosturinn við svona veislur er að makarnir fá jú ekki að sitja saman og dregið var um sæta skipann...og ég var bara nokkuð sáttur. Þangað til ein borðdamann hlustaði á frásögn mína um lífið í Danmörku og sagði “já spennandi allveg eins og ævintýri, bara eins og gerðist hjá Pretty Woman” nei hættu nú mannfýla hugsaði ég. Þú færð ævisögu mína og líkir mér við hóru....ég helti nú aftur í glasið mitt og stakk uppí mig stórum bita.

Kristinn Sundkappi.

Counters
Web Site Counter