sunnudagur, apríl 20, 2008

“Það ernú bara þannig vinur minn”

Þessi heimsfræga setning hefur Auperinn tönglast á alla vikuna enda setning sem á alltaf við. Hann ku hafa lært þetta af einhverjum fisksala í Reykjavíkinni. Nú er það bara þannig að þessi texti er ekki handpikkaður á lyklaborðið nei heldur er þetta skrifað með svökölluðu munn-stykki. Enda eru hendur mínar sárþjáðar og vöðvaslit um allann líkamann. Hér í borginni hefur verið löng helgi sem þýðir að síðustu þrír dagar í langri helgi, hefur verið varið í garðinum. Við erum gjörsamlega búinn að vera frá morgni til kvölds að klippa, rækta og raka garðinn svo annað eins hefur ekki gerst. Auperinn er sárþjóður kominn með blöðrur í alla lófa....en hann hefur þó verið iðinn að smakka á þýskalandsbirgðunum sem hann verslaði sér og hefur við höfðargaflinn. Það hefur gefið honum líf. Við tókum okkur til eftir að hafa lesið nokkrar garðbækurnar að henda hekkinu að framanverðu, rífa upp með rótum, flísaleggja innkeyrsluna, planta nokkrum barrtrjám, stinga upp rósarbeðið, henda matjurtargarðinum og tæta illgresið. Garðurinn er sem nýr en verkið aðeins hálfnað. Sólinn leikur við okkur og kvölds og morgna og miðjan dag er kaffið drukkið úti.

Og í lokinn nú er orðið svo náið og gott samband með Aupernum að þegar ég í vikunni keyrði son minn á fótboltaæfingu og Auperinn sat í framsætinu þar sem alla jafna situr Meistarinn.....spyr Auperinn eitthvað á þessa leið “Var Axel Orri búinn að taka með sér úlpúna sína?” Ég sem er með allann hugann við aksturinn að bakka útúr innkeyrslunni svaraði að bragði “Hann sonur okkar”................. Misstum við báðir andann stundarkorn enda óvíst með öllu að okkur hefði nokkurntímann líffræðilega verið mögulegt að eignast hann Axel Orra son minn samann. Bað ég nú Auperinn eftir þetta að sitja afturí því ég ætti því ekki að venjast að aðrir fullorðnir en sjálfur Meistarinn sæti í framsætinu.


Kristinn Hrífa.

sunnudagur, apríl 06, 2008

Au-pair hjá okkur.

Langþráður draumur hefur ræst við létum verða að því að fá okkur au-pair til að létta undir með okkur lífið. Þetta tilkynnti ég aldraðri móður minni ekki fyrir mjög laungu síðan. “hvað ertu að segja kominn með ojjj-per?”...”hver er þessi stúlka....hvar á hún að gista...tekur hún MINN svefnsófa....Hverjir eru foreldrar hennar?...Er þetta útlendingur....Hvernig verður þetta eiginlega” Þegar ég svo loksins komst að gat ég sagt henni fyrir það fyrsta að ojj-perinn væri ekki stúlka heldur drengur. Vel uppalinn og geðgóður. “núúúúú” sagði þá móðir mín....ég hélt síðan áfram að útskýra að þetta væri jú bara hin svokallaða “kaffe-latte-baun” sem heitir svo og er aldrei kallaður annað af syni mínum, vegna fyrri starfa á vegum Merrrild...en þetta er semsagt bróðir Meistaranz sem hér hefur fengið inni hjá osss.

Nýjasta nýtt er að hann hefur fengið feitann bita hjá Bau-haus. Og ákvað ásamt sambýliskonu sinni og börnum að selja húsið sitt í snarhasti, losa sig við bílana og flytja til Danmerkur og skipta um djob. Þetta kláruðu þau á nokkrum dögum. Og nú er hann semsagt kominn til okkar og býr hér þangað til hann hefur fengið sitt eigið. Hann er okkar Au-pair...móðir... ekki “Ojjj-per”. Hann er því byrjaður á vinnustaðnum, ég er hinsvegar ennþá á “skilorði” í vinnunni með gagnvirkan prufutíma í þrjá mánuði....ég mun að öllum líkindum meta stöðuna svona hlupandi hvernig þau mál munu þróast....Það er ótrúlega öflugt fólk sem vinnur þarna, skemtilegur andi og mikill eldmóður.....

Auperinn og ég og sonurinn vorum allann daginn í gær að þrífa garðinn og kenna aupernum á danska öl-menningu. Hann hefur engu gleymt og jafnt og þétt sem hann þreif og málaði grillið fyrir áttök sumarsinz skolaði hann niður nokkrum grænum. Grillið er sem nýtt og stirnir á.


Kristinn fósturfaðir.

Counters
Web Site Counter