Ferðalög.
Anna Marín er farin í næsta ferðalag sitt. Nú er að slottið hans Jóakims frænda og allt það sem því tilheyrir niður við landamæri Danmerkur og Þýskalands. Fjórir dagar framundan með verkefnum og skemmtiatriðum segir hún. Við feðginin fórum niður á lestarstöð í morgunn já mætt þangað sjö-fimmtán. Það var rétt eins og allt heimlisfólkið væri að vakna í flug til Majorka á sjöundaáratugnum, þegar flug til útlanda voru þetta milli 5 og 6 á morgnanna.....já hér datt ég nú aðeins ofaní sögubrunninn..
Nú hún semsagt kemur heim á föstudag. Ég er búinn í fyrsta prófinu og gekk bara ágætlega hvað mig varðar, en hvað prófessornum fannst er óvíst og kemur víst í ljós síðar. Svarið endaði í 3.989 orðum vel innan við fjögurþúsundin. Svo það var sem mælt var fyrir um.
Já svona öðlast myndir fortíðar nýtt líf, fann ég ekki bara gamla mynd af mér og nýja borgarstjóranum í Reykjavík í laxveiði sem við fórum saman hér um árið, í Elliðaánum. Stöndum við ekki bara þarna í faðmlögum við laxabúnka sem við lönduðum báðir tveir Ég þó örlítið fleiri en hann....(innsk. Íslandsmeistarinnn og matreiðslumeistarinn á Eldri Borgurum hjálpaði mér reyndar með þetta hann Guðmundur Jónsson). En við semsagt vorum í fluguveiði að veiða lax. Heyrðu en myndina er ég búinn að setja í ramma og skrifa á dönsku að þetta sé borgarstjórinn í höfuðborg Íslands, og síðan setti ég líka mynd þar sem sambýliskona mín stendur við hlið hans á hóteli á Írlandi, bæði búin að fá sér í glas, en við fórum einmitt með honum á sínum tíma til Írlands á árshátíð. Ótrúlegt en satt, ég veit það. Villi minn þú ert bestur. Við þekkjum þig.
Kristinn Borgarbarn.
