Bifo forstjórinn, maður orða sinna.
Eftir að ég var búinn að vera í rúma þrjá mánuði að vinna var komið að samtali. Ég réð mig í fyrirtækið í mars og þá stóðu sem hæðst launasamtöl við alla starfsmennina. Það er nefnilega þannig í Bifo að einu sinni á ári koma allir inn til forstjórans og biðja um kauphækkun og ræða liðna tíð. Þetta gerist semsagt í mars. Nú ég byrja þarna í mars þegar þetta er í gangi og því segir forstjórinn við mig, "heyrðu Kristinn þú ert nú búinn að vera svo stutt, en við höldum fund þegar þú ert búinn að vera þrjá mánuði". "Já auðvitað" sagði ég, "við gerum það". En það var nefnilega þannig í upphafi rætt um það að ég yrði í þrjá mánuði í pruftíma og síðan yrði sest niður og rætt um framhaldið, kaup og kjör. Þetta samþykkti minn næsti yfirmaður, sá sem réð mig inn í fyrirtækið í upphafi og allt í góðu með það.
Nú liðu þessir þrír mánuðir og gott betur. Ég óskaði því eftir að nú skyldi haldið samtal. Og fór ég til forstjórans nú í júlí mánuði, fjórum mánuðum eftir að ég byrjaði. Og sagði "gott og vel nú vill ég ræða um störf mín hér og hvernig staðan á þessu öllu er" . Þá sagði forstjórinn, "heyrðu þar sem þú ert nú bara búinn að vera svo stutt, þá ég get ómögulega sagt til um það hvernig starfsmaður þú ert. Ég hef hvorki heyrt neitt slæmt um þig eða neitt gott". "Nú" sagði ég, "það er nefnilega það, akkurat".
En þá spurði forstjórinn en hvað mér sýndist svona almennt um fyrirtækið. Og hafði ég þá um það nokkur orð, svona uppbyggilega gagnrýni um nokkur atriði sem höfðu verið til umræðu í deildinni sem ég tilheyri. Og bara kom með nokkrar ábendingar og svona. Það er til dæmis búið að sameina tvær deildir í eina. Og ég vinn í þessari deild. Mér hefur hinsvegar sýnst að deildirnar vinna alls ekki í takt, og henda svona "drullukökum" hvor aðra. Yfirmaður minn er yfirmaður þessara deildar sem hafa sameinast. Nú svo ég sagði forstjóranum það að mér þætti þetta nokkuð sérkennilegt og það þyrfti allveg örugglega að ýta með einhverjum hætti undir ef sameina ætti þessar deildir, og tók sem dæmi hina skotheldu hugmynd um svona óformlegan vinnudag með bland af gleði og vinnu, þar sem væri hægt að grilla í dagslok eða eitthvað álíka.
"Tja", sagði forstjórinn "já athyglisvert við munum nú sjá til með það, en við munum nú gefa þessu svona tvö til þrjú ár og sjá hvort þetta lagist ekki. Þetta gerist nú svona bara hægt og rólega og kemur örugglega af sjálfu sér" sagði forstjórinn .
"já þú segir það,það kann að vera en ég efast nú um það" sagði ég.
Við ræddum saman í góða stund, og forstjórinn skrifaði niður af miklum krafti, mér til mikillar ánægju vitanlega. Nú síðan lauk fundinum og ekki var rætt um launin. Þá sagði Kristinn, "nú vill ég að þú ræðir við minn næsta yfirmann og komist að því hvernig starfsmaður ég er. Og síðan skulum við funda aftur og ræða um framhaldið, þegar þú hefur upplýsingar um það". Forstjórinn brást vel við þessu og sagði "Já já akkurat, ég geri það og við tölum síðan saman, hinsvegar er ég að fara í sumarfrí en við skulum hittast í byrjun ágúst og þá verð ég búinn að kynna mér þetta betur" sagði hann. Nú til þess að tryggja þetta stóð ég upp og tók í hendina á manninum og þakkaði honum fyrir spjallið.
Nú í síðustu viku kom forstjórinn úr sumarfríi og því var ákveðið að við skyldum þrír setjast niður og ræða málin. Ég, minn næsti yfirmaður og forstjórinn. Áður en fundurinn var haldinn, sem átti að vera svona spjall. Var honum frestað fjórum sinnum af forstjóranum. Hann hafði ýmist ekki tíma eða var að gera eitthvað annað. "Já já Kristinn minn, komdu bara seinna kallinn minn"
Síðan hófst fundurinn um seint og síðir, rétt áður en vinnudegi mínum átti að ljúka eða fimmtán mínútum áður en ég átti að sækja drenginn til dagmömmunnar. Og hann hófst á þessari setningu úr munni forstjórans: "ég hef nú rætt við yfirmann þinn, um það sem við ræddum á okkar síðasta fundi. Við höfum einnig rætt um það sem við ætlum að ræða síðar. Og þá hef ég líka rætt við hann um það sem við ræðum í dag." Þessu náði ég bara ekki og ég sá að minn næsti yfirmaður skildi heldur ekki hvað forstjórinn var að fara.
Nú tók yfirmaður minn til máls og sló mig miklum gullhömrum svo jaðraði við að vera væmið. Já þessi starfsmaður er til fyrirmyndar, kraftmikill, sýnir frumkvæði og mikinn áhuga, gengur vel að umgangast samstarfsmenn sína og fær góðar umsagnir frá samstarfsmönnum sínum...."og ég veit ekki hvað og hvað.....semsagt nánast fullkomið geðheilbrigðis- og vinnuvottorð"
Þegar klukkan var orðin meira en hún átti að verða, og drengurinn kominn á deadlæn hjá dagmömmunni. Sagði Kristinn litli, "já já þetta er allt saman voðalega fínt" En hvað um launasamtalið sem átti að vera hér eftir þrjá mánuði og var rætt um strax í upphafi, nú eftir að komnar eru upplýsingar um mig sem starfsmann hér ?"
Þá sagði forstjórinn "jú sjáðu til Kristinn, hér fara sko launasamtölin fram í mars mánuði ár hvert, og þá förum við yfir stöðuna og metum þetta allt saman, það er allveg ljóst að þú ert prýðisstarfsmaður og hef ég fengið upplýsingar um það frá þínum yfirmanni, en síðan hef ég nú líka augu í höfðinu" (innsk.þetta með augun í höfðinu fannst mér allgjör snilld þegar ég kom heim og hugsaði um samtalið, maður á nú eftir að nota þennan frasa)
Þá gat nú Kristinn litli ekki orðabundist og sagði " bíddu en hvað um samkomulag mitt við yfirmannin við ráðningu að þessi mál yrðu rædd eftir þrjá mánuði þegar vitað væri hvort maðurinn (ég) gæti unnið eða ekki?" "tja" sagði forstjórinn, "ég var nú ekki á þessum fundi með ykkur og get því ekki sagt neitt til um það sko" "ha" sagði ég þá.
Og snéri mér í snarhasti að mínum næsta yfirmanni og sagði "Kannast þú ekki við og er það ekki rétt munað og eftir þér haft að við ætluðum að ræða launamál ásamt öðrum málum að þremur mánuðum liðnum ? " Þá sagði minn næsti yfirmaður þessa yndislegu setningu " hummm, ja ég var sko líka að tala um mars viðtölin" og þá endurtók Kristinn litli "Ræddum við ekki um það að ræða sérstaklega um launin eftir þrjá mánuði ?" og næsti yfirmaður svaraði "jú það passar, akkurat, jú jú ".
Og þá snéri Kristinn litli höfðinu í átt að forstjóranum og horfði djúpt í augu forstjórans sem lyfti öxlum sínum uppað eyrum og sagði " nú hva...ég get ekkert sagt, þetta hlýtur bara að vera einhver misskilningur, þetta er nú bara ekki svona hér hjá okkur í Bifo, þessi samtöl eru alltaf í mars" sagði forstjórinn.
Tíminn var liðinn, ég stóð upp, komin langt framyfir leyfilegan dagvistunartíma hjá drengnum. Niðurstaðan er jú sú að "næsti yfirmaður" hefur ekkert umboð til samninga, og er í þeirri afkáralegu stöðu að ráða engu um þau mál sem hann fjallar um. ...Heyrðu annars, hann sagði líka frá því á fundinum að hann ætlar að bjóða sko allri deildinni í grill heim til sín núna fjótlega "já svona hrista þetta svolítið saman" Stuðla að sameiningu deildarinnar, eining sko....
Og hver er niðurstaðan, Litli Lagermaðurinn fer bara heim til sín með skottið (innsk.hér myndi Axel líklega nefna rillann...en það á ekki við) á milli lappanna, með tárin í augunum, hálf vælandi yfir stöðunni. Hugsandi um það hversu bágt það er að vera fótum troðinn. Og hvernig þeir sem teljast til stjórnenda í fyrirtækjum eiga EKKI að haga sér.
Safnast nú í visku- og reynslubrunnin um það hvað aðskilur góða stjórnendur frá þeim lélegu.
Virðing og sanngirni gagnvart starfsfólki er eitt af lykilatriðunum í að ná góðum árangri og til þess að fá fólk til að vinna með sér og í þágu þess fyrirtækis sem það starfar hjá. Kannski er þetta ástæðan fyrir lélegum og hugmyndalausum starfsmannafundum í Bifo í viku hverri, kannski er þetta ástæðan fyrir því að starfsfólkið bíður eftir að "klukkan verði" til að stimpla sig út. Kannski er þetta ástæðan fyrir metnaðarleysi starfsmanna til að huga að vinnuumhverfi sínu og afköstum.
Kristinn Vinnusálfræðingur.