Festival og Derrik rekinn.
Jæja þá er Festivalinu lokið og þau 30 þúsund sem hingað komin, búin að snauta heim til sín. Það hefur nú verið tekið saman í fjölmiðlum nokkrum sinnum hvernig útkoman hafi verið. Og sjaldan eða aldrei hefur eins mikið verið selt af fljótandi veitingum og nú. Það var tiltekið í einum fréttatímanum að seldar hefðu verið fimmtíuogsexþúsund flöskur af svona Breezer, sem er sambland af áfengi og ávaxtadrykk. Vínandinn eins og í bjór. Já það rann rösklega niður og ekki bara það.....
....heldur fór nú vinnufélaginn og nýgiftur Morten á festivalið á sunnudag. En þá var lokakvöldið. með Pet Shop Boys ofl.....um klukkan ellefu á mánudagsmorgunn hringdi eiginkonan í vinnuna og spurði hvort hann væri við. Neibb var svarið, hann hafði ekki mætt. Svo kappinn hafði tekið rösklega á því á sunnudagskvöldinu og ekki skilað sér heim...Fer engum sögum aðþví hvaða mótttökur kappinn fékk síðdegis þegar eiginkonan kom heim frá vinnnu þennan mánudag til mæðu fyrir hann. Sveiattann, alltaf kom maður heim nú að lokum þótt það hafi verið seint...ussss sveiattann.
Anna Marín hefur nú tekist í annað skipti að týna húslyklunum sínum. Barnið er bara ekki með öllum mjalla í þessum efnum. Og faðirinn tók æðiskast í kjölfarið en mátti vart mæla sökum hneykslunnar og úrræðaleysis.
Axel Orri er duglegur að heilsa og ræða við Derrik og frú Klein, en við reynum hér viðstöðulaust að skjótas hér út og inn úr húsi án samskipta við þau. Já maður verður að tempra niður samskiptin við lögregluforingjann....en viti menn hann sagði mér það hér þegar ég sótti reiðhjólið mitt í skúrinn einn morguninn. Að hann skyldi næsta hálfa árið hugga sæ bara heima og slaka á. Jú jú hann hafði verið rekinn úr vinnunni og skyldi ekki mæta þar meir. Svo hann ætlar að fara í heimilisþvottinn ofl. Hljómar kunnulega ! ! !
Ég hef ekki haft geð í mér að skiptast á reynslusögum við hann, það gæti endað í tómri vitleysu. Hann barði nú hér að dyrum í fyrrakvöld og bauð okkur til rauðvínsdrykkju í garðinum hjá sér með frúnni. Við afþökkuðum pent, kannski næst Derrik, kannski næst.
Kristinn í vinnu.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home