Útvist og sjóböð.
Fórum í dag til Orhúss. Já lögðum bílnum á góðum stað við höfnina, bílastæði sem ég hafði fengið upplýsingar um hjá vinnufélaga mínum. Fundum það með léttum leik og brugðum okkur á Strikið. Fórum fyrst í eitt af stóru verslunarhúsununum Brúns gallerí, því okkur vantaði könnu til að búa til svona freyðandi mjólk útí kaffið. Fundum þessa sérstöku könnu á endanum. Og getum nú lagað kaffi með ekta kaffihúsastemmingu hér útí garði hjá okkur. Röltum aðeins um í miðbænum, sáum einn lappalausann fiðluleikara (gáfum honum ekkert). Síðan voru spilandi feðgar annar á fiðlu og hin á harmonikku, vínlykt af þeim báðum. (við gáfum þeim ekki neitt heldur).
Nú eftir miðbæjarröltið fórum við síðan á ströndina sem er rétt hjá okkur hér í Skannebooo. Þar var nú heldur betur margt að sjá...já þar voru nú léttklæddir eldriborgarar og fólk á miðjum aldri og síðan unglingar eins og ég. Börnin fóru í sjóinn og stunduðu sjóböð af miklum krafti. Og svo fór á endanum að Axel Orri krafðist þess að ganga um nakinn... jú eitthvað sem faðir hans hafði einnig langað að gera en lét ekki eftir sér í þessari ferð.
Og Axel Orri gerði meira en það, því hann gerði sér það að leik nokkrum sinnum að setjast svona á hækjur sér og prófaði nokkrum sinnum að finna freyðandi hafið leika við endann á sér. Já drengurinn fann þarna upp einhverja aðferð sem virtist gera honum gott. Mun sjálfur prófa þetta í næstu ferð. Síðan þótti honum afar frumlegt að beygja sig framm nánast með höfuðið niður fyrir hné róta í sandinum...en beygja sig ekki sentimeter í hnjánum sem varð til þess að hann stóð í þrígang þarna beint fyrir framan okkur, svo greina mátti í blessuðu barninu komandi endajaxla...þetta er hinsvegar eitthvað sem faðir hans mun ekki prófa. Drengurin hljóp þarna um allt á "rillanum" og var hinn ánægðasti. Við fórum síðan heim eftir velheppnaðann dag og höfðum ein-rétta ítalska máltíð, pisssu.
Kristinn Strandkappi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home