föstudagur, september 23, 2005

Helgarpistill – Læknamistök


Það var bara ekkert öðruvísi en svoleiðis að faðir minn blessaður var að versla í Hagkaupum. Og þar sem hann stóð við kjötborðið og beið afgreiðslu á marinieruðu lambafíle. Kemur maður og stígur á stóru tánna á honum. Já takk fyrir, í miðju sumargrill vertíðinni er stígið á stóru tánna á ‘onum. Hann kveinkar sér nú ekki í fyrstu en þegar líður á vikuna ágerist verkurinn og hann verður viðþolslaus. Fer til læknis og fær síðan þann úrskurð að það verði að gera veigamikla aðgerð á stóru tánni á honum. Líður nú og bíður...vikurnar og mánuðurnir, haltur sem með starufót væri staulast hann um á stóru tánni. En í vikunni rann upp sá dagur þar sem hann var kallaður í aðgerð á stóru tánni.

Aðgerðin var þannig að staðdeyfa varð á honum fótinn, svo hann yrði vita máttlaus í öllum fætinum. Þar sem faðir minn með fulla rænu legst útaf á skurðstofunni á Suðurlandsbraut, fer svæfinga- og deyfingalæknirinn að ræða við hann. Þeir ná í samræðum sínum að fara lauslega fyrir Baugsmálið, ástandið í heimsmálunum og síðan að lokum ræða um Kára Stefánsson lækni...en þar sem Svæfinga- og deyfingalæknirinn sleppir orðinu þar sem hann segir “tja Kári hann er nú meiri kallinn....” þá gerist það, þá skyndilega gellur í lækninum, svo hátt og snjallt að ekki varð um villst hvað var á ferðinni....læknirinn segir “guðminn almáttugur heyrðu væni, ég er búinn að deyfa upp á þér rangann fót, það var hægri fóturinn sem átti að deyfa en ekki vinstri, anskotands vitleysa” Já það var nefnilega það.

Faðir minn kominn á miðjan aldur var gjörsamlega tilfinningalaus í báðum fótum og mátti yngri sonur hans keyra hann út í hjólastól eftir aðgerðina, sem lamaður væri. Fá nágrannannan hinumegin við götuna til að halda undir í “kóngastól” þar sem faðir minn var borinn inná heimili sitt. Deyfingin var svo öflug í báðum fótum, þeim veika og honum hressa að faðir minn hefur ekkert komist um heimili sitt síðustu tuttugutímana. Aðgerðin gekk hinsvegar vel og hann fær hjúkrun frá sjúkraliðanum eiginkonu inni....ég segi nú bara GANGI þér vel pabbi.

Í skólanum er ég nú farinn að tala meira við samnemendur mína sem hafa verið feimnir svona í fyrstu. Kom í ljós að ein af þeim hafði verið á Íslandi fyrir nokkru síðan....og ekki bara það heldur hafði lært töluvert í íslensku. Ég sperrti nú eyrun enda alltaf gaman að vita af fólki sem leggur á sig málrækt og lærir ný tungumál. Sá ég fyrir mér að kannski væri hægt að ræða við hana á Íslensku.....nei sjáðu til sagði hún “ég lærði nokkur orð eða öllu heldur var kennt nokkur orð, komst síðan að því að þetta voru öll helstu dóna- og blotsyrði íslenskrar tungu. Ég hinsvegar lærði eina setninu. Mig setti hljóðan og hélt niður í mér andanum. Og hún sagði...jú viltu heyra setninguna....ég svaraði ekki af spenningi en kinkaði kolli.....hún sagði “Þjjú hjefur ddrugggið altt Freskaað mit”
Sagði hún mér síðan að Freskað væri einhver magnaðasti drykkur sem hún hefði smakkað...ég er að vinna í því að útvega henni flösku.


Kristinn Andalæknir.

fimmtudagur, september 15, 2005

Afmæli í leikskólanum.

Fórum með slönguköku í leikskólann í gær fyrir Axel Orra. Krakkarnir urðu hrikalega glaðir og ánægðir, hökkuðu í sig kökuna og ég mátti svara kökulaus heim á ný. Annars er það nú bara nákvæmlega eitt ár síðan Axel Orri hin heimsfrægi handleggsbrotnaði. Já það var á þessum degi í fyrra. Þegar ég sagði við mömmu hans “hvaaa...huggaðu hann bara, hann jafnar sig....” Hann endaði í næturgistingu á spítala svæfður og tilheyrandi til að rétta hendina, eins og áður hefur verið skrifað. Hann komst þó áfallalust í gegnum þennan dag og þökkum við fyrir það.

Ég sjálfur er hinsvegar að upplifa nýja háskólatíma, þar sem tjáningin er ofar öllu öðru. Þannig er að í stað þess að sitja með Tyrknesku stelpunum eins og ég gerði í fyrra, sem ýmist flissuðu eða töluðu um Kebab á tyrkneskri ensku, .þá eru dönsku stúdendtarnir allir á því að vinna í hóp og spjalla saman. Það reynir því verulega á nýja tegund af orðaforða hjá mínum. Þar sem dönsku orðaforðinn minn, um veðrið, matseld, barnauppeldi, sjónvarpsdagskránna og sitthvað fleira dugar ekki. Og það verður að segjast að það mun taka á og tekur á að sitja undir bullinu á eftir bullinu útúr samnemendum sínum án þess að geta talað um sömu hluti frá hjartanu. Það vantar einfaldlega orðaforðann til að tjá sig, þótt skilningurinn sé nú á málinu....já mér líður eins og Marý sem sagði frá því hvað hún var heft að geta í viðræðum sína við kóngafólkið ekki skipt yfir í móðurmálið.

Það má því segja að maður sé að læra málið uppá nýtt, amk frá annarri hlið. Ég hef hinsvegar spjallað við nokkra og þeir hafa allir skilið mig, svo það er stutt í að ég fari að segja mínar skoðanir á hlutunum....þetta er að koma....vonandi....


Kristinn Mállausi.

þriðjudagur, september 13, 2005

Leikskólaferð og Anna Marín missir hárið.

Axel Orri fór í ferð með leikskólanum í gær, þar sem siglt var útí litla eyju sem liggur hér nálægt meginlandinu. Þetta var 10 mín sigling á eyju í Horsens firði. En þar búa 182 manneskjur og hæðsti punktur eyjarinner eru 7 metrar yfir sjó. Já það vantar ekki ævintýrin. Hann var mjög ánægður eins og allir krakkarnir en þau voru víst eitthvað mis þreytt á þessu ævintýri....fjórir urðu "meðvitundarlausir" á leiðinni heim...steinsofnuðu og reyndis erfitt að vekja þau.

Anna Marín undir áhrifum nágranna vinkonu sinnar ákvað að nú skyldi hún fá klippingu. Það varð úr að móðir hennar skerti hár hennar verulega líklega um 20 centimetra....og er það þó nokkuð mikil breyting. En hún er mjög ánægð.

Skólinn er á fullu og maður er bara uppgefinn.

Kristinn skólabók.

laugardagur, september 10, 2005

Axel Orri 4 ára.

Dagurinn er kominn. Drengurinn hefur beðið alla vikuna eftir deginum. Stöðgugur samanburður í stærð og lengd við alla fjölskyldumeðlimi hefur verið linnulaus síðustu daga. Honum finnst hann bæði hafa stækkað og orðið sterkari, meiri vöðvar.

Það verður hátíðarveisla hér í dag, þar sem fjölskyldan mun sameinast við afmælisborðið og horfa á drenginn taka upp pakka sem hann hefur fengið senda frá Íslandinu. Hann er búinn að vera mjög spenntur.

Fjögur ár eru ekki langur tími, en við höfum séð mikla breytingu á honum eftir að við fluttum hingað hann er ekki bara orðinn danskari og klaufalegri, heldur er ýmislegt annað sem hefur breyst. Þau eru þó afar ólík systkinin og við höfum ósjaldan rifjað upp hvernig systir hans var/er í háttum. Hún vaknar snemm, hann vill sofa út, hann kýlir og slær, hún hörfar. Hann stríðir og hrekkir, hún ekki. En þau grína bæði svo eitthvað er sameiginlegt. Sjúkrahúsaheimsóknir er þó eitthvað sem hann gjörsamlega hefur toppað í fjölskyldunni...hann hefur í raun verið eins og Dr. Saxi segði "góður sjúklingur".....það er kemur oft.

En það er gott að það eru ekki allir eins, tilveran væri dapurleg ef svo væri. Hver er líkur sjálfum sér og það er best. Axel Orri minn, til hamingju með afmælið.

Kristinn Pabbi.

miðvikudagur, september 07, 2005

Brúðkaup, skírn og dans.


Ein af fóstrunum hjá Axel Orra gifti sig sl.laugardag. Og það hafði verið planað að börnin skyldu mæta við kirkjuhliðið þegar hún labbaði út. Við skunduðum þarna niður eftir og fylgdust með. Þar sem brúðurinn birtist í kirkjutröppunum og er að labba niður sést uppundir kjólnum þar sem hún er í háum kúrekastígvélum. Hvítpússuðum við vorum sammála um að Bjerte (skrifað samkv.framburði) hefði þarna verið klædd nákvæmlega eins og hún kemur okkur fyrir sjónir á hverjum degi. Hún er svona gamall rokkari en þó með snyrtimennskuna í fyrirrúmi. Þetta var hrikalega kúl, og ekki laust við að maður hafi fengið nokkrar brúðkaupshugmyndir......bíllinn þeirra sem er amerískur Chervolett, pallbíll með átta síld-a vél beið við kirkjuna með dósum og tilheyrandi. Þetta var virkilega töff. Og hún var greinilega heilluð af því að við skyldum mæta við dyrnar.

Morten og Marlene skírðu son sinn á sunnudag og okkur var boðið til veislu, komumst að því eftir að hafa spurt fleiri álits að það sem boðið var uppá í veislunni er venja frekar en ekki. Við mættum í kirkjuna klukkan 10 og sátum í messu í 60 mínútur. Það er svolítið merkilegt að hver einasti sálmur sem sunginn var og þeir voru jú nokkrir.... Þeir hafa allir þetta sex til 10 erindi...og ekki....og ekki einu einasta erindi var sleppt í þessari messu....maður var nú aðeins farinn að gapa svona undir restina. Veislan var síðan að messu lokinni drengurinn heitir William, en þau höfðu sagt okkur áður að nafnið Valdimar hefði komið sterklega til greina sem okkur þótti skemmtilegt.

Við mættum í veisluna já og þá beið okkar fordrykkur Blush með jarðaberi, dekkað borð til hádegismatar og síðan var boðið uppá rauðvín, hvítvín og bjór. Svona rétt eins og maður gat í sig látið...klukkan var þá um hálfeitt leytið....já léttar veitingar í skírnarveislu eru bara sjálfsagður hlutur hér.

Nú erum við byrjuð á ný í dansskólanum og það er ekkert öðruvísi en það að heimsfrægur dani leiðbeinir okkur, já danskennarinn keppti nefnilega til úrslita hér í gríðarlega vinsælum dansþætti í sjónvarpinu. Og við horfðum á hana á hverjum laugardegi í næstum tvo mánuði. Ég auðvitað heilsaði henni og reyndi að ræða við hana svona hvernig hún hefði það og svoleiðis...ég meina ég þekki hana....en hún virtist ekkert kannast við mig.

Kristinn Veruleikaskerti.

fimmtudagur, september 01, 2005

Fyrsti skóladagurinn.

Er byrjaður og fór í tvo kúrsa í dag, annan sem fjallar um áhrif fjölmiðla á stjórnmál og hinn kúrsinn um spillingu í stjórnmálum. Þegar ég síðan kynnti mig fyrir bekknum (eins og allir hinir) sagðist ég koma jú frá litlu landi og það væri því spennandi að sjá hvað sagt væri um spillingu í stjórnkerfi eins og því sem ég þekki. Prófessorinn svaraði því til baka að það væru jú spennandi tímar í þeim fræðum á Íslandi í ljósi nýjustu tíðinda. Og átti þá við dönsku kaupsýslumennina Geislabaugsfeðga. Annars eru allir mínir kúrsar á dönsku þessa önnina og það mun því reyna svolítið á orðaforða og tjáningu. Tilkynnti reyndar samnemdendum mínum strax, að jú vissulega lærðum við dönsku í íslenskum skólum en þætti hún ekkert sérstaklega spennandi. Og þar að auki væri hún aldrei töluð og það skýrði e.t.v þennan norræna hreim sem ég hefði í minni dönsku....Og þá hló skríllinn.

Annars komu Morten og fjölskylda til okkar í mat í gær. En við förum í skírn hjá fjölskyldunni nk. sunnudag.

Þetta legst vel í mig, og verður vafalaust spennandi misseri. Það var líka tilkynnt að ákveðið hefði verið að prentsmiðja háskólans yrði lögð niður. Nú eiga nemendur í gegnum heimasíðu háskólans að nálgast sitt lesefni. Allt skal vera rafrænt. Ekki meiri pappír.


Kristinn Skólakrakki.

Counters
Web Site Counter