Leikskólaferð og Anna Marín missir hárið.
Axel Orri fór í ferð með leikskólanum í gær, þar sem siglt var útí litla eyju sem liggur hér nálægt meginlandinu. Þetta var 10 mín sigling á eyju í Horsens firði. En þar búa 182 manneskjur og hæðsti punktur eyjarinner eru 7 metrar yfir sjó. Já það vantar ekki ævintýrin. Hann var mjög ánægður eins og allir krakkarnir en þau voru víst eitthvað mis þreytt á þessu ævintýri....fjórir urðu "meðvitundarlausir" á leiðinni heim...steinsofnuðu og reyndis erfitt að vekja þau.
Anna Marín undir áhrifum nágranna vinkonu sinnar ákvað að nú skyldi hún fá klippingu. Það varð úr að móðir hennar skerti hár hennar verulega líklega um 20 centimetra....og er það þó nokkuð mikil breyting. En hún er mjög ánægð.
Skólinn er á fullu og maður er bara uppgefinn.
Kristinn skólabók.

2 Comments:
Gaman að lesa um börnin, gott að þau fái að njóta sín, glæsileg börn sen þú átt. Mér fynns hafa borið all mikið á brúðkaupsskrifum í pislunum síðusu vikur, er það fyrirboði..... nei ég er bara að hugsa upphátt eð svart á hvítu.
Ertu kominn á Skúúúú..... ? Þótist sjá þig í g...... Kveðja Amain
Ágæti Amain !
Nei ekki er maður kominn í bænahug, það þarf nú að kynnast áður en maður tekur stórar ákvarðanir í lífinu. En maður er alltaf að safna að sér hugmyndum um hvernig hið eina sanna brúðkaup skal haldið...en ég læt þig vita.
kv. Kristinn.
Skrifa ummæli
<< Home