þriðjudagur, ágúst 23, 2005

Dómharka.

Helgin var prýðileg fyrir okkur sem sækjum ekki fasta vinnu sko...það er mig og blessuð litlu börnin. En hárgreiðslumeistarinn átti anna saman dag...brúðkaupsgreiðslur útum allan bæ, þó ekki á sjálfri sér sko...ho ho ho..nei nei...ekkki enn. Hún hafði sagt mér að hún yrði að fara heim til viðskiptavinar og laga hárið á viðkomandi, þar sem hún það er kúnnin væri að fara gifta sig. En málið væri að hún treysti sér ekki á hárgreiðslustofuna, hún hefði ekki úthald að sitja í þeim hávaða og glundroða sem þar ríkir öllum stundum. Og ekki bara það heldur var ákveðið að hafa tvær brúðkaupsveislur laugardag og sunnudag...því hún var ekki viss um að geta haldið út sko allan fjöldan í einni veislu....jahérna hér.

Já og hvað gerist kviknar ekki upp í manni fordómarnir á ný og fúkyrðin nánast fljúga útur manni...”nei fjandinn hafi það getur hún ekki mætt á stofuna eins og aðrir”....”hvaða rugl er nú þetta getur fólk ekki orðið heyft á sér rassgatið” og svo komu einhverjar fleiri setningar sem ég man ekki....ekki lengur. Þar sem ljóst var í mínum huga var að hér væri kona nálægt breytingarskeiðinu og gæti bara ekki hlunkast niðurá stofuna.... “nei það gengur ekki, hún treystir sér ekki” sagði Dagmar.

Jæja hún fer og klippir og lagar konuna til. Ég og börnin förum niður í bæ á móts við meistarann. Sem kemur útúr brúðkaupshúsinu eftir hátt í tveggja tíma greiðslu....og áfram hélt maður bara ekki áfram með fordómana...” hvaða ofboðslega tíma tekur þetta”....”gat hún ekki setið kyrr eða hvað?”....”jújú” sagði Dagmar þetta gekk bara ágætlega. Og ég hélt áfram “Og hvað afhverju í ósköpunum gat hún ekki komið á stofuna eins og aðrir”. Og þá kom skýringin.

Brúðurinn er rétt um þrítugt, tágrönn og minnir á fyrisætumódel, myndarleg og ber af sér mikinn þokka. Spilaði handbolta með Danska Landsliðinu og keppti fyrir þeirra hönd á Ólympíuleikunum...en hún hinsvegar eftir að hafa spilað handbolta í mörg ár, varð oft fyrir þungum höfuðhöggum þar sem boltinn hafði ítrekað farið í höfuðið á henni. Hún býr nú við skert úthald, og mikla röskun, einbeitingarskort og tekur stöðugt lyf til að halda út daginn. Er öryrki. Getur hvorki umgengist fjölskyldu sína, vini eða ættingja án reglulegrar hvíldar. Hárgreiðslumeistarinn mátti stoppa nokkrum sinnum því úthaldið var þrotið í stólnum. Eftir að hárgreiðslan hafði verið sett upp og brúðurinn klár, varð hún að fara og hvíla sig lengi á eftir.

Ég sagði ekki meir og sá eftir dómhörkunni og í raun bjánalegum hugsunarhætti mínum. Maður ætti stundum að fara hægar í að dæma fólk án þess að vita um það sem býr að baki. Kynna sér frekar forsöguna eða þá að sleppa því að hafa orð á því sem maður þekkir ekki. En um leið og maður þekkir söguna, líta þá í eigin barm og meta það hvað maður sjálfur kann að hafa það gott, á við svo marga aðra.

Séra Kristinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter