HC. Kristinsson
Fórum í dag til Óðinsvé já menningarferð til að líta á og hitta HC. Andersen og það tókst. Við mættum við húsið hans og í sömu svipan var haldinn sýning undir berum himni þar sem flestar sögupersónurnar spruttu fram ljóslifandi Og hann sjálfur. Já það var ekki laust við að maður dytti ofaní sambanburð við Disney. Enda stóð ég sjálfan mig aðþví að kalla inní miðri leiksýningu “hvar er Mikki, Guffi og Mína ?” Fljótlega kom vörðurinn og þaggaði niður í mér. Nei annars maður hélt aftur af sér og sagði ekki neitt. Klappaði fyrir leikurunum og tók myndir.
Óðinsvé er þriðji stærsti bærinn í Danmörku og við örkuðum um miðbæinn og á göngugötuna, sem er æði stór. En eins og í stórborgum þá heyrist með reglulegu millibili í sjúkra og lögreglubílum. Og er við vorum rétt kominn að gatnamótunum við enda göngugötunar heyrum við skyndilega í sjúkrabíl og þar sem hann nálgast okkur á leið sinni áfram sjáum við hvar stærðar mótorhjól með manni, kemur á fullri ferð á móts við sjúkrabílinn. Bíll á annarri akrein fipast eitthvað við skjúkrabílinn og sveigir fyrir mótarhjólið sem reynir í sömu andrá að beygja, tekst ekki. Mótorhjólakappinn fellur í götuna og rennur eftir henni líkega 20 til 30 metra á ógnarhraða. Hár hvellur og dynkur heyrist, brothljóð.
En mótorhjólarkappinn stendur þó upp sem stálfjöður og það glittir í löngutöng hjá kappanum í gegnum mótorhjólahanskann sinn, sem vísað er til miðaldra karlmanns á bílnum sem sveigði fyrir hann. Og var nú kominn útúr bílnum með úfið hárið. Hjólið þó nokkuð skemmt en kappinn sem var vel varinn bara rispaður. Sjúkrabíllinn sem var í útkalli fullvisaði sig um að enginn hefði slasast setti ljós og hljóð á og keyrði í burt. Um mínútu síðar kom næsti skjúkrabíll til að skafa mótorhjólamanninn upp sem þurfti þó ekki.
Allt gerðist þetta á ótrúlega skömmum tíma og nánast eins og í bíómynd, skransið í mótorhjólinu, brothljóð og dynkurinn. Allt sáum við og ég náði meira að segja nokkrum myndum af atburðinum. En þar sem enginn dó, eða slasaðist eru þær líklega verðlitlar myndirnar.
Kristinn Paparatzí

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home