Axel Orri á spítala – París í uppnámi.
Þriðjudaginn í síðustu viku varð Axel Orri eitthvað slappur, kom inn um níuleytið eftir að hafa fengið að fara út eftir mat að leika með öllum krökkunum. Um nóttina var hann orðinn ansi heitur og miðvikudagsmorgunn var hann kominn með 39 stiga hita. Hann kastaði upp nokkrum sinnum yfir daginn, og hitinn hélt áfram að vera hár.
Fórum með hann til læknis í hádeginu á miðvikudag.
Læknirinn: “látum okkur sjá, slappur já soltið slappur að sjá og með hita, það er einmitt það, já og kasta upp...hummm...sko...jú heyriði hann er með flensu. Taka það bara rólega í nokkra daga og hann jafnar sig eftir skamma stund. Gefiði þessu fjóra, fimm daga. Bless bless” Við fórum heim.
Fimmtudagur. Neitar að borða og hitinn hár. Mikill hiti utan dyra, allt opið í gegn en allir svitna bara í hitanum. Reynt að setja kalda bakstra á enni og maga...kastar áfram upp og hitinn ennþá um 39 stig.
Föstudagur. Enn er hitinn hár ekki mikið sofið þessar nætur og kvartar stöðugut um í maga, hefur núna ekkert borðað og þá meina ég EKKERT síðan í kvöldmatatímanum sl. þriðjudag.
Laugardagsmorgunn eftir svefnlitla nótt. Mældur og persónulegt hitamet slegið 40,3 gráður á mælinum. Jerimías. Hringt í læknirinn og við beðinn að koma til vaktlæknis inní Aarhus.
Læknirinn “humm, látum okkur sjá, já slappur og lítið borðað en hvað eitthvað drukkið, nú lítið já, ha, humm eiginlega ekki neitt. Þanebbilga þa. Já þetta er nú sennilega flensa, það er bara drekkar svolítið og sjá til, hann ætti nú að hressast svona á þriðjudaginn þá ætti hann að vera hitalaus. Já já svo þið komið frá Íslandi já það er skemmtilegt..jæja það held ég nú. Bless bless”
Sunnudagur. Hitinn ennþá hár eða um 39. Neitar að borða, var eiginlega tekinn með valdi í kvöld og foreldrar drengsins reyndu að þvinga mat ofaní son sinn. Kom í ljós að hann var ekki með öllu kraftlaus, því ofaná móðurlega-þvermóðsku barðist drengurinn af öllum lífs og sálarkröftum á móti fljótandi fæði. “nei ég vill ekki neitt” og hann stóð við það.
Mánudagur. Mældur er með 38,6 stig, hringt í lækninn.
Læknirinn: “humm já ég man eftir ykkur, hlustaður, skoðaður, þuklaður. Neibb, ég veit ekki hvað er að drengnum, hann verður að fara á barnadeildina inní Aarhus í rannsókn.
Mánudagur um kl.400, tekinn blóðprufa, þvagprufa, þuklaðaur og mældur.
Læknirinn “já þið hafið verið þolinmóð, hann verður lagður inn hér í dag, fær næringu í æð, skortir næringu og vökva. Er með heiftarlega veiru-sýkingu og getur einfaldlega ekki borðað eða drukkið. Mun fá lyf næstu sólarhringa sem munu koma honum í gang.
Okeyyyy.....nk. Laugardag bíður okkar Hótelið í París, Disneyland með öllum sínum furðuverum. Komumst við í sumarfrí þangað á Laugardaginn ?
Læknirinn: “Ég skal segja ykkur það, það er ekkert annað, Axel þú heppinn á að fara í Disneyland. Komist eða komist ekki....ekki gott að segja, það verður að koma í ljós. Bless bless, kvöldvaktin tekur við”
Kristinn Sjúkrabílstjóri.

2 Comments:
Þeir eru ekki skárri þeir hinir dönsku læknar en íslensku doktorarnir, þú mátt alveg hampa þeim. Einn íslenskan hitti ég á stofu í hinni Konunglegu, var sár fyrir brjóst, mjög sár. Þetta er bronkittis eða berkjubólga, ekket við því að gera, en ef heppnin er með þér gæti orðið úr þessu lungnabólga og hana má lækna.Kv Amain
Já þeir fara sínu framm. Hinsvegar hefur maður nú áttað sig á þeirri taktík að ýkja amk. um 60% um veikindi sín vilji maður sem fullorðinn fá einhver viðbröð læknanna. Setningar sem kenndar eru í læknisfræðinni eins og "Heyrðu kallinn, já þetta er flensa komdu aftur eftir vikuna ef þú verður ekki skárri" hljómar eins og setningar sem maður lærir í stjórnmálafræðinni "Heyrðu kallinn, við setjum málið í nefnd"
Nei hér verður brjóstvitið að taka völdin og haldi maður annað en doktor Saxi er rétt að halda því til streitu hvað sem tautar og raular.
Kv. Kristinn
Skrifa ummæli
<< Home