Hjónaskilnaður.
Hvernig ætli það að sé að vera giftur í 50 ár? Ég veit það ekki en það er langt í frá að vera sjálfgefið að nokkrum manni takist það. Ég í raun dáist að slíku fólki sem afrekar slíkt. Ég hef áður skrifað um þá miklu hátíð sem danir halda þegar fagnað er 25 ára brúðkaupsafmælinu. Já og það er í raun kannski ekki svo skrýtið að umfangið er svo mikið sem raun ber vitni, allir fagna. Það er kannski svo sjaldgæft að menn haldi svo lengi út á Íslandi að ekki hefur tekist að mynda slíka hefð sem í Danmörku. Tuttugu og fimm ár er svo sannarlega ástæða til að fagna og kannski bara hverju árinu sem líður.
Ég fékk að gjöf tvær nýjustu plötur Bubba, þar sem hann syngur um hjónaskilnað sinn.
Sama kvöld settist ég niður og hlustaði á plöturnar, og um tvö leytið var ég orðinn svo skelfilega dapur og sorgmæddur að ég varð að koma mér í svefn..hálf-vælandi....
Við hlustuðum síðan á þetta í bílnum og þegar platan var hálfnuð var ég beðinn um að skipta yfir á útvarpið. Það er magnað að hlusta á lögin og rýna í textana sem Bubbi skrifar um stöðu sína eftir hjónaskilnað. Textinn er næstum óþægilega nákvæmur og persónulegur og manni birtist ljóslifandi sú ömurlega staða sem hann og líklega allir sem farið hafa í gengum sömu reynslu upplifa. Bubbi syngur í :
Strákurinn.
Kvöldið líður eins og vera ber
Lesa bók og spjalla stutta stund
Horfa á hann sofa líkist þér
Og ég þakka og ég þakka
Okkar fyrsta fund.
Ágreiningur, sárindi og sársauki. Orð látin falla sem séð er eftir, gagnrýni kanski úr hörðustu átt. Hann segir nefnilega á öðrum stað:
Stjórna og stýra.
Bara neikvætt bara slæmt
Heyri þig tala þungt er dæmt
Engin minning góð og ljúf
Köld í framan hörð og hrjúf
Aldrei að líta í eigin barm
Flýja í vinnu eigin harm
Aldrei að stoppa og staldra við
Kyrrðin er ógnandi og þessi bið
Síðan leitar hugurinn í uppgjöf, allt er farið, horfið, búið spil.
Þar syngur Bubbi í:
Einn dagur enn.
Stundum er sársaukinn of mikill
Að dauðinn verður lausn og lykill
Burtu frá því lífi sem þú lifir
Framkvæma og þú ert kominn yfir.
Líkt og enginn bók hefur uppskrift eða lausn á uppeldi barna er enginn bók, sem segir hvernig halda skuli áfram sambúðinni/hjónabandinu. Það er aldrei sjálfgefið að í upphafi þrátt fyrir fögur orð í kirkjuskrúða og fögur orð, líði tíminn saman til dauðadags. Íhugið stöðuna, vandið ykkur, hugsið ykkur um. Bubbi þig vantar ekkert nema hempuna mína, þú hefur aldrei verið betri og í góðri messu næðum við að bjarga mörgum sálum. Gangi þér vel.
Séra Kristinn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home