fimmtudagur, maí 12, 2005

Svik og prettir (úr móður ættinni)

Ég sit og held á gemsanum mínum, slæ inn númerið heima hjá mér og ...ring ...ring...ring..og það er svarað.....

“Halló þetta er Axel”
“Blessaður Axel minn, hvað segirðu gott ?”
“Bara allt gott”
“Jæja hvað ertu að gera ?”
“Ég er að leika við Önnu Marín en hún vill ekki hleypa mér inn”
“Nú hvað ertu að segja, jæja kallinn en heyrðu komdu með mömmu þinni að
sækja mig ég er á lestarstöðinni”
“Neiiiii, ég vill það ekki, ég vill vera heima leika við Önnu Marín”
“Axel minn láttu ekki svona komdu bara með mömmu þinni ég bíð á lestarstöðinni”
“Nei ég kem ekki, ég nenni því ekki”
“Hvað er þetta drengur, leyfðu mér að tala við mömmu þína”
“Heyrðu pabbi, hún er ekki heima”
“Haa er hún ekki heima, nú hvar er hún ?”
“Hún fór bara út”
“jæja leyfðu mér þá að tala við Önnu Marín”
“Hún er inní herbergi”
“Jæja þá, ég hringi þá í mömmu þína bara í gemsann, við heyrumst þá bara, ég kem bráðum heim og verð að drífa mig”

Skyndilega heyri ég bak við drenginn.....

“Axel Orri ég er víst heima, hvað ertu að plata ?”
“nei ég ekkert að plata”
“Axel Orri þú ert víst að plata pabba þinn”
“neiiiii ég var bara að ekkert að segja”
“Halló, halló”
“Dagmar hva ertu heima, geturðu komið að sækja mig ?”
“já ég kem eftir smá stund”
“ókey siðaðu drenginn hann á nú ekki að vera plata pabba sinn”
“ég athuga málið við sjáumst á eftir”
“okey, bless”
“bless”


Kristinn faðir platarans.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

kristinn 1. apríl maður, engin húmor lengur í guttanum, öðruvísi mér áður brá, þegar amma Lína var ................
Amain

12:10 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já grínið leikur nú við alla ættliði og hálsliði...drengurinn kippir sér í kynið. Skáldlegur og gamansamur.

Kv.
Kristinn.

5:24 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter