Viltu pening væni.
Viltu pening, viltu pening. Já hver vill ekki pening. Eitt af því sem ég hef upplifað eftir að ég flutti erlendis og hætti að vinna í banka að þá fyrst fattar maður gjöldin.... málið er nefnilega það að allir bankamenn (fólk sem vinnur í banka) fær allt frítt er varðar færslugjöld, kortagjöld, lægri yfirdráttarvexti, lægri lánavexti eða semsagt það sem kallast starfsmannakjör....og það er bara æðislegt á meðan maður vinnur í banka amk.
Hinsvegar eftir að ég hætti og fór að fylgjast með bankareikninum okkar sambýlinga hef ég líklega fengið hátt í 20 þúsund krónur endurgreitt frá bönkunum. Og ég segi bönkunum því ég jú var í Landsbankanum og færði mig síðan yfir í SPRON.
Ítrekað hafa verið skuldfærð á reikninginn okkar, óútskýrður kostnaður, vaxtakostnaður, greiðslurkostnaður og ég veit ekki hvað og hvað. Ég hef líka verið óánægður með vaxtaflokkinn sem tékkareikningurinn minn var settur í og fékk það bætt. Allgjört djöfulsins bull. Mér væri skapi næst að fullyrða að eintómir vitleysingar ynnu í Sparisjóð Reykjavíkur og Nágrennis. Endalausar rangfærslur og bara tómt rugl. Þetta hefur þó allt verið leiðrétt með tilheyrandi pirringi mínum og tölvupóst samskiptum. En hvað er þá málið. Og nú koma leyndarmálin í ljós. Jú sjáðu nú til og lokaðu hurðinni...væni minn....
Þegar ég vann í banka var það lykilatriði þjónustufulltrúanna að koma viðskiptavinum í sem flesta þjónustuþætti. Viðskiptavinum var síðan boðið Vildarþjónusta, Vörðuþjónusta eða Gullþjónusta eða hvað þetta heitir nú allt saman.... Síðan var tryggt að árgjaldið ca 10 þúsund var rökstutt með því að þú fengir Visagullkort. Og tryggingar og allskonar þjónustu. Tómt bull. Afsláttur af færslugjöldunum á tékkareikninginn og ég veit ekki hvað og hvað... Það sem hinsvegar viðskiptavinurinn vissi ekki var að kostnaður við gullkortið var langt frá því að vera 10 þúsund. Og bónus starfsmanna gat bara skipt nokkru máli ef þeir komu fólkinu í “Sérþjónustuna”. Það er nefnilega árgjaldið sem skilar gríðarlegum tekjum, og þannig blómstraði ástandið. Enda var hverjum nýjum meðlimi fagnað ákaft eftir að hann fór út úr bankanum með undirskrifaðan samning um vildarþjónustu. Hann var síðan settur í tilheyrandi gjaldaflokk sem tryggði oss viðstöðulausar tekjur. En hvað maður fagnaði vitanlega því þetta voru tekjurnar sem borguðu banka-launin....og hver vill ekki laun.
Málið er bara það að fæstir kúnnarnir nenna að skoða vaxta- og verðskránna. Þannig sleppur maður við allt leiðinda pípp...en sorry..sorry....ég NENNI ÞVÍ...og hvað 20 þúsund kall takk fyrir....það eru bara nokkrar flöskur af grænum túborg...verð ég að segja..
Boðskapurinn er því þessi....Ef þú ætlar að taka lán þá eru ákveðnir grunnvextir sem allir bankar Íslands hafa. Fyrirmæli frá Seðlabankanum, það eru kjörvextir. Síðan hafa allir bankarnir í gjaldskránni sinni, sína útgáfu á vöxtunum sem er álagið ofaná þessa kjörvexti. Og það fer eftir dagsformi þess sem þú ræðir við eða hversu ákveðinn þú ert í viðskiptum hvaða kjör þú færð. Þetta er álag frá því að vera 0,0% og uppí 5.25% hjá banka sem ég kannast við. Nú skiptir öllu að þú borgir sem hæðsta vexti fyrir bankann...en fyrir þig sem viðskiptavin er það kannski ekki málið..eða hvað.... Þú skalt því skoða hvaða álags-flokk þú fékkst hjá bankanum þínum, þræta við þjónustufulltrúann og fara beint í útibússtjórann og fá þetta lagfært til lækkunnar. Það mun takast.
Síðan vill ég biðja þig um að senda mér mismunin sem þú hagnast um vegna þessarar ráðgjafar minnar....við skulum segja fiftí fití.
Kristinn Fjármálaráðgjafi.

1 Comments:
Snúðu viðsiptum þínum í Landsbankann og vertu ekki að sjá eftir einhverjum tíköllum góurinn minn við hluthafar þurfum líka að lifa.
Skrifa ummæli
<< Home