Paris.
Jæja komin frá París eftir ferðalag frá Danmörku til Þýskalands til Hollands til Belgíu og til Frakklands. Er ennþá að gera upp við mig hvar sagan eigi að byrja. Tókum mikið af myndum og myndbandi.
Og þar sem ég stóð með myndsbandsvélina fyrir aftan fjöldann allan af fólki, á góðum stað í París, þá lyfti ég vélinni langt upp fyrir höfuðið til að ná sem bestum myndum. Og þar sem ég stend með hendurnar langt, langt í átt til himna í 35 stiga hita í París. Þá kemur lítil (lesist RISA stór) randafluga með feitan búk og flýgur inní ermina hjá mér. Ég finn fyrir einhverri lítilli flugu undir hendinni. Læt hendurnar síga þegar í stað og þá flýgur hún innar....inní bolinn...þar trompast hún, ég fálma í bolinn...randafluga inní bolnum hjá mér. Ég reyni að klípa hana...demittt..finn fyrir stungu, er stunginn til blóðs undir hendinni...ég í fáti...rölti af stað...veit ekki hvort ég eigi að öskra innan um fjöldann eða rífa mig úr..ég slæ aftur sjálfan mig á magann...held að hún sé þar...hitti ekki...er stunginn aftur...
Ég er gjörsamlega að tapa mér með randafluguna þarna inní bolnum, ég stekk undir stórt pálmatré í skugga ríf mig úr bolnum og Randalína randafluga flýgur af stað. Eftir stend ég þrístunginn á skrokknum og upphleyptar bólur.
Ég náði góðum myndum með vélinni ég er búinn að kíkja það...en það vantar endirinn.
Meira síðar um París.
Kristinn Röndótti.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home