Brúðkaup.
“Til hamingju með nýja manninn þinn” sagði ég í morgunn við starfsmaninn á leikskólanum sem kom til vinnu í dag eftir sumarfrí.. Það hefði nefnilega verið sett á töfluna í skólanum að hún Bijerte (skrifað samkv.framburði) væri að fara gifta sig. Já það vantaði ekki haminguóskirnar frá mér. En viðbrögðin voru önnur en ég reiknaði með. “Ha gifta mig, já þú meinar það, en það er sko 30.september” sagði hún. Og ég átti fullt í fangi með að klúðra ekki fjársöfnun sem augslýst hafði verið á upplýsingatöflunni fyrir foreldra barnanna í síðustu viku. En semsagt með góðum fyrirvara var óskað eftir frjálsum framlögum þeirra sem vildu vera með í gjöf...í september....og þessari söfnun átti semsagt að ljúkja áður en brúðarmærin kæmi til vinnu eftir sumarfrí. Á töflunni stóð en ekki lengur.....”þeir sem vilja vera með í brúðargjöfinni komi með pjéning”
Æi maður er alltaf að reyna að vera svo kammó, ég eyddi þessu bara með gömlu aðferðinni sem gengur útá eftirfarandi “ég er bara innflytjandi hingað til Danmerkur, skil ekkert, tala ekki málið, veit ekkert og hugsa ekkert.” Þar með var ég laus við frekari vangaveltur um brúðkaupið. Reyndar kom samstarfsélagi hennar inní umræðurnar og beindi þeim í réttan farveg...svo ég færi ekki næst að tala um “já enn gaman að allir krakkarnir hafi gefið ykkur gjöf, fyrir peningana sem þau voru safna hér í síðustu viku....” Þetta reddaðist. Mér verður þó sennilega ekki boðið.
Kristinn ógiftur í sambúð.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home