Dagmar gerist módel og margfölduð.
Aum í öxlum, höndum og fótum. Þreytuleg til augnanna, hakan lafir niður og stöðugt andvarp. Já þannig var stemmingn við kvöldverðarborðið. Fyrsti vinnudagur Dagmar eftir sumarfrí. Og ekki nóg með það heldur var viðskiptavinur klipptur á hverjum hálftíma. Klikkað að gera, geðveikt að gera, brjálað,kolbrjálað að gera.
Stofan hefur verið innréttuð uppá nýtt, allt málað tekið í gegn, nýjar innréttingar og ég veit ekki hvað og hvað. Nýtt skilti, nýtt nafn. Fyrsti dagur í dag eftir breytinguna. Og Dagmar mætt til starfa. Dagmar birtist núna á einum fjórum til sex fermetrum á strætisvögnum bæjarins þar sem stofan er auglýst. Hún ásamt eigandnum módelið á vagninum. Ég get hvergi farið hún er allstaðar, allstaðar blasir hún við.
Í vikublaðinu okkar hér settist ég niður með kaffið í dag og las blaðið...viti menn á þremur síðum í blaðinu er Dagmar ýmist í lit eða svarthvítu að auglýsa stofuna sem hún vinnur á. Og á ekki einusinni....ennþá.... Það verður eitthvað atli maður verði ekki að ráða hér lífverði fyrir ágangi aðdáenda..asskotinn.. blaðið jú jú dreift inná öll heimili hér í borginni og næstu borgum hér í kring...prentað í dag í 29.700 eintökum. Athugið tuttuguog níuþúsund og sjöhundruð eintökum. Er það skrýtið að hún sé þreytt blessunin.
Ég bauð munn við munn aðferðina til að reyna blása í hana lífi það var afþakkað. Borða, dorma, slefa í sófann....það var það sem gerðist. Já það er viðburðarríkur dagur í dag, það styttist þó í helgina guðisélof.
Kristinn Loðni.

2 Comments:
Er blaðið ekki á netinu ?????
Nei, því miður. Hér er internetbyltingi í staðartíðindum ekki kominn svo langt að hægt sé að nálgast blaðið á PDF formi...ég sendi þeim ábendingu um að laga þetta.
Kv.
Kristinn.
Skrifa ummæli
<< Home