Sumarfríið á síðasta snúning.
Dagarnir líða eins og gengur. Fórum í matarboð til Dorrit og Torben sem buðu uppá grillaðan fisk. Tja hvaða fisk það var ekki vitað, það vöfðust fyrir okkur dönsku fiskanöfnin, ensku fiskanöfnin og síðan yfir á íslensku. En þetta smakkaðist fínt svo það var í lagi. Fengum okkur hvítvín og fíneri með. Uppgötvuðum reyndar nýtt sem við fórum og keyptum í dag. En það er býflugnahunang innflutt frá Tyrklandi. Já og það er fullt af ýmsum hnetum, svona líka hrikalega bragðgott og heillandi. Við höfum bara kynnst hunangi gegn kvefi og hálsbólgu og þá bragðast skelfilega illa...þarna opnaðist ný vídd í hunanginu.
Nágrannar okkar eru flestir í sumarfríi og hafa brugðið sér af bæ, við erum svona að leggja drög að lokadagskránni í okkar fríi. Það gæti allt eins farið svo að við færum og hittum “Löggurnar á Sámsey” en það var einmitt danskur þáttur í Ríkissjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Við horfum stundum af ströndinni okkar yfir til Sámsö og hugleiðum að skella okkur þangað...hver veit. Nei kanski seinna.
Festivalsundibúningur er í fullum gangi í bænum okkar en væntanlegir eru 25 þúsund gestir um hina helgina, það verður spennandi að sjá þessar gæðasálir flytja til bæjarins.
Nú er svo komið að í hvert skipti sem við förum útí bíl og ætlum að keyra eitthvað segir Axel Orri “ég verð ekki lengi í þessum bíl” Hann er búinn að fá allveg uppí kok af því að keyra eftir fjórtán tíma ferðina París-Danmörk. Systir hans tekur nánast róandi þegar rætt er um að keyra í bíltúr. Nei börnin eru orðin yfir-keyrð
Kristinn Skemmtanastjóri.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home