Lars Blauti.
Lars er nýjasti vinur minn, kynntist honum í morgun þegar við unnum saman saman í fjóra tíma. Já það hefur verið nóg að gera í tímabunduvinnunni (lesist vikar vinnan). Hann hefur verið rakari í fimmtán ár með eigin stofu. En nennir ekki að klippa lengur. Hann ekur um á Skúúter svona vespumótorhjóli. Svo lengi hefur maður nú búið hér í Danmörkunni að maður veit allveg hvað það þýðir. Það er nefnilega þannig að hafir þú fengið þér of marga öl og jafnvel verið látinn blása...kviss pang og skírteinið burt. Þá færðu þér bara vespumótorhjól og ekur um á því allar trissur eins og ekkert hafi í skorist. Já og Lars virðist hafa lent í því. Ekki bara að hann talaði um það á átta mínútu fresti “Jæja Kristjaníus það væri nú gott að hafa kaldan öl” eða “Nú Kristjaníus nú hefðum við átt að fá okkur öl” eða þá “Kristjaníus helvíti væri nú gott að vera með ölin hér”. Lars sem hefur rakað menn í Skanneboo síðastliðinn 15 ár er fæddur hér í borginni. Og þekkir hvern krók og kima. Konan hans frá Flensbúrg, tæknimenntuð og þau eiga stórt tjaldhýsi. Tvær stelpur á kærastaaldri. Hann sjálfur maður svona í kringum 47 ára.
Lars er hinn viðkunnanlegasti maður en óvíst er að ég hitti hann á ný. Ég gat hinsvegar sagt honum að konan mín, frísör Dagmar væri á strætisvögnum borgarinnar að auglýsa stofuna sem hún ynni á....”Já Kristjaníus við fáum víst enga kúnna á meðan það stendur, jú væri væri upplagt að fá sér einn kaldann”.
Kristinn Kaldi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home