Axel Orri 4 ára.
Dagurinn er kominn. Drengurinn hefur beðið alla vikuna eftir deginum. Stöðgugur samanburður í stærð og lengd við alla fjölskyldumeðlimi hefur verið linnulaus síðustu daga. Honum finnst hann bæði hafa stækkað og orðið sterkari, meiri vöðvar.
Það verður hátíðarveisla hér í dag, þar sem fjölskyldan mun sameinast við afmælisborðið og horfa á drenginn taka upp pakka sem hann hefur fengið senda frá Íslandinu. Hann er búinn að vera mjög spenntur.
Fjögur ár eru ekki langur tími, en við höfum séð mikla breytingu á honum eftir að við fluttum hingað hann er ekki bara orðinn danskari og klaufalegri, heldur er ýmislegt annað sem hefur breyst. Þau eru þó afar ólík systkinin og við höfum ósjaldan rifjað upp hvernig systir hans var/er í háttum. Hún vaknar snemm, hann vill sofa út, hann kýlir og slær, hún hörfar. Hann stríðir og hrekkir, hún ekki. En þau grína bæði svo eitthvað er sameiginlegt. Sjúkrahúsaheimsóknir er þó eitthvað sem hann gjörsamlega hefur toppað í fjölskyldunni...hann hefur í raun verið eins og Dr. Saxi segði "góður sjúklingur".....það er kemur oft.
En það er gott að það eru ekki allir eins, tilveran væri dapurleg ef svo væri. Hver er líkur sjálfum sér og það er best. Axel Orri minn, til hamingju með afmælið.
Kristinn Pabbi.

5 Comments:
Elsku Axel Orri, ég og afi vorum að lesa um þig, þú ert flottastur.
Til hamingu með afmælið, núna erum við báðir 4 ára, alveg þangað til í janúar. Helgij. frændi
Til haminguju með daginn Axel Orri.
Rósa frænka
Sæl Rósa !
Þökkum við afmæliskveðjuna. Hefðir fengið köku ef þú hefðir átt leið hjá...en það verður bara næst. Set kökuna í frystinn.
kv.
Kristinn
Amma og Afi !
Takk fyrir þetta. Kveðjur og gjafir og hugurinn...þetta hefur allt skilað sér. Takk fyrir.
kv.
Kristinn
Hæ þere !
Án þess að ég viti það en þá er þetta víst bókarútgefandi, líklega fyrir Stefán King og Sitney Sjéldon. Sem þarna skrifa á engilsaxnesku. Hver veit nema bloggið komi á bók !! !
Takk fyrir þetta.
kv.
Kristinn.
Skrifa ummæli
<< Home