Viðskiptaerindi.
Þegar við vorum kominn í tiltekna flughæð hélt ég áfram að djöflast í tökkunum og skyndilega missti ég útúr mér svo eftir var tekið.... “nei hvur andskotinnnn” réðst ég nú á tölvuskjánna á ferðafélögunum og stillti á það sama og ég sá....OOOG viti menn blasti ekki við þessi fína mynd af mér sjálfum...í valmyndinni.....potaði ég benti og fann hvernig stoltið kom yfir mig, vegna liðinnar heimsfrægðar á ísalandinu. Þetta þótti ferðafélögum mínum merkilegt...að þarna væri kominn mynd af þeirra íslenska vini á hinum íslenska snertiskjá flugfélagsins. En það segir sig sjálft að frá stofnun flugfélagsins hef ég jú verið órjúfanlegur hlutir af fyrirbærinu...og það vita þeir sem söguna þekkja.
Var ég þess fulviss að eftir þessa flugferð skyldi ég aldrei ferðast í Sardínudós Express félagsins, því þar getur maður hvorki andað nei hreyft hendur í sætinu...en viti menn, þegar út var flogið til Danaveldis á vegum Flugleiða var okkur troðið í slíka gamaldags sardínudós að mismunur þessara flugfélaga hvarf einz og dögg fyrir sólu, eini munurinn var að þú þarft ekki borga fyrir þurra skinkubita með hvítlaukskartöflum hjá mínu gamla félagi. Fór nú heldur betur sjarminn af Flugleiðaselskapinu. Og veitti ég því sérstaka athygli að fegurðarstandarinn á þjónustuliðinu er engu skárri....meðalaldurinn var þetta í kringum 65 árin og ljóst að fækkað hefur stórlega í starfsliðinu af hinu þróttmikla og æskurjóða ungdómsfólki sem prýddi forsíður og auglýsingar félagsins hér áður fyrr. Enda hafa þeir rekið allann rjómann. Mér skilst þó að einstaka flugstjóri haldi standardinum uppi, hér nefni ég enginn nöfn en ég þekki einn sem þó flýgur í Finnlandi um þessar mundir...
Kristinn Stjarna.
