miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Lögfræðingurinn.

“þið íslendingar kunnið nú að semja” sagði lögfræðingurinn við okkur í dag, þegar við fórum á hans fund að ræða um afsalið. “já þið kunnið nú að græða aurinn” sagði hann svo, og síðan “já og öll þessi vinna sem ég vinn fyrir ykkur, og á þessu afsláttarverði, já þið kunnið að semja” sagði hann og brosti eins og eftirlaunaþegi sem varla á til hnífs og skeiðar. Málið er nefnilega að ég þráttaði og prúttaði og prangaði við lögfræðinginn og hélt því fram að fyrr í sumar hefði hann gert mér gott tilboð. Ég hélt því fram að hann hefði boðið mér þjónustu sína á verði sem var um 15 þúsund íslenskar krónur frá hans almennu gjaldskrá og afhverju...jú aðþíbarra

Hann mundi það ekki og samþykkti að gera þetta. Í ljós kom að þetta var ekki allveg svona og verðið var víst þó nokkuð undir verðskránni hans. Hann hefur síðan allt frá því hann uppgötvaði þetta minnt okkur rækilega á það hversu góðan díl við náðum að gera við hann. Og síðan tuðar hann um hvað íslendingar hljóti að vera góðir í samningum og þessvegna séu þeir að kaupa upp allt í Danmörku.....sérkennileg samlíking en aðdáunarverð ekki satt. Ég fæ lögfræðinginn til að skoða einhverja fátæklega og ómerkilega fasteignapappíra (sem nótabene maður lætur ALDREI lögfræðinga skoða einu sinni á Íslandi) og hann talar um Magsínið, Flugfélagið, Blaðið og Marel í leiðinni og slóttuga og lævísa samningatækni, óskilgreinda peninga og skilur ekki hvaðan aurarnir koma hvorki til húsnæðiskaupa eða Magasínskaupa...

Já lögfræðingurinn á ekki sjö daganna sæla og var vansæll og niðurbrotinn í dag. En hann blessaði okkur og bað fyrir kveðjum. Um leið og hann minnti okkur á að í kvöld lýkur vetri hér í Danmörku og for-árið eða árstíðin “undanfari vorsins” hefst á miðnætti. Gleðilegt forsumar

Kristinn Law&Order

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Hótelið Okkar er jörðin.

Það fór sem spáð var Jónsdóttir er fædd, en eftir skygnilýsingarfund Meistarans, eða öllu heldur draumfarir var ég sannfærður um að hægt væri að halda slíku fram. Mesta afrekið er þó líklega stóri bróðir Jónsdóttur, en hann 6 ára hefur þagað þunnu hljóði vitandi í nokkra mánuði hvers-kyns var. Ég reyndi ítrekað í sumarferð fjölskyldunnar að sónarskoða móðurina og kreista út svör en tókst ekki.... Já vel af verki staðið hjá þeim öllum þremur. . Þó skilst mér að amma drengsins hafi þó eitt sinn mútað honum með kleinubita og ætlað að hafa útúr honum "kynið" en tókst ekki....(þetta er nú birt hér án ábyrgðar). En hvað um það hamingjuóskir með vísitölufjölskyldunna, þetta er pottþétt blanda jú strákur og stelpa svona vilja allir hafa, Anna Marín fagnar að nú sé að réttast við hlutur kynjanna í þessari fjölskyldu vorri. En eins og í konungsfjölskyldu skiptum við frá því að velta fyrir okkur kyninu og spá í nafnið....ég spái að það verði Kristín Jónsdóttir með ættar- og eða millinafnið Friðþjófz.

Snjórinn er tekinn að bráðna hér í ríki drottningar og í snjóstormi vikunnar voru ekki margir sem létu lífið þó einir tveir. Hér er þó farið að hrynja af þökum, snjórinn og bílar og fólk liggur undir skemmdum. Við ætlum okkur í vikunni að nálgast seljendur hússins og heimta kaffi og kökur og hittast næstu daga....þetta fer jú að bresta á og við verðum auðvitað að kynna okkur og líta í kaffi.

Kristinn Frændi.

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

21.febrúar 2007

Ég, Jan og Jón Baldvin og síðan fæðist Kristín Jóns-Þór-dóttir að öllum líkindum í dag. Ekki slæmur dagur þar á ferð. Púðursykurstertan er að fara á borðið með tilheyrandi kertum.

Kristinn Afmælisdrengur.

mánudagur, febrúar 19, 2007


Öskudagurinn.

Var haldinn hátíðlegur í gær, og hittum við nágranna okkar hér úti við, enda var kattarófétið slegið úr tunninni, og viti menn, Anna Marín tunnudrottning ársins, besti búningurinn í fyrra og nú þetta. Já það vantar ekki hæfileikanna. Annars fórum við öll þrjú ég og krakkarnir uppáklædd í ár. Já það er rétt að gleðja nágranna sína, og fórum við hvert í sínum búningi. OG auðvitað var slegið í gegn....ég fékk verðlaunin "frumlegasti búningurinn". Já hver veit nema birtist mynd af því síðar. En svona til að minna á hátíðanna fylgir með mynd af frumburðinum, sem er farinn að nota gleraugu og linzur og á leið í tannréttingar.

Kristinn Öskukall.

miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Taugaáfall hjá Pussjó á Íslandi.

Minn ætlaði sko heldur betur að spara sér þúsundkallanna og kaupa þetta bara á íslandinu góða,
þar eru menn sko ekki teknir í bakgarðinum....með verðinn....:
Sæll Pusjókall á Íslandi, er ekki allt gott, sagði ég í símann
...jú takk takkk...
jæja vinur hvað kosta nú þurkublaðasettið hjá ykkur í dag, kallinn minn, sagði ég kokhraustur og fann afsláttinn vera á næsta leyti.....
jú bíddu við kútur, þú talar með hreim..er það ekki, ertu útlendingur, einn af þessum andskotans innflytjendum hér í landi ? sagði sölumaðurinn.
Nei nei elskan mín, ég er rammíslenskur, ég er bara búinn að vera í tugi ára erlendis þú sggilurr.
Heyrðu lille vennn hérna kemur verðið, fyrir settið kr. 9.251.- á framrúðuna lillle vennnn
Takk og farvel sagði ég.

Kristinn Skelltiá.

þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Taugaáfall hjá Pussjó.

Það er kominn tími á að skipta út þurkublöðunum á bílnum svo kallinn brá sér í næsta súpu-markað og fjárfesti í þurrkublöðum. Hér í Danmörku eru öll helstu hjálpartæki bílsins nefnilega seld nánast við hliðina á kjötborðinu. En nema hvað ég fann týpuna sem sögð er passa á bílinn og borgaði 68 danskar krónur fyrir settið....eða 782 krónur ísl.

Seinnipartin í dag var síðan farið í það að skipta um blöðin, viti minn þessi Bosch þurrkublöð pössuðu ekki. Noohhh...klaufaskapur og heimska. Nei þessi tegund passar bara ekki á pussjóinn. Ástæðan jú það er kominn ný kynslóð af þurrkuörmum frá Pussjó með nýrri hreinsitækni sem slær öllu út....nú það var þá ekki annað að gera en keyra í umboðið og óska eftir eins og einu setti af blöðum. Augnablik lilli minn sagði afgreiðslumaðurinn, hér kemur þetta og verðið já....humm...og það var ekki laust við að hann yrði eitthvað furðulegur á svipinnn..En síðan sagði hann heyrðu verðið er 557 danskar krónur ( eða 6.405.- ísl krónur).

Ég greip í borðið, andaði örar og fann að það var að líða yfir mig, mig svimaði og ég blótaði, ég fussaði og sveiaði, sagði aldrei nokkurn tíma myndi borga þessa upphæð fyrir þurrkublöðin, og sagði afgreiðslumanninim að andskotast heim til sín. Já taugaáfall, eða á barmi taugaáfalls staulaðist ég útí bíl og sagðist ætla að huxa málið.

Nú má vel vera að þetta sé sanngjarnt verð fyrir þurrkublöð á Pussjó, en fyrr skal ég dauður liggja en borga uppsett verð. Það er hafinn dauðaleit af þurrkublöðum, einhver ráð?

Kristinn Pussjó .

laugardagur, febrúar 10, 2007

Skrattinn hittir ömmu sína í banka.

Jæja nú er búið að funda stíft með Sparikassanum og ræða lánamálin. Íbúðarlánasjóðslánin fara að öllu leyti fram í bankanum hjá þeim ráðgjafa sem maður verslar við. Áður en við fórum af stað í allt þetta sem tengdist húsnæðiskaupum, fengum við eftirfarandi leiðbeiningar: Fasteignasalinn er fulltrúi seljandans, ekki trúa honum, Bankaráðgjafinn þinn er fulltrúi bankans, ekki trúa honum, Tryggingasalinn er fulltrúi tryggingarfélagsins, ekki trúa honum. Lögfræðingurinn þinn er sá eini sem þú getur trúað mundu bara að borga honum. Þetta voru semsagt þau ráð sem við fengum í upphafi húsnæðisferðar hjá einum ráðgjafanum en við trúum nú ekki einu einasta orði af því sem hann sagði.

Nema hvað bankinn og bankasamtölin hafa verið fróðleg og stundum skemmtileg, skyndilega mundi ég alla frasana sem ég notaði sjálfur í samtölum við mína viðskiptavini á sínum tíma, þegar ég var að telja þeim trú um að vextirnir og gjöldin sem þeir væru að borga væru allveg “specially price for you my friend”. Ég starði á bankaráðgjafann þegar hvert frasabullið á fætur öðru kom útúr honum....setningarnar eins og: “Við viljum aðeins ráðleggja þér með þína hagsmuni og þinn áhættuprófíl í huga” og svo kom “Við getum ekki ráðlagt kaup í einstökum hlutafélögum því við teljum best að dreifa áhættunni í sjóðunum okkar” og svo kom “Þetta eru allaveg sérstaklega góð vaxtakjör sem við erum að bjóða ykkur”....og þá sprakk gamli bankamaðurinn....kræsturinn...þvílíkt djöfulsins bull....það er nefnilega þannig að ráðgjafinn getur sjálfur ákveðið hvaða vexti hann bíður viðskiptvinum sínum...nema hvað ég sagðist ekki trúa þessum frösum, og vildi skoða málið. Fór netið fann samanburð um vexti milli hinna bankanna og fann út að ráðgjafinn var auðvitað að reyna græða stórkostlega á okkur....þannig að næsta ferð í bankann gekk útá það að ég kærði mig ekki um að borga hærri þóknanir en ég þyrfti, og benti ráðgjafanum á þá vexti sem þeir væru sjálfir að auglýsa sem mér þó stæðu ekki til boða....en svarið kom ekki á óvart....”(litli kall) svona er þetta bara, við getum ekki slegið af þessum kostnaði” þar með lauk samtalinu, en ég hótaði vitanlega bara að snúa mér eitthvað annað.....En samtalinu lauk auðvitað eins og öll mín samtöl hér forðum þar sem hvergi var slegið af og heldur bætt ofaná en hitt.....

Annars hefur Sparikassabankinn klárað sig vel af þessu þegar ég afhenti pappíranna sl. föstudag undirskrifaða af mér og meistaranum færði ég útbússtjóranum og ráðgjafanum sitthvora rauðvínsflöskuna í fallegum gjafapakka með þökk fyrir gott djob...en þó með þeim orðum að ég væri ekki sammála þeim um bankakostnað og vexti. Og myndi þar til dauðinn aðskilur oss, krefjast lægri vaxta og minni bankakostnaðar....

Kristinn Amma.

þriðjudagur, febrúar 06, 2007

Helgin sem leið.

Meistarinn var með stórsigra í sinni vinnu, undir lok vikunnar varð einn stærsti dagurinn sem um getur í sögunni....svo ég er þegar farinn að skoða bílabæklinga,hljómtæki,tölvublöð og ýmislegt annað...já það vantar ekki kraftinn. Við vorum þó með fjölskylduferð á Himmalæjabjargið og tókum með okkur heitt kakó og rjóma. Já og nýbakaðar tebollur sem matreiðslumaðurinn hafði bakað fyrr um morgunin. Veðrið var sem vor væri lofti ....já þetta hljómaði næstum sem ljóð. Nú svo var boðið í rauðvínstár og kaffi hjá Dorit og Co á laugardagskvöldið. En vinur okkar, maður hennar er nú að ná sér á strik aftur eftir 2.stigs bruna eftir að hafa reynt að gera við gólfhitann hjá sér....hann hefur verið mjög viljugur að lána mér allar Gerðu-Það-Sjálfur bækurnar sínar en ég hef haldið mig frá bókunum hans. Og síðan hefur hann lagt mikla áherslu á að við hendum út öllu okkar eldhúsdóti...þar sem hann sé orðinn nýráðinn og sérlegur starfsmaður Míle í danmörku....og hann lofar góðum verðum. Heilsufarið er hér orðið með besta móti, enda penzilínskammtarnir búnir. Svo lífið æðir áfram.

Kristinn Fjallgöngumaður.

Counters
Web Site Counter