Helgin sem leið.
Meistarinn var með stórsigra í sinni vinnu, undir lok vikunnar varð einn stærsti dagurinn sem um getur í sögunni....svo ég er þegar farinn að skoða bílabæklinga,hljómtæki,tölvublöð og ýmislegt annað...já það vantar ekki kraftinn. Við vorum þó með fjölskylduferð á Himmalæjabjargið og tókum með okkur heitt kakó og rjóma. Já og nýbakaðar tebollur sem matreiðslumaðurinn hafði bakað fyrr um morgunin. Veðrið var sem vor væri lofti ....já þetta hljómaði næstum sem ljóð. Nú svo var boðið í rauðvínstár og kaffi hjá Dorit og Co á laugardagskvöldið. En vinur okkar, maður hennar er nú að ná sér á strik aftur eftir 2.stigs bruna eftir að hafa reynt að gera við gólfhitann hjá sér....hann hefur verið mjög viljugur að lána mér allar Gerðu-Það-Sjálfur bækurnar sínar en ég hef haldið mig frá bókunum hans. Og síðan hefur hann lagt mikla áherslu á að við hendum út öllu okkar eldhúsdóti...þar sem hann sé orðinn nýráðinn og sérlegur starfsmaður Míle í danmörku....og hann lofar góðum verðum.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home