mánudagur, janúar 15, 2007

Meistarinn.

Afmælisdagurinn hjá Meistaranum runninn upp, og Meistarinn i vinnu. Var keyrð í austuráttar hraðlestinna fyrir klukkann átta, jú til að sinna rekstrinum. Og er væntanleg síðdegis. Það verður nú minna umstangið en oft áður, þar sem húskarlinn er að mæta í próf í fyrramálið og því hefur öllum hátíðarhöldum verið frestað framm yfir morgunndaginn. Kökurnar eru hinsvegar klárar ef einhver myndi líta við.

Axel Orri heima, hefur verið með flensu síðustu daga og heldur því ótrúlega oft fram að hann geti ekki gengið, eða gert nokkurn skaðann hlut og verði að fá alla þjónustu beint við rúmmstokkinn eða við sjónvarpið. Hann ætlar því miður að erfa frá föður sínum, þau miklu veikindi sem hann lendir alltaf í, það er sama hvort það er kvef eða nýrnasteinakast, jú eða væg bólga á fæti. Þetta leggur mann gjörsamlega flatann og maður getur sig hvergi hreyft í marga daga, og þarf mikla ummönnun. Systir hans heldur því hinsvegar fram að hann sé mjög hress, og geti gert alla skapaða hluti....hann hafnar þessu allveg....málið er að þær mægður skilja ekki sársaukamörkin og veikindastig karlmanna það er miklu verra en þeirra..þetta hef ég áður bent á hér í pistli.

Hann er því allveg frá....litla skinnið.......nema hvað Meistarinn með afmæli í dag, og ég kvaddi hana innilega á brautarpallinum í morgunn. Hún lýtur ekki út fyrir að vera deginum eldri en þegar við kynntumst, hún er bara snillingur.

Kristinn Afmælissambýlingur.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku með konuna og knúsaðu hana vel frá mér.

12:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til lykke med fodselsdagen, HURRA-HURRA-HURRA!

Kv.
Andri Marteinn og gamla gengið

6:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter