föstudagur, desember 29, 2006

Meiri jól hjá sumum...

Nágrannarnir eru byrjarðir að taka niður jólaskrautið og henda jólatrénu út. En hér heldur gleðin áfram, undanfarið hefur jú verið unnið í þeim gjöfum sem bárust heimilisfólkinu. Axel Orri heldur fólki hér við efnið, enda fékk drengurinn rafmagsgítar frá afa sínum og ömmu, ásamt magnara. Já elskulegur drengurinn hefur svo sannarlega gott tóneyra. Og ekki nóg með það heldur fékk hann frá Heimi hinum svokallaða KaffiLatteBaun (næsti forstjóri Merrild) fékk hann tattó maskínu. Já hvorki meira né minna, og hann er þegar kominn með þrjú “túss” tattó og vill vera endalaust á ermalausum bol. Axel Orri fékk líka fjarstýrða þyrlu frá foreldum sínum, en pabbi hans taldi nú rétt að sýna honum réttu handtökin, strax eftir að pappírinn var rifinn utanaf pakkanum...pabbinn gaf allt í botn, þyrlann flaug til lofts, stórkostlegt leiktæki, pabbinn fibaðist í fluginu, missti stjórnina, tapaði fókusss og fjarstýringunni og allt saman fór til fjandanz. Þyrlan hrapaði og brotnaði illa, ónýt. Já pabbinn mátti skrifa ávísun og borga drengnum. Hann var ekki ánægður. En þetta hefur nú og verður bætt allt saman, þökk sé Toys Ar Röss búðinni.

Anna Marín fékk útkall ómega alfa Rauður, á aðfangadag. Jeps við máttum skunda feðginin á tannlæknavaktina og dóttirinn fara í tann-úr-töku. Fyrsta deyfingin á lífsævinni, með tilheyrandi svita í lófum. En það gekk vel, barnatönn hafði brotnað illa og varð að taka úr. Fullorðinstönnin er á hraðri uppleið. Anna Marín fékk margar fallegar gjafir líkt og bróðir hennar og var alsæl með sitt. Ég og Meistarinn fengum okkur í sameiginlega jólagjöf einhverra þá al-fullkomnustu og flottustu kaffivél sem fyrirfinnst í heiminum. Ítalska kaffivél sem næstum spyr mann “má ekki bjóða ykkur kaffi elskurnar.” Og svo bætti maður við einhverju smá hjá Meistaranum, sveik auðvitað samkomulagið, auka pakki var því undir trénu fyrir Meistarann, enda búinn að gera góða hluti undanfarna mánuði, hún átti það skilið. En undirbúningur fyrir áramótapistilinn hjá mér og drottningunni er hafinn, svo dokið við....

Kristinn Jólabarn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter