Heimsmeistarakeppni í Dansi.
Það var nú bara þannig að okkur var boðið á sjálfa heimsmeistarakeppnina í Standard dönsum 2006, bein útsending í sjónvarpinu og guðmávitakaað. Og við mættum bara klukkan fimm sl. laugardag á Wembley wöllinn í Orhúss og sátum til klukkann ellefu um kvöldið og horfðum á stærstu pörin í þessum branza frá 15 löndum keppa um titilinn. Og það verður að segjast að upplifunin var töluvert ólík því sem maður sér í sjónvarpinu. Ótrúlegt en satt þá sá maður og upplifði þvílíka spennu á dansgólfinu milli keppenda að það var virkilega magnað. Atriðin sem klippt eru útúr sjónvarpsprógramminu og maður fær aldrei að sjá, birtust þarna ljóslifandi. Þarna gerðist það nokkrum sinnum að pörin skullu harkalega saman, einmitt vegna þess að hvorugt parið vildi sveigja af sinni leið...og þá er bara keyrt inní næsta par. Ekki eins og þau eigi í vandræðum með að stjórna sveiflunni....heimsmeistararnir...óneiii....hér er bara massív keyrsla í gangi og ekkert slegið af. Þetta leit út á tímabili, sem um réttardansleik á Hvolsvelli væri að ræða, þar sem Páll frá Eystum, væri að slást við Gvend á Ytri-Kreppu, þvílík var harkann.
Blessuð litlu börnin léku sér við leggi og skel, á meðan við fórum uppábúin til keppninnar. Systirin gætti að bróður sínum og það gekk glimrandi vel. Helgin fór síðan að mestu í slökunn, og takmarkaða útivist, hér er þó hlýtt eða um þetta tólf stiga hiti og ekkert bólar á vetrinum. Sem er jú þakkarvert en handan við hornið er aðventan. Og ég þarf að fara finna kökuppskriftirnar, og ákveða sortirnar í ár.
Kristinn Dance.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home