föstudagur, nóvember 17, 2006

Netið stórhætturlegt.

Sko það er nú bara þannig að ef maður gefur sér litla stund til að skoða netið og slá upp t.d. nafni nágrannans eða bara einhverjum sem maður þekkir, þá er allveg ótrúlegt hvað maður getur fundið mikið af upplýsingum um viðkomandi, og ég tala nú ekki um ef viðkomandi heldur útí bloggsíðu. Þá veit maður bara gjörsamlega allt um viðkomandi. Ég hef því passað mig t.d. á því að skrifa ekkert um það þegar ég fór í ristilspeglun, fékk sveppi á mili tánna, þegar gróf í eyranu á mér og þegar ég fékk vindverki og óþægindi í botnlangann. Svo ekki sé nú talað um brisið sem hefur verið að íþyngja mér. Bakflæðið og kíghóstann hef ég heldur ekki skrifað um. En semsagt ég slóg upp nafni á manni sem ég þekki í dag og fann þetta um hann.....þetta var skrifað um frækilegan sigur í heimsmeistarakeppni framhaldsskólanna í ræðulistinni....en þessi texti er nú skrifaður fyrir nokkru síðan eða frá 12.mars 2002, textinn er svona ..

“Sigur FB-inga það ár voru sennilega óvæntustu úrslit í sögu keppninnar. Breiðholtið hafði einu sinni eða tvisvar áður tekist að komast upp úr fyrstu umferð, en fór skyndilega alla leið......Ásamt Bóasi, voru Lárus Páll Birgisson, Arnar Þór Halldórsson og Matthías Geir Ásgeirsson í 1996 liðinu. Lárus er betur þekktur sem Lalli feiti og var valinn fyndnasti maður Íslands fyrir einhverjum misserum...Matti stuðningsmaður er sá eini úr liðinu sem ég hef haldið einhverju sambandi við. Hann var alltaf langbesti ræðumaðurinn í hópnum og hefur þjálfað ræðulið með góðum árangri út um hvippinn og hvappinn. Hins vegar er hann vinnualki af verstu sort. Eftir stúdentsprófið dreif hann sig í smíðanám og er nú að slá upp mótum út um allan bæ, auk þess sem hann er búinn að smíða sér stóreflis hús á Álftanesinu og er kominn með grísling. Matti er eini maðurinn sem ég hef kynnst sem tekist hefur að vera í um 180% vinnu um langt skeið án þess að glata glórunni.”

Já það finnst ýmislegt á veraldarvefnum það verður ekki annað sagt. Meistarinn er á heimleið úr fyrirtækinu, þetta gengur samkvæmt áætlun og útlit fyrir að hún verði bæði búinn að stækka við sig húsnæðið, kaupa fyrirtækisbíl, endurnýja hljómtækin og kaupa sér nýja skjalatösku áður en langt um líður. Ég held áfram að ala upp blessuð litlu börnin.

Kristinn Gúggúl.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Er sjálf að passa mig á að "gúggla" ekki fólk sem ég er nýbúin að hitta...gæti fundið bloggsíðu með alltof miklum upplýsingum...
Gúgglaði frænda minn og komst að því að hann situr í nefnd á vegum XD úti á Álftanesi...hefur þér ekki tekist að kristna hann Kristinn?
Kv. Guðrún Rebekka

12:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Guðrún,

Já ég fékk nú bara taugaáfall þegar ég sá það, og vildi bara ekki setja það á síðuna hjá mér...kræsturinn..en ég veit innst inni að hér er jafnaðarmaður á ferð svo ég óttast ekkert.

kveðja,
Kristinn

1:54 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter