Ætlar enginn að segja guðhjálpimér?
Kvefið hefur stungið sér niður, hér eru allir með grænan bússemann í nefinu. Það er hor. Sólhattur og sítróna er nú orðin hér í hvert mál, og lyktin af heimilisfólkinu minnir einna helst á gróðurhús með miklum raka, skemmt grænmeti og fölnuð blóm. Við feðgar gerðum salatið í gærkvöldi með matnum áður en Meistarinn kom heim. Hann var mjög áhugasamur um að setja niðurskorið grænmeti í skál og gera klárt. Nema hvað, þar sem ég stend við vaskinn og skola fagurgræna agúrkuna sé ég þar sem drengurinn stendur fyrir framan skálarnar og er hálf grettinn á svip. Jú það fór ekki milli mála, það var eitthvað mikið að gerast, ég sá það og öskraði ósjálfrátt...haaaaallttuuuuu fyyyyyrrrrrrrrr en lengra komst ég ekki. Drengurinn frussaði hnerriii sem síðan gekk viðstöðulaust yfir salatskálarnar, niðurskornir tómatar, grænt salat, papríka og fleira varð umleikið “atsjú-frussi” ........hann leit á mig og sagði “afsakið”. Ég huxaði með hryllingi til þess að þurfa að borða útfrussað grænmetið með matnum. En mundi þá að þetta var nú bara sonur minn sem hafði misst þetta útúr sér...fyrirgefanlegt...jú atliþaðiggi. Við sögðum síðan þeim mæðgum frá atburðum dagsins þegar þær höfðu lokið við að borða. AO hefur tamið sér líka sérkennilegan kæk, og þjóðlega sið að alltaf þegar hann hnerrar og áður en maður getur sagt nokkurn skapaðan hlut kallar hann hátt og jafnvel milli hæða....
“ætlar enginn að segja guðhjálpimér” og þetta gerir hann þótt við séum allt annarsstaðar og hann jafnvel á klósettinu....það skal aldrei bregðast að setninginn sé sögð....
Við höfum reynt að bregðast hratt við og jafnvel reyna að segja þetta við hann um leið og hnerrið byrjar en þá verður hann fúll og segir “ég er ekki búinn” og síðan segir hann næstum strax á eftir “ætlar enginn að segja guðhjálpimér?”
Kristinn Kvef.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home