Að Venta.
Maður getur zagt á dönsku að maður sé að venta eða sko sögnin að bíða. Og þessvegna heitir þessi tími ársins Aðventa á íslensku, tekið úr dönsku, bíða..held ég... Já og eftir hverju er beðið, jú það er beðið eftir dauðans kapphlaupi í kökubakstri, jólaskreytingum og ryksugunni og gluggaþvotti. Þetta er allt að bresta á, endalaus jólaboð og ferðir og heimsóknir, og tímaskortur. Blóðsprunginn augun, streitann í hámarki, valíumskammturinn aukinn, svefnleysi. Geðvonska og vanþakklæti. Það á allt að gerast gjörsamlega áður en ventan er búin. Aðventan, yndislegur tími.
Hef aldrei verið sérlega mikið fyrir jólinn, er meira svona fyrir áramótin. Hef margoft lagt til að halda jólin bara á suðrænum hitabeltisslóðum, hef líka sérstaka andúð hangikjöti. Þoli það bara ekki, en ég fæ alltaf jafnmikið útúr því það er gleði, þegar einhver í kringum mig frussar og fussar og bölvar, og fukyrðast yfir því að ég hafi andúð á hangikjöti...annars borða ég það nú bara ef mér sýnist svo og ég er í skapi til. Hef alltaf svo gaman af þessu. Fyrir mörgum er þetta svo heilagt, það EIGA allir að borða hangikjöt, það EIGA allir að borða mikið smjör, það EIGA allir þetta og hitt......kræsturinn.. Já þetta er bara yndislegt.
Kristinn Aðventi.

2 Comments:
Það þýðir ekki að vera með matvendni á jólunum. Maður étur það sem er á boðstólum hvort sem manni líkar betur eða verr. Svo er manni bumbult og óglatt... en eru það ekki jólin??
Sælar og takk fyrir þetta....
Nákvæmlega, gjörsamlega að belgja sig út og fá aukahjartslátt og fitu-sjokk...síðar fitusog...Auðvitað borðar maður bara það sem lagt er á borð. Og það verða andabringur í appelsínusósu á jólum, og eitthvað gegveigt...á áramótunum.
kv.Kristinn
Skrifa ummæli
<< Home