mánudagur, janúar 08, 2007


Nú hárið er liðið....

Það fer ljúft af stað nýja árið, og allir komir í gamla taktinn sinn, ég sit sveittur við námið enda prófin að hefjast svo það er ekki úr vegi að fara kaupa bækurnar...nei ég segi nú sonnna. Meistarinn er líka kominn á fullt en það hefur verið nóg að gera. Við höfum nú undanfarna daga verið að spreyta okkur á dönskum singstar lögum, já í pleisteisjón. Það er nefnilega þannig að út er komið danskt lagasafn með öllum hinum vinsælu smellum. Og nú er hamast með míkrafónin á lofti og sungið í hverri karíókí keppninni. Hér er undirritaður mjög liðtækur og hefur varla sungið feilnótu. Axel Orri er einnig orðinn nokkuð góður í rokklögum hinnar rómuðu sveitar TV2 (eða tívítú).

Hinsvegar bar nú svo við í gærkvöldi þegar keppnin stóð sem hæst að Meistarinn lagði til að skipt yrði um disk og önnur lög sungin. Það var gert og skoraði hún nú á söngstirnið Garðar Hólm (lesist Kristinn Krónprinz) á Hólm. Settumst við hjúinn í söngstellingar og sperrtum tóneyrun....átta sinnum...held ég allavega mjög oft...mátti ég syngja lagið með henni, því hún náði aldrei nokkurn tíma því scori sem ég náði....en þeir sem eiga singstar og lagið Faðer end Zon frá Katt Stívens, geta reynt með sér....skorið fór í 8.770...og alltaf vannég....æ ég þoli ekki hvað ég er hrikalega góður í þessu það er allveg óþolandi.....

Kristinn Singstar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter