Áramótaávarpið 2006
Þrjú ár uppá dag liðinn frá því að hingað var flutt. Munum ennþá eftir þeim ótrúlega degi. Við horfum til baka yfir þetta þriggja ára tímabil og erum virkilega ánægð og stolt yfir því sem við höfum náð að upplifa og uppskera á þeim tíma. Við höfum verið hér í hæðstu hæðum og upplifað djúpar niðursveiflur. En það er svo magnað hvað við búum yfir miklum krafti á raunarstundu, og komum sjálfum okkur stöðugt á óvart, það er svo magnað hversu langt maður getur náð þegar maður ætlar sér hlutina. Og þótt mótvindurinn sé sterkur og áhrifaríkur, verður það til þess að maður bítur á jaxlinn og verður ennþá einbeittari í því sem maður er að gera. Það sem hefur lærst á tímabilinu er að maður lætur ekki öðrum eftir að skapa sér sína eigin hamingju og framgöngu í lífinu, það verður maður sjálfur að berjast fyrir og sjá sjálfur um að gera og halda stefnunni.
Allir hafa skoðanir, og láta þær í ljós, þegar Meistarinn opnaði sína eigin stofu og sagði upp og hætti, fékk vinnuveitandinn áfall, “hvað á ég að gera, hvað verður um mig, hver á að sjá um reksturinn hjá mér þegar ég á frí ?” var spurt. Þegar við keyptum hús, sögðu nágrannarnir “nei en hræðilegt, ætlið þið að flytja, við sem héldum að þið mynduð alltaf vera hér með okkur” Það er langt síðan við höfum komist yfir það að láta aðra segja okkur hvað við viljum og gerum. Það sem við teljum okkur fyrir bestu hentar kannski ekki öllum, en lífið er okkar, ákvarðanirnar eru okkar, framtíðin er okkar. Gleðilegt Ár.
Kristinn Flugeldi.
4 Comments:
Hver er sinnar gæfu smiður. En maður gengur ekki einn í þessum heimi og þarf stundum að taka tillit til annara sem eru með manni á veginum.
Gleðilegt ár
Bakkasel 1
Gleðilegt ár!
Til lukku með "HÚSIÐ" ég vissi ekki að þið hefðuð verið að fjárfesta, gleymdist að blogga um það? Er eitthvað verið að vela fyrir dyggum lesendum????
Kveðja
DIDDA
P.S.
Ég ætlaði auðvitað að skrifa FELA en EKKI vela
GK
Bakkasel og Didda !
Sælt veri blessað fólkið...gæfu smiður, gæfu pípari eða málari...ég veit það ekki þetta er nú ofnotað held ég á stundum. En jú það er rétt, You never walk alone, segir í textanum....og maður á auðvitað að taka tillit (að takmörkuðu leyti).Húsið nei nei það var skrifað um það, en þú hefur hlaupið yfir þann pistil verið að drífa sig útúr húzi. Nei dyggir lezendur halda áfram að fá innlit í vort líf, en hef þó íhugað að takmarka aðgang á nýju ári..en það skýrist síðar. Og takk fyrir innlitin.
Kv.Kristinn
Skrifa ummæli
<< Home