Allir hressir.
Ég er langt kominn með pensinlínlyfin mín og er að skríða saman, Anna Marín fór í morgun til læknisins og fékk sér líka pensilínlyf, og Axel Orri jú einmitt hann kastaði upp milli sex og átta í morgun. Yfir sitthvora öxlina ýmist á föður sínum eða móður. Það eru því allir með hressasta móti hér í blíðunni. Það var víst einhver golfkeppni milli Íslands og Danmerkur en við misstum af því....boltaíþróttir eða golf þetta er allt svipað held ég.
Skólinn fer að byrja ekki bara hjá mér heldur Axel Orra líka. Við feðgar fórum í innritun skólans hanz í gær (móðirinn er með fyrirtæki) og ræddum við feðgar við verðandi kennara og fylgdarsveina drengsins inní framtíðina. Honum leist mjög vel á og er bara spenntur að komast í gang. Já það er nú ekki nema kannski 20 ár þangað til hann klárar skólann, litla skinnið svo það verður nú nóg við að vera næstu árin.....
Kristinn Hrezzi.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home