miðvikudagur, desember 03, 2008

Nýjann náttslopp.

Ég hef sett á óskalistann nýjann náttslopp, eftir að ég varð fyrir þvílíkum persónuárásum frá Meistaranum. Þannig var að eftir að ég kveikti á aðventukertinu og nokkrum friðarljósum í stofunni, skellti ég mér í Next náttsloppinn minn. Alþýðulegann, mjúkann og lítið notaðann náttslopp sem veitir yl á vetrarkvöldum. Í sömu andrá sæki ég áfengisflöskuna og hyggst bjóða Meistaranum lítið tár. En þar sem ég kem arkandi í náttsloppnum með brennivínsflöskuna í hendina. Missi ég útúr mér, já og með svona leikrænum tilburðum “Heyrðu elskann eigum við ekki að hella aðeins í okkkur” röddin minnti helst á rígfullorðinn róna. Og til að auka dramatíkina í leiknum baðaði ég út höndum og setti allsberann magann langt framm, útúndann sloppnum. Meistarinn horfði á mig og ég sá samstundis að þetta hvorki tendraði losta né funa. Hún gapti og horfði á mig og sagði “veistu það Kristinn, veistu þú minnir mig allvega sérstaklega á einn náunga núna” og viti menn....þannig er nú bara eftir langa sambúð þá huxar maður í takt. Og ég vissi samstundiz hvaða mann hún var að huxa um.....ég sagði “neiiii, neiiii þú getur ekki sagt þetta” Meistarinn hélt áfram og sagði “þú veist um hvern ég er að tala” Ég vissi innra með mér nákvæmlega hvaða samlíkingu henni hafði dottið í hug, án þess að drekka dropa. Ég vissi að núna var ég skyndilega dottinn inní þennan karakter sem við horfðum á í sjónvarpinu fyrir svo löngu síðann í samskonar náttslopp....karakter sem ég hélt að fyndist ekki lengur í minni manna og kvenna...en var nú skyndilega ljóslifandi í í stofunni heima hjá mér , í sama Next náttsloppnum með sömu brennivínsflöskuna..... Meistarinn hélt áfram...”Veistu þú ert nákvæmlega eins og Flugdólgurinn hér um árið”.... Skák & mát, aldrei nokkurn tímann skal ég klæða mig aftur í Next sloppinn, sem ég þó kunnni svo vel við. Nei, ef einhver vantar lítið notaðann Next náttslopp (einkennisbúning) til að gefa í jólagjöf getur sá hinn sami sent mér línur.

Kristinn Flugdólgur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter