þriðjudagur, október 21, 2008

Lítið svosem að frétta.

Jæja góðir hálsar er nokkkuð nýtt, tja það er nú vallla hægt að segja það. Hér gerist nánast ekki nokkur skapaður hlutur. Veðrið leikur við mann og haustið lætur aðeins vita af sér. Börnin í skólanum og Meistarinn kominn frá London úr "viðskiptaferðinni" sem gekk vel, fullt af nýjum hugmyndum. Annars jú í nótt var brotist inná stofuna hjá Meistaranum stolið þaðan helling af hárvörum og vélum, tjónið lítið brotin rúða og þokkalega gengið um og síðan já ákvað Bauhaus að segja upp öllum starfsmönnum sem tengjast Íslandi bæði í Danmörku og á Íslandi, svo nú er ég byrjaður að skrifa atvinnuumsóknir og leita að vinnu. Já er ekki lífið yndislegt það hreinlega leikur við mann.

Kristinn Atvinnulaus.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Vill til að þú ert vel giftur ;-)

Annars helv... fo... að svona fór. Gangi þér vel í atvinnuleitinni !!

Bestu kveðjur úr snjónum á Akureyri,
Andrea

6:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Andrea,
takk fyrir skrifið, já heldurr að það sé ástand. Meistarinn sér um sína það vantar nú ekki, og svo fær hún stuðning þegar hún hittir vinkonunar sínar næstu daga...án eiginmannsins...og það klædd eins og Diskó Ormur...jeminn eini.

kv.
Kristinn

10:43 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter