föstudagur, janúar 28, 2005

Helgarpistill - þolinmæði á þrotum....

"Herðu hjerna Christian, lofðu mér að sýna þér svolítið" þetta sagði danski samstarfsmaður minn í ostinum í dag. Já maður sem hefur unnið tímanna tvenna í ostinum. Þekkir hantakið, réttu tökin. Og hvað vildi hann sýna jú hann vildi sýna mér hvernig maður setur vantsslöngu uppá vegg. Og hann hélt áfram og sagði "Það er nefnilega þannig Christian, þegar maður sko vefur henni uppá keflið þá þarf að vinda svona ofanaf henni, þannig að þá verður ekki flækja...."
hvað getur maður sagt, ég sagði við hann bara upphátt "jáá jáaa akkurat maður gerir þetta sonna, sniðugt" og um leið vissi hann ekki að ég fyrirleit ráðleggingar hans, og áleit hann vera hálfvita....já afsakið orðbragðið. Maður segir ekki svona um annað fólk...nema það eigi það skilið....afsakið afsakið ég skammast mín. Maður á að sýna öðru fólki umburðarlyndi. Afsakið.

Annars hefur vikan verið viðburðarík, eftir ferð til Kaupmannahafnar datt púströrið í sundur á Ljóninu. Það segir nú meira en allt um lífið í Kaupmannahöfn. Jæja nema hvað. Ég fór í bílaumboðið Pussjó þar sem bíllinn var keyptur. Sagði við sölumanninn, "heyrðu bíllinn er æðislegur og allt gott um hann að segja, nema nú er svo komið að fjölskyldan getur ekki talað samann inní bílnum, og ástæðan pústið farið í sundur" hummmm sagði sölumaðurinn. Já athyglisvert. og til þess að halda honum við efnið sagði ég " já og það er nú ekki eins og við keyrum neitt að ráði, þetta púst ætti sko að vera í góðu lagi, við keyrum hér úr og í vinnu". "Heyrðu" sagði sölumaðurinn, snillngurinn orðrétt "já veistu pústið í sundur, það er ekkert skrýtið þú keyrir of lítið og pústið það er sko ekkert í ábyrgð það er nú bara þannig" ég spurði manninn hvort hann væri ekki að grínast, við keyrðum of LÍTIÐ. Og hugsaði bara hvort hann héldi að ég væri innflytjandi og allgjör vitleysingur. Sölumaðurinn sagði "ekkert mál láttu bara gera við þetta á verkstæðinu okkar og það getur vel verið að við borgum 30% á móti þér eða jafnvel helminginn,ég ætla sko ekkert að fullyrða um að við tökum ekki þátt í kostnaðinum, en púst það er sko ekkert í ábyrgð sko." "já já" sagði ég, ég skoða bara málið.. Fór heim hugsaði málið, kíkti á pappírana þegar ég keypti bílinn um allann þann fagurgala um ábyrgð umboðsins og ég veit ekki hvað og hvað.. Kom daginn eftir undirbúinn.

Og hvað þýðir það þegar Ritstjórinn fer undirbúinn á fund ? Þá þýðir það að hann lætur ekkert rugla í sér. Minn maður sagði við sölumaninn " það er óásættanlegt annað en þið takið á ykkur viðgerð og kostnað vegna þessa, þið auglýstuð þennan bíl í topp standi, annað hefur komið í ljós og ég sætti mig hvorki við 30% eða helming. ÞIÐ SJÁIÐ UM MÁLIÐ." Sölumaðurinn Runne, sagði þá " Heyrðu akkurat, við bara klárum dæmið, þetta kostar þig ekkert. Bíddu bara á meðan við lögum þetta. Pústið er sem nýtt undir Ljóninu, betri bíl hefur maður bara ekki átt.....en danskir sölumenn...þeir eru ekki að hugsa um neytandann....ónei....og étiði bara það sem úti frýs kaupandi góður.. Hversu langt komast þeir með að rugla í manni...já það er áskorunn dagsins hjá sölumanni Ljónsins. Kræsturinn.

Annars er maður svona bæði að átta sig á að Dagmar er kominn heim, og orðin árinu eldri þessi elska. Og síðan hitt að Kaupmannahafnar ævintýrið var skemmtilegt.. Fyrsta ferð okkar Önnu Marínar í danskan Metró...fór með bróður Dagmar og sambýlingi hans á veitingastað í stærsta skandinavíska mollinu Fields. En það var ásamt hálfsárs syni þeirra. Og þar varð ég vitni að sérkennilegu uppeldi. Faðirinn lét drenginn borða jalepínó þennan sterka, ógeðslega, skelfilega kryddrétt (drengurinn teygði sig í þetta af diski föður síns...óvænt). Drengurinn fölnaði í framann, og gretti sig ógurlega. Móðir hans tók til sinna ráð, óð með hendina uppí drenginn dróg útúr honum halípínóið....en pabbinn (fyrsta barn) "Hva, hva er ´ann með eitthvað uppí sér" tilsvörin minna helst á bróður hanz á sjálandi í Garðabæ...kræsturinn...ég sjálfur fékk áfallahjálp þegar heim var komið. Hver gefur sjö mánaða barni jalepino ? ? ? ? ...hvar er uppeldishandbókinn....jæja ég fæ mér einn sterkan og reyni að gleyma þessu...eða eins og Óliver sagði "Ég twista til að gleyma"


Kristinn Jalepínó Púst.








miðvikudagur, janúar 26, 2005

Afmælisgjöfin til Dagmar.

Já það fór nú í gang leit að afmælisgjöf fyrir skinnið og við sem heima sátum notuðum tíma og lögðumst yfir verkefnið. Komumst að niðurstöðu og keyptum sitt af hvoru tagi. það var nú þannig að íslandsferðin átti að vera afmælisgjöf. En það varð nú að koma lítill aukapakki, maður þekkir nú allt sitt heimafólk.

Þannig að húskarlinn fór í leiðangur og keypti bara nokkur sett af undirfatnaði fyrir konuna. Já svona í ýmsum litum. Það var ekki um neitt annað að ræða. Og litlu börnin, gáfu móður sinni svona "hyggu-fatnað" það er kvöldfatnað til að láta sér líða vel og sofa yfir sjónvarpinu. Á köldum vetrarkvöldum við kertaljós.

En húskarlinn bætti reyndar við einni gjöf og hún var í raun afhent í gærkvöldi eða þannig. Hún fékk nefnilega boð um að byrja í dansskóla á nýjan leik. jamm jamm...nú verður stígið á stokk í vetur. Og viti menn, það verður sko enginn Nonni Pétur og Kara dansskóli...obbobobbb ekki aldeilis. Gondales Rio heitir kallinn það er sko danskennarinn. Við fórum semsagt í okkar fyrsta danstíma í gærkvöldi. Og ekki urðu það gömlu dansarnir...neibb. Nú er maður bara búinn að hneppa niður skyrtunni...og buxunum....já eða þannig og við dönsum núna SALSA í hverri viku. Já það er von þú bara gapir. Salsa að hætti infæddra í Ríó dissa neró. Ég er þegar farin að leita að búning á Dagmar. Þó er líklegt að ég saumi hann sjálfur þetta er ekki svo flókinn saumaskapur.

Kristinn Ríó Dissaneró Salsa.

mánudagur, janúar 24, 2005

Menningarnótt í miðborg Kaupmannahafnar.

Föstudagurinn leið hratt eftir skóla og vinnu skunduðum við í fínpússningu og uppstillingu hér á heimilinu. Já stilla upp fyrir komu 50% fjölskyldumeðlima vora. Hér var tekið til svo spegla mátti sig í gluggum og gólfum. En fórum síðdegis til Kaupmannahafnar á Ljóninu. Hinsvegar komum við í Bílabúð Bjarna hér í Skanderborg og keyptum þjófavörn á stýrið. Já galvanizerað stálrör og tilheyrandi til að tefja glæpamenn Kaupmannahafnar við hugsanlegan stuld á Ljóninu. Keyrðum þetta á tveimur og hálfum tíma. Komum til Köben um sexleytið.

Fengum ljúfar móttökur hjá bróður Dagmar, Heimi og Írisi og Andra Marteini syni þeirra. Já föstudagur í næturborg Danmerkur. Um tíuleytið birtist síðan systir Írisar og sambýlingur hennar. En þau búa í Álaborg. Var nú bara spjallað og rætt um daginn og veginn.

Um tólfleytið var hinsvegar ákveðið að drengirnir færu í miðbæinn og litu á mannlífið. Anna Marín var í umsjá Írisar en ég fór ásamt þeim félögum í miðbæinn. Já það fór bara um mann fiðringur. Ár og dagar síðan síðast var litið á mannlífið. Var nú tekið eitt staup áður en farið var af stað, annað á leiðinni niður lyftuna, þriðja í miðbænum, fjórða á veitingastað, fimmta annarssatðar og síðan hætti ég að telja...ofaní Heimi bróðir Dagmar.

Copenhagen Jazzclubhouse. Einn virtasti Jazz staður borgarinnar. Þar skunduðum við inn og upplifðum sanna næturklúbbastemmingu Kaupmannahafnar. Já áttum góða stund þar framundir morgunn...svo að segja. Týndum síðan fljótlega okkar þriðja manni. Og eftir stóðum við, ég og Heimir. Rúmlega þrjú tókst mér að stela af Heimi, fatamiðanum, og ná í Ullarpelsinn hans í fatahengið. Og draga hann útaf staðnum. Fengum okkur pulsu og kók á Ráðhústorginu, ræddum um kosningarnar og hversu lífið væri ljúft. Röltum heim á leið. Og komum í íbúð þeirra Heimirs og Írisar ekki löngu síðar.....

Allt var hljótt og rótt. Andri Marteinn sonur hans sofandi, sambýliskonan og dóttir mín. Ég átti ásamt Önnu Marín að fá að gista í stofunni, en nú brá svo við að hún svaf í herbergi þeirra sambýlinga værum svefni. Neitaði nú Heimir að færa frænku sína um rúm, og sagðist hvergi sofa nema í sama rúmmi og ég í stofunni. Runnu nú á mig tvær grímur. Og ég fann hvernig ég andaði örar, og varð taugaveiklaður. Eins og yfir mig væri að hellast ólýsanleg örvænting. Hvað skyldi dóttir mín, sambýliskona hans og sonur halda, daginn eftir ? Tveir fullvaxta karlmenn í mjúkum rómatískum svefnsófa frá Ikea, saman tveir. "Nei, nei Hemmi litli" sagði ég..."viltu ekki bara sofa í þínu rúmmi kallinn". Hann hélt nú ekki. Og mátti ég sofa með þennan skeggbrodda, tattóveraða karlmann, mér við hlið heila nótt. Milli svefns og ótta um að hann gripi mig vaxtaræktar örmum og hvíslaði ástarorð í eyra mitt í stað sambýliskonunnar, vöktu ugg í brjósti.

Áfengisangann lagði um hvílustað oss. Og mér var órótt. Sofnaði þó fljótlega án þess að verða fyrir áreiti og vaknaði af værum blundi undir morgunn. Hann heldur því hinsvegar fram að ég hafi slegið sig létt í rassinn um miðnóttina og sagt "Mikið er gott að þú ert kominn Dagmar mín" en ég veit að það er lýgi...það er lýgi Heimir ég gerði það ekki.....

Núna svef ég áhyggjulaus umvafinn örmum minnar. Hún er kominn heim og sonur minn líka. Fjölskyldan er sameinuð á ný. Fleiri minningar frá Kaupmannahafn koma hér í vikunni.

Kristinn Svefnlaus í Sjálandi.

fimmtudagur, janúar 20, 2005

Styttist í komuna.

Bráðum koma þau heim, þetta er að verða ansi gott. Ekki það að tíminn hafi ekki liðið hratt. En lengsta útivist sambýliskonunnar er senn á enda, tvær vikur já jeminn eini. Maður hefði einhverntíma hér í firndinni notið einverunnar, en það er af sem áður var. Það verður fínt þegar þau koma bæði tvö heim.

Við Anna Marín fengum okkur hrísgrjón og kínverskt í dag. Hún alsæl og segir þessar tvær vikur hafa verið frábærar. Sem eru reyndar góð meðmæli með föður hennar myndi ég segja.

+Eg dreif mig yfir til formannsins. Fór og kvartaði við formann húsfélagsins hér í Rosenkjærvej. Sagðist vera búinn að fá mig fullsaddan af þessu bulli í húsverðinum um yfirvofandi lagfæringar. Málið er að viftan í eldhúsinu hefur verið óstarfhæf nú í nokkrun tíma. Og ekkert heyrist eða gerist. Ég sagði við formanninn að nú væri nóg komið. Þetta mál skyldi alla leið til leigendasamtaka Danmerkur ef með þyrfti. Hann var sammála. Málið er nefnilega að það hefur tekið uppí tvo mánuði að fá ýmsa hluti lagfærða hér hjá íbúum hverfisins. Við höfum nú reyndar vel sloppið við alla skapaða hluti. En þetta viftumál hefur tekið of langann tíma. Formaðurinn sagðist taka málið upp á stjórnarfundi en hann útskýrði líka fyrir mér hvernig ferillinn væri.

Þú kvartar við húsvörðinn. Húsvörðurinn hefur samaband við arkitektinn. (Húsin eru ennþá í ábyrð 2ár). Arkitektinn hefur samband við söluaðilaðann. Söluaðilinn hefur samband við viðgerðarmanninn. Viðgerðarmaðurinn hefur samband við íbúann og ákveður tíma. Málið er bara það að húsvörðurinn hefur þann hvimleiða kæk að safna upp málum á sínum borði og senda ekki lengra. Hann ku víst hafa verið staðinn aðþví nokkrum sinnum. Og nú er rætt um að skipta honum út.

En ég bíð eftir að viðgerðarmaðurinn hafi samband og lagi viftuna í eldhúsinu. Já þetta er skelfilegt fyrir kokkinn að hafa þetta ekki í lagi...þetta hefur sloppið undanfarið hjá mér, því það eru ekki svo margir í mat. En þetta verður að fara gera sig.

Kristinn Humar B. Lauksson.

miðvikudagur, janúar 19, 2005

Bowling, bólga og matarboð.

Feðginin fóru í bowling í dag. Dóttirin hefur rætt um það í nokkrar vikur að við yrðum að fara í keilu. Jú jú sagði faðir hennar. Og eftir það var í marga daga spurt, förum við í dag ? í kvöld ? á eftir ? Svo því var hátíðlega lofað að keiluferð yrði farin áður en móðir hennar kæmi heim. Ferðin var í dag og skemmtum við okkur konunglega. Þótt ekki vildu þær allar detta, keilurnar.

Eftir það fórum við í mat til Mortens og Marlene. Hann sagði mér að það væri ekki hægt að við værum að elda þarna alein öll kvöld. Fengum því þýskt kartöflusalat ofl. var prýðisgott. Dóttir hans Emma hafði stærðar mar á auganu svokallað glóðrauga. Vandamál Emmu, sem er eins og hálfsárs er að hún talar svona í hálfum setningum (hún er ekki búin að læra tala) Og því var það þegar pabbi hennar sótti hana til dagmömmunar, þá sagði barnið "slösuð, meiddi dagmamman" sem mátti túlka að dagmamman hefði séð rækilega um dagvist dagsins.

Þegar barnið sagði frá varð dagmamman miður sín yfir því að barnið héldi því fram að hún hefði verið slegin duglega í andlitið af sér...sem var ekki. Heldur datt hún af stól sem hún hafði prílað uppá.

Allt annars með kyrrum kjörum, er farinn að leita að þjófavörn í bílinn áður en við förum helgarferð til Kaupmannahafnar. Glæpatíðni gerist ekki hærri þar, svo það rétt að lesa tryggingarskilmálana og kanna kaskóið. Stefni á að kaupa stálstöng utanum stýrið sem tefur fyrir þjófunum. En þjófar eru líka menn.

Kristinn Friðþjófur.

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Kosningarbaráttan er hafin.

Það er ekkert minna, skyndilega hefur verið blásið til kosninga hér í Danmörku. Beinar útsendingar í hádeginu þvi forsætisráðherran boðaði til kosninga í ávarpi í dag klukkan eitt. Já mikil spenna í fjölmiðlum og víða. Og það er bara eins og maður sé að fara horfa á Áramótaskaupið...slík er eftirvæntingin hjá fræðingnum hér í Rosenkjærvej. Tímasetningin á kosningnum hentar líka ákaflega vel, áður en maður hellir sér útí námið. Þannig að nú gefst tækifæri til að kynna sér strauma og stefnur í hinu pólitíska umhverfi hér í Danmörku. Kosið verður 8.febrúar. Og fyrstu kappræðurnar voru í sjónvarpinu í kvöld. Minn maður Mogens Lykketoft mun örugglega verða forsætisráðherra. Enda er það öllum lýðnum kunnugt að ekki verður til betra samfélag nema kratarnir verði við völd. Ég tek því hvorki síma né tölvupóst næstu þrjár vikurnar. Góða baráttu....Dagmar þú getur samt komið heim ég tala við þig í auglýsingahléunum.


Kristinn Stjórnmálafræðingur.

laugardagur, janúar 15, 2005

Dagmar Ósk 35 ára.

Í dag 15.janúar er Dagmar 35 ára. Að því tilefni birtist
hér ræðan sem átti að flytja í afmælinu. En þar sem ég kemst ekki þá birtist
hún hér. Og Dagmar ég og Anna Marín komum EKKI óvænt til Íslands í tilefni dagsins, eins og ég hafði svo oft hugsað um að gera. Það plan byrjaði ég að hugsa um í október, aðeins í nóvember og undir það síðasta í desember. Það verður seinna.

En ræðan er svona:

Þessi frábæra stelpa er í dag 35 ára. "Það er gott að elska" segir einhversstaðar og því hef ég fengið að kynnast með henni. Við Dagmar höfum þekkst í mörg ár, já satt að segja fjölda mörg ár. Enda eigum við börn sem eru að verða 15 ára og það er ekki lítið. Og þótt við eigum nú þessi börn okkar saman, þá verður það víst að viðurkennast að lítið meir en ég á hún í þeim. Því þegar kemur að uppeldis og fræðslumálum til barna okkar eða bara einhverju sem snýr að börnunum okkar, þá er hún mér fremri á öllum sviðum. Utan kannski hrekkjana og grínsins- það á ég. Og það er bara þannig að mér finnst líka að allann okkar tíma þá hefur þessi snillingur minn, leyfi ég mér að segja haft stjórn á hlutunum, hlutunum okkar. Þó svo að maður sjálfur láti óspart ljós sitt skína og fari mikinn og segi margt þá hefur "límið" í þessu öllu saman verið hún. Það eru svo ótalmargir hlutir sem við hefðum í raun aldrei getað framkvæmt í sitthvoru lagi. En saman höfum fetað okkur áfram og náð góðum árangri.

Að búa saman með öðrum krefst mikils. Fórna hér og þar, umburðarlyndis núna, aftur og seinna. Stundum gefur á, ólík sjónarmið koma fram. "Tónninn" heyrist, látbragðið þekkt, fýlan, vonbrigði, bros, glott, gleði, fliss og hlátur. Stundum segjum við þegar ljóst er að eitthvað er öðruvísi en á að vera og einhverjum mislíkar...."hvað nú, maður þekkir nú allt sitt heimafólk". Og þá er talað útum hlutina, eða kannski þá tala ÉG mig útúm hlutinn og hún leiðréttir og hlustar. Síðan er glott, brosað, hlegið.

Við erum að eldast, Dagmar. Róast hugsa um hlutina á annan hátt en áður. Átta okkur betur á lífinu og til hvers er ætlast af okkur. Við erum þrátt fyrir allt í sigurliðinu. Þú og ég erum áfram sigurvegarnir sama hvað gerist.

Eins og þögnin getur verið þægileg, þá getur hún líka verið öskrandi. Anna Marín sagði við kvöldmatarborðið í gærkvöldi "pabbi,það er svo hljótt, það vantar þau"
Og það er satt við söknum ykkar Axels Orra óskaplega mikið og það vantar mikið. Við bíðum þess að við mætumst á ný. Öll ástarorðin og allt það væmnasta geymi ég fyrir koddahjalið þegar þú kemur aftur tíl mín.

Til hamingju með afmælið Dagmar Ósk þú ert..ert bara best.

Kristinn.

ps. Auglýsingin í Morgunblaðinu var svona rétt til að minna á okkur og minna á daginn með morgunkaffinu, við Anna Marín vonum að þér hafi ekki svelgst á kaffinu.

fimmtudagur, janúar 13, 2005

Einstaklingar sem eru á eftir.

Nú hefur maður í nokkrar vikur, já mánuði unnið svona íhlaupastörf í gegnum ráðningarstofu. Þetta hefur í alla staði verið fróðlegur tími. Ég hef unnið á nokkrum stöðum. Á þessum tíma hefur rifjast upp fyrir mér hvernig ég var. Já svolítið sérstakt. En ég hef einmitt á þessum tíma kynnst nokkrum dönum sem "virðast vera á eftir"en eru það kannski ekki ég veit þa ekki. Í einu fyrirtækinu sem ég hef unnið þá eru starfsmenn svona á góðum aldri. Þetta eru mest karlmenn. Þarna eru nokkrir sem eru svona 35 til 55 ára gamlir. En það kom í ljós að tja, þeir eru kannski ekki þroskaheftir eða vangefnir. Það væri nú allt saman fullmikið sagt. En áberandi og augljós þroskafrávik hrjá þessa einstaklinga. En hér er maður nú komin á hálan ís. Það væri helst að sálfræðingurinn og frænka mín Helga hjá Greiningarstöð Ríkisins gæti greint þessa aðila. En læt hér vaða greiningu stjórnmálafræðingsins.

Nú en í hverju birtist þessi þroskafrávik þessara dönsku starfsmanna. Jú það birtist í allskonar bölvi og ragni, öskrum, fussi, sífelldu tauti um langan vinnudag, fyrirlitningu á yfirmanninum og í því að hræðast hann oboslega um leið.

Þroskafrávik t.d. lagerstjórans sem verður 43 ára gamall í haust, kom skýrt í ljós þegar það vantaði límband á einn kassann..sko til að loka honum. (límbandið í vélmenninu sem límir kassana var búið). Þá sparkaði lagerstjórinn í rennihurðina og lyftarann og öskraði. Já svolítið sérstakt. Síðan bölvaði hann svo frussuðust útúr honum orðinn. Já mér stóð bara ekki á sama og var orðinn þó nokkuð skelkaður. Já um að maðurinn væri að missa vitið. Mér kom helst í hug að rétt væri að sækja fyrir lagerstjórann vöðva slakandi stíl. En hann róaðist, þangað til næst.

Þroskafrávik aðstoðar verkstjórans sem verður 37 ára gamall í mars. Það birtist eins og þau þroskafrávik sem ég hafði sjálfur þegar ég var 15 ára í fiskvinnslu á Bíldudal. Þá var nefnilega málið að bölva hraustlega yfir hverju því verki sem maður vann, og láta líta svo út fyrir að þetta væri allt svo hrikalega erfitt og bara mikla þetta allt fyrir sér og öllum öðrum. En maður kláraði síðan alltaf djobbið...nánast óþreyttur. Þetta er ákveðinn kúnst til að sjarmera fyrir yfirmönnunum. Þessi þroskafrávik mín uxu af mér þegar ég hætti að vinna í fiski. En aðstoðar verkstjórinn sem hleypur um á svona lyftarakerru og notar í raun sem hlaupahjól. Hefur þessi sama þroskafrávik og ég hafði.

Ég veit það ekki það er fátt sem ég get gert til aðstoða þessa menn. En það er næstum sama hvar maður kemur orðið að vinna. Allstaðar virðist vera fólk með þessa tilhneigingu á háu stigi.

Það er nú hinsvegar ekki hægt að segja að ég sjálfur hafi nein þroskafrávik um þessar mundir eða hafi heltekið mig og hrjái..hva, þótt maður lyfti sér nú stundum aðeins upp, fái sér í "tánna", með harmonikku, hárkollu og gervigóm. Það eru ekki þroskafrávik það er þroskandi.

Kristinn Rainmen.

ps. Afmælisvikan heldur áfram og styttist í stóra daginn hjá minni. Það er bara að hún "finni ekki stóra vinninginn" á Íslandi og neiti að koma aftur heim......

miðvikudagur, janúar 12, 2005

Afmælisvikan er hafin.

Dagmar litla verður með opið hús hjá móður sinni nk.laugardag. Og að hætti allra stórmenna er engum boðið en allir (sem þekkja 'ana) mega líta við milli klukkan 12 og 17. Og það ku vera dönsk smörrebrauð og tilbehör. Já vafalaust myndi það nú gleðja hana ef sem flestir litu við. Enda enginn smá dagur á ferðinni 35 ára afmælisdagurinn þann 15.janúar nk. Já fyrir fimm árum héldum við litla veislu í heimahverfinu og buðum ættingjum og vinum. Það verður minna um veisluhöld í ár allavega hvað varðar þátttöku mína að þessu sinni. Næsta veisla er ekki á áætlun fyrr en eftir fimm ár. En þá verður hún fertug eða fjörtíuáragömul, og þá munum við halda veizlu.

Við höfum hinsvegar ákveðið að samgleðjast henni hér á meginlandinu á hverjum degi fram að afmælinu. Þessvegna munum við Anna Marín halda þessa daga hátíðlega hér í Danmörku.

Við höfum þegar keypt fyrstu afmælisgjöfina fyrir hana en það er svokallaður "kílóa-tapari" já orðið er sérstakt en Anna Marín spurði mig einmitt, hvort ég hefði verið að kaupa svona "kílóa-tapara" ný-yrði ekki spurning. En kílóataparinn virkar líka svona rosalega vel. Þannig var að ég fékk bara svona líka heiftarlega í magann bara á því að keyra með kílóataparann heim úr búðinni. En hann var einmitt á tilboði í einum stórmarkaðinum hér. Og ég hef bara fundið núna þennan síðasta sólarhring hvernig þetta er að virka svona stórkostlega á mig.

Ég hef vitanlega prófað tækið sem verður hennar eign þegar hún kemur úr Íslandsferðinni. Kílóa-taparinn er nefnilega æfingabekkur svona til að gera maga-upp-réttingar. Já svona eins og í líkamsræktarstöðvunum. Maður bara leggst á bekkinn og finnur hvernig magavöðvarnir herpast saman. Það hefur verið nóg fyrir mig að horfa á tækið og þá finn ég bara hvernig það tekur í magavöðvana hjá mér. Góð fjárfesting og afmælisgjöf þar. Það stefnir í að húskarlinn verði komin hér með svokallaðann íþróttaálfs maga og kallaður six-pakk af þeim sem sjá. Ég hef líka ákveðið að fara í sund núna á næstunni til að sýna dönsku þjóðinni magavöðvana.


Kristinn Scheving.

mánudagur, janúar 10, 2005

Faðir og dóttir.

Hún og hann eru farin. Já þau eru flogin á braut. Eftir sitjum við hér tvö ein og vitum ekki hvort við eigum að hlæja eða gráta. Það er hljótt og tómt.
Og í hugann kemur ljóð:

Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)


En áfram veginn við göngum. Við vorum nú næstum búinn að missa af lest og flugi fyrir þeirra hönd Dagmar og Axels Orra. En sl. sunnudagsmorgunn klukkan 8 þegar við ætluðum í lestina. Já þá voru bara lestarsamgöngur Danmerkur ekki komnar í gang. Eftir óveður helgarinnar.

(innskot óveðrið var eins og mjög öflug vetrarlægð á íslandi...en það stoppaði nú ekki bróður hennar Dagmar sem varð að fara á útsölurnar í Kaupmannahöfn þá um daginn með nýfæddan son sinn, og var síðan stoppaður af öryggisverði Fields (mollið)..hvað ætlar þú út með barnavagn í þetta veður, hann hélt það nú...ath. fyrsta barn)

En aftur að lestarstöðinni, ekkert líf að sjá.. Neibb slett ikke... slökkt á öllum upplýsingaskjám og allt svart á lestarstöðinni. Fáeinar hræður á stangli. Ég sá hvar húsmóðirin svitnaði svo perlaði svona lítilega á nefinu á henni. Þarna komin í ferðafötin, með son minn og töskurnar á bakinu. Já nefið var nú orðið rautt og daggardropi eða "dagmar-dropi" rann niðrum nefið. Skyndilega náðum við sambandi við lestarstjórann í Kaupmannahöfn sem sagði "jú jú líklega kemur lestin örlítið of seint...en lestin kommer"

Við önduðum léttar, og ég sá hvað létti yfir húsmóðurinni. Við skunduðum því af stað á brautarpallinn og föðmuðumst í hinsta sinn. Hún og hann fóru, náðu flugi og áttu góða ferð til Íslands.

Við hinsvegar ég og dóttir mín sem nýtur þeirra forréttinda að sofa í hvílu móður sinnar....já nóttin var kostuleg....Ég svaf nátturulega ekki nokkurn skapaðan hlut, andvaka af söknuði vegna sambýlingsins, en við fyrstu vöknun mína klukkan 01 snörlaði í nefi dóttur minnar sem minnti í raun á hrotur móður hennar...klukkan 03 fannst mér sem óvenjulega mikið brakaði...en það var ekkert. En klukkan 03:57 þá vakna ég við það að dóttir mín segir og fyrir málhalta er þetta skrifað með framburði " Jeg rínga til dæ, jeg go nú í skúlen og ringa senere" eða Ég hringi til þín, ég fer núna í skólann og hringi seinna" þetta sagði dóttir mín upphátt á dönsku, í svefni og var augljósa að tala við einhverja vinkonu sína í bekknum.

Í eitt ár hefur mér ekki ennþá tekist að dreyma á dönsku, hvað þá að tala uppúr svefni á dönsku. En það gerði hún. Já það verður fróðlegt að fylgjast með næstu svefn-nóttum. Hvað hún lætur útúr sér þá, blessunin.

Dagmar er semsagt komin til landsins og áhugasamir geta slegið á þráðinn í gsm hennar í íslenska númerið.

Kristinn Páll (einn í heiminum)



ps. Commentin hafa vafist fyrir mörgum en einfalt er það eða fjögur músaklikk.
1. veldu "Comment" hér fyrir neðan
2. Klikkaðu síðan á "post a comment"
3. veldu síðan "Or post anonymously"
4. Síðan skrifar þú það sem þér dettur í hug og nafnið undir
5. Og klikkar síðan á "publish your comment"

fimmtudagur, janúar 06, 2005

Athugasemdir óskast.

Já nú hefur nýja útlitið tekið öll völd hér í dagbókinni. Og ég held að nú hafi
tekist að opna fyrir athugasemdir þínar lesandi góður við skrifin. Og það gæti bara orðið fróðlegt að "heyra hljóðið" sitt sýnist hverjum.

Nú skaltu prófa og senda hér litla athugasemd undir liðnum "comments" láttu þér ekki bregða það þarf ekkert lykilorð eða nokkurn skapaðan hlut. Bara skrá þetta inn sem óskráður notandi...það kemur hnappur aðeins neðar eftir að þú hefur klikkað á "comments"

So so...af stað sjáum hvort þetta virkar Jóhanna, Guðrún, Rósa, Helgi, Matti, Helga, Didda,mamma mía....allir af stað einn, tveir og þrír.

Kristinn Ritstjórinn.

miðvikudagur, janúar 05, 2005

Árið 2005 er byrjað.

Nú er maður að komast í gang. Og viti menn sama sagan og undanfarin áramót. Áramótaheitið, vinna minna, megrast meira, drekka minna, hætta reykja, aukin hreyfing. Allt þetta hef ég ákveðið að gera. Maður er nú rétt að komast í gegnum jólabækurnar. Og mikið er nú gott að leggjast yfir bók svona yfir hátíðarnar. Fékk sjálfur í jólagjöf ágæta bók eftir Þráinn, "Dauðans Óvissi tími". Já spennubók, skáldsaga sem fléttaði saman raunveruleika og skáldskap. Fjallaði að mér fannst um gamla vinnuveitandann minn, fyrrum fangann Björgúlf. Já sagan er æsispennandi, svo spennandi að ég fékk matröð á annan í jólum eftir lestur bókarinnar. Já blóðugar sögur um glæpalýð í Reykjavíkur. Blóðug jólagjöf þar á ferð...hríðskjálfandi í nóttinni hrökk ég upp og taldi víst að ég væri orðinn þáttakandi í einhverju óhæfuverki. En eftir flóaða mjólk, svitabað og skipunartón sambýliskonunar..."hættu þessu snökkti maður" þá jafnaði ég mig. Takk fyrir gjöfina mamma....nei ég segi svona. En jú ég fékk gjöfina frá henni og föður mínum. Ekki meira um það.

Ég er þessa dagana orðinn eitthvað svo einmana, eitthvað svo meyr. Það er eins og eitthvað sé að deyja inní mér. Ég veit ekki hvað það er. (en það er ekki að mér sé illt í maganum) En finnst eins og konan ætli að yfirgefa mig. Ég hef margoft boðið henni að hætta við íslands-ferðina en hún hefur því hafnað. Ég veit ekki hvað það er..en það er eitthvað. Mér finnst jafnvel ég þurfa að fara inná klósett í tíma og ótíma þarna í ostinum og skæla inní mig eins og sagt er. Já hvernig sem allt fer á hún pantað far til baka....og ég vona, ég bara vona að hún komi aftur.

Kristinn alltaf einn.


Counters
Web Site Counter