Faðir og dóttir.
Hún og hann eru farin. Já þau eru flogin á braut. Eftir sitjum við hér tvö ein og vitum ekki hvort við eigum að hlæja eða gráta. Það er hljótt og tómt.
Og í hugann kemur ljóð:
Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson)
En áfram veginn við göngum. Við vorum nú næstum búinn að missa af lest og flugi fyrir þeirra hönd Dagmar og Axels Orra. En sl. sunnudagsmorgunn klukkan 8 þegar við ætluðum í lestina. Já þá voru bara lestarsamgöngur Danmerkur ekki komnar í gang. Eftir óveður helgarinnar.
(innskot óveðrið var eins og mjög öflug vetrarlægð á íslandi...en það stoppaði nú ekki bróður hennar Dagmar sem varð að fara á útsölurnar í Kaupmannahöfn þá um daginn með nýfæddan son sinn, og var síðan stoppaður af öryggisverði Fields (mollið)..hvað ætlar þú út með barnavagn í þetta veður, hann hélt það nú...ath. fyrsta barn)
En aftur að lestarstöðinni, ekkert líf að sjá.. Neibb slett ikke... slökkt á öllum upplýsingaskjám og allt svart á lestarstöðinni. Fáeinar hræður á stangli. Ég sá hvar húsmóðirin svitnaði svo perlaði svona lítilega á nefinu á henni. Þarna komin í ferðafötin, með son minn og töskurnar á bakinu. Já nefið var nú orðið rautt og daggardropi eða "dagmar-dropi" rann niðrum nefið. Skyndilega náðum við sambandi við lestarstjórann í Kaupmannahöfn sem sagði "jú jú líklega kemur lestin örlítið of seint...en lestin kommer"
Við önduðum léttar, og ég sá hvað létti yfir húsmóðurinni. Við skunduðum því af stað á brautarpallinn og föðmuðumst í hinsta sinn. Hún og hann fóru, náðu flugi og áttu góða ferð til Íslands.
Við hinsvegar ég og dóttir mín sem nýtur þeirra forréttinda að sofa í hvílu móður sinnar....já nóttin var kostuleg....Ég svaf nátturulega ekki nokkurn skapaðan hlut, andvaka af söknuði vegna sambýlingsins, en við fyrstu vöknun mína klukkan 01 snörlaði í nefi dóttur minnar sem minnti í raun á hrotur móður hennar...klukkan 03 fannst mér sem óvenjulega mikið brakaði...en það var ekkert. En klukkan 03:57 þá vakna ég við það að dóttir mín segir og fyrir málhalta er þetta skrifað með framburði " Jeg rínga til dæ, jeg go nú í skúlen og ringa senere" eða Ég hringi til þín, ég fer núna í skólann og hringi seinna" þetta sagði dóttir mín upphátt á dönsku, í svefni og var augljósa að tala við einhverja vinkonu sína í bekknum.
Í eitt ár hefur mér ekki ennþá tekist að dreyma á dönsku, hvað þá að tala uppúr svefni á dönsku. En það gerði hún. Já það verður fróðlegt að fylgjast með næstu svefn-nóttum. Hvað hún lætur útúr sér þá, blessunin.
Dagmar er semsagt komin til landsins og áhugasamir geta slegið á þráðinn í gsm hennar í íslenska númerið.
Kristinn Páll (einn í heiminum)
ps. Commentin hafa vafist fyrir mörgum en einfalt er það eða fjögur músaklikk.
1. veldu "Comment" hér fyrir neðan
2. Klikkaðu síðan á "post a comment"
3. veldu síðan "Or post anonymously"
4. Síðan skrifar þú það sem þér dettur í hug og nafnið undir
5. Og klikkar síðan á "publish your comment"

2 Comments:
Kallt er konulausum
kjökrandi umkomulaus,
hertu upp hugan, farðu í hreina sokka
og vaskaðu upp.(óhreinu sokkarnir fara í þvottavélina )
Mér finnst þú vera meira en lítið,
meir en lítið skrítinn fýr.
Mér finnst það vera dáldið skrítið,
það sem innra með þér býr.
Þú gætir deilt með öðrum gleði,
gefið sjans allt öðru en þér,
og hætt að vera þessi sleði
sem enginn nennir að draga á eftir sér :-)
Kv.
Agli Ó.
Skrifa ummæli
<< Home