Í röngu landi.
Það hvarflaði að mér í vikunni að við hefðum gert hrapaleg mistök, já bara heljarins mistök með flutningi til Danmerkur. Það er nefnilega alltaf að koma betur og betur í ljós í samtölum við innfædda. Þeir vita td. ekki hvar Ísland er, eða að við höfum forseta hann Ólaf okkar. Eða þá að kona hafi verið forseti og ég veit ekki hvað og hvað...og það sem fékk mig til að staldra nátturlega við var pistill sem ég las á netinu tekin af Deiglunni.com, þar segir nefnilega pistlahöfundur (þótt mér sé afar illa við að vitna í aðrar hér í pistlunum mínum):
"...Ísland er sjaldnast tekið með í reikninginn og síst af öllu í alþjóðlegum samanburði eða þegar umræðan snýst um Norðurlönd. Þá eru það Svíþjóð og Noregur (og stundum Finnland). Við erum sett á sama bás og Færeyingar og Grænlendingar, kannski skör hærra"
Þetta er nú bara málið. Já dapurlegt en svona hefur þetta nefnilega svo lengi verið. Og mér hefur t.d. ekki tekist að breyta því hér. Enda hlógu nú bara fulltrúar dönsku þjóðkirkjunnar þegar við reyndum að fá okkar nöfn færða í kirkjubækurnar. "Usss...hvaða pappír er þetta..." þegar ég kom með skírnarvottorð allra í fjölskyldunni á löggiltum pappír frá Hagstofu Íslands. "Farðu burt með þetta, uss þetta samþykkjum við ekki" sögðu kirkjunnar menn. Við erum því enn óskráð í kirkjubækurnar hér. Okkur var reyndar bent á af íslenskum stjórnvöldum að kæra þetta, þetta væri ótækt og væri kunnáttuleysi danskra embættismanna....en hvað, maður hefur nú ýmislegt annað að gera en eltast við það...
Svo segir þarna á netinu líka:
"Sá misskilningur virðist einnig ríkja á Íslandi að Íslendingar kunni dönsku eftir þessi sex eða sjö ár sem fara í það læra málið. Því er fjarri. Einhvern veginn virðist framburðarkennsla og talskilningur fara fyrir ofan garð og neðan í íslenskum skólum. Danska er sérlega erfitt tungumál að bera fram. Það er alkunna að Danir virðast gleypa annað hvert orð og oft þegar manni heyrast þeir segja eitt orð voru þeir í raun að bera fram fjögur. Með öðrum orðum ef danskan á að vera nýtanleg á fleiri stöðum en búðunum á Strikinu þarf aðeins meira til en íslenska dönskutíma og eina viku í Danmörku."
Þetta þekkjum við enda fórum við í stórmarkaðinn hér fyrstu þrjá mánuðina og sögðum
"Í hvaða frysti hafið þið, hérna kettlingana ?" Framburður á dönsku er lítílsháttar frábrugðin, þegar maður talar um kettlingana eða kjúklingana. Búðarmaðurinn skildi ekki mikið hvað okkur vantaði. En það sást augljóslega á þeim skelfingarsvip sem hann sýndi þegar við spurðum að það var eitthvað bogið við spurninguna.
Já það er einmitt það, og afhverju að læra tungumál sem aðeins fimm milljónir manna tala. Það er nátturlega sérkennilegt ekki satt. Nei maður hefði með réttu átt að flytja til Þýskalands þar sem tja hvað 80 milljónir manna búa. Svo ekki sé nú talað um Japan, Taiwan og Ástralíu sem ég sendi bækurnar í gær.
Já það færi nú aldrei svo að maður flytti sig um set...því við hvern á maður að tala dönsku eftir veruna hér...kannski bara bróður hennar Dagmar frá Kaupmannahöfn...en það er nú alþekkt að sletturnar og málýskan þar er nú ekki sú fegursta..ussss sveiattann...
Kristinn Þýski.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home