Lifað með "rilla"
Þessa dagana er sonur okkar afar upptekinn af þessum litla dindli sem hann hefur á milli stóra tánna á sér. Já það er næstum að foreldrar hans roðni þegar þarf að síða drenginn vegna þessara iðju, þessarar rannsóknariðju. En sá sem er þriggja ára finnst vitanlega ekkert óeðlilegt og í raun sjálfgefið að uppgötva sjálfan sig svolítið...uppávið.
Sonur okkar sat hér með allri fjölskyldunni við sjónvarpið eitt kvöldið í vikunni, þar sátum við foreldrarnir og systir hans í hinum ægi mjúkja leizí boji sófanum okkar. Drengurinn situr á milli okkar og horfir á sjónvarpið. Þegar skemmtiþáttur kvöldsins í sjónvarpinu stöðvaðist og auglýsingarnar birtust sagði Axel Orri "Sérrðu, sérðu hann er stór" Drengurinn hafði þá verið aðeins verið að klóra sér í "rillanum" og fengið náttúruleg viðbrögð.....
(já það er nátturulega gott og bara yndislegt að þetta virkar allt hjá drengnum það er vissulega mikilvægt) En það sem verra er, hann vill nánast ekki hætt að skoða þetta. Hann hefur meira að segja gengið svo langt að bjóða föður sínum í svolítinn, eða á ég að segja Örlítinn samanburð.
Við biðjum til guðs að þetta gangi nú fljótlega yfir, lempist og hjaðni þessi ástríða drengsins að uppgötva sig...og þetta taki sig ekki upp að nýju fyrr en í fyrsta lagi eftir 20 ár.
Kristinn niðurlútur og lafandi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home