mánudagur, nóvember 08, 2004

Axel Orri – dönsk gubbupest.

Fyrir skömmu síðan kvartaði Axel Orri undan því að hann þyrfti að “gubba” svo notað sé hans orðalag. Móðir hans sem var að fara útúr dyrunum með hann á leikskólann. Snarstoppaði og fór með hann inná bað. Hann var eitthvað slappelsislegur og því ákvað mamma hans að vera heima með hann. Hann var virtist síðan þennan dag bara vera sá hressasti og lék sér og skemmti sér með mömmu sinni. Hann borðaði vel og virtist sáttur. Leið nú dagurinn og nóttin og svaf hann vel.

Næsti dagur, allir á fætur og Axel Orri líka. Mamma hans klár til að fara útúr dyrunum með drenginn. Þar sem þau standa við útidyrahurðinna, segir Axel Orri “Ég held ég þurfi að gubba”. Inná bað þegar í stað. Og drengurinn látinn standa við klósettið, ekkert kom. Enn var beðið en ekkert kom. Mamma hans sagði síðan við hann hvort hann gæti ekki. “Nei ekki núna” sagði hann. Nú þá sagði mamma hans við hann “Viltu ekki bara bíða með að gubba þangað til að þú ert búinn á leikskólanum í dag ? “ “jú, jú ég geri það bara, gubba þegar ég kem heim” sagði hann.
Hann fór því á leikskólann, lék á alls oddi og var hinn hressasti. Og aldrei kom gubbið.

Kristinn meðónot.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter