Skógarferð og uppköst.
Já helgin var viðburðarík eða svoleiðis. Haustvindarnir eru farnir að blása og inná milli kemur stilla með sól og varma. Já það er ómögulegt að vita hvernig maður á að vera klæddur, þessa dagana. Laugardagur, Dagmar að vinna til hádegis og rúmlega það. Tók að sér verkefni annarra...og varð því lengur fyrir vikið. Ég að sinna blessuðum börnunum á góðum laugardegi. Og í hádeginu fann til brauð og meðlæti. Anna Marín ákvað að kynna fyrir okkur feðgum danska uppskrift af brauði. Það er semsagt samloka með remúlaði og lauk, vantar ekkert nema Roastbífið. Nema hvað þetta borðuðum við með bestu lyst og þótti gott. Axel Orri fékk sér stóra sneið og ég líka. Nú síðan kom Dagmar heim um hálf tvö. Anna Marín út að leika sér og við hjúin í bíltúr með drenginn. Fórum í rúnt hér um sveitina að skoða haustið.
Þegar við rétt erum búin að keyra í átta og hálfa mínútu. Sér móðir drengsins hvar hann hóstar undarlega og svona "ranghvolfir" augunum...eða þannig. Og fyrr en varði kom útúr honum remúlaði hádegsins með öllu tilheyrandi. Já spennandi var það. Ég nelgdi niður Ljóninu. Og við snöruðumst út eins og víkingasveitin eða Derrik og Harrý Klæn. Þvílíkur var hraðinn útúm hurðina. Ég reif drenginn úr stólnum sem nú minnti helst á eina með öllu og með MIKLU remúlaði.....hann hélt síðan áfram einu frussi í viðbót. En hætti svo.
Þarna stóðum við á miðri götunni, Ljónið með öskrandi Hazardinn á, og við að þrífa drenginn og bílinn. Þó aðalega stólinn hans. Það mesta náðist úr. En hann varð að fara úr buxum og peysu, og skónum.... Fórum við nú heim eftir þennan fína remúlaði bíltúr og vorum við heima það sem eftir lifði dags... Axel Orri lét eins og ekkert hafði gerst, fékk sér kex og mjólk þegar heim var komið. Alsæll og kannaðist ekki við neitt. Jú reyndar hafði verið illt í maganum en taldi það ekki skipta máli lengur...þegar hann fékk kexið.
Á miðnætti breytti Evrópa um tíma og hefur maður nú nálgast tímann að nýjum leik á Íslandi. Er nú aðeins eins tíma munur í stað tveggja áður. Sem við erum þá á undan.
Sunnudagurinn fór fjölskyldan í bíltúr um skóganna hér í kring og skoðuðum við haustið. Já ótrúlegir litirnir í trjánum. Þetta reyndum við allt að festa á filmu og videó. Og er þess að vænta að við sýnum eitthvað af þessu fljótlega á síðunni okkar. En sól og sumaryl á síðbúnum sumardegi á sunnudegi.
Kristinn Remúlaði.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home