laugardagur, október 09, 2004

Afi Helgi Jónsson sextugur.


Einn traustasti lesandi dagbókarinnar fagnar sextugsafmæli sínu í dag og sendir ritstjórinn honum sérstakar afmæliskveðjur í tilefni dagsins. Sömuleiðis gera það Anna Marín og Axel Orri, sem óska afa sínum til hamingju með afmælið.

Partur úr ræðu minni í tilefni dagsins hefði verið á þessa leið ef þú hefðir haldið veislu...en það var nú ekki núna.....

Tíminn líður trúðu mér... segir einhversstaðar, í yfir áratug hef ég þekkt afmælismann dagsins. Kannaðist vitanlega við hann bara fyrsta árið sem ég tengdist fjölskyldunni en kynntist honum betur síðar eftir því sem á leið. Þau kynni hafa í gegnum árin verið afar vinsamleg og skemmtileg. Og svo ég vitni nú bara í hana ömmu mína sem sagði á okkar fyrstu sambúðar árum okkar Dagmar. "Já svo er það pabbi hennar, hann er bara svo ljúfur og elskulegur maður" og það er nákvæmlega þannig sem hann alltaf hefur verið.......

Auðvitað hefðum við viljað koma í kaffi og kleinur en það verður ekki að þessu sinni. Einkum vegna þess að þú situr sjálfur á ermalausum bol í hita og sól, með afmælisköku í annarri og kaldann í hinni. Við erum með þér í anda og drekkum þína skál.

Til hamingju,

Kristinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter