Árshátíð hjá Bífó - seinni hluti.
Fegurð sambýliskonunnar sigldi frammúr minni eigin fegurð. Við kvöldverðarborðið sem hófst ekki löngu eftir að við komum úr keilunni. Þá fórum við í miðlungsdressið okkar. Gættum þess að vera ekki "yfir-klædd". Við höfðum aflað okkur upplýsinga um að þetta minnti svona frekar á fimmtugsafmæli frekar en árshátíð. Fatnaðurin væri því svona frekar í samræmi við það. Nú við fengum einhverskonar berjasafa fordrykk. Já hann var ekki góður. Síðan var komið að hinum frumlega leik að draga spil. Til að finna útúr því hjá hverjum maður átti að sitja. Ég dróg spil og átti að sitja með samstarfskonu úr minni deild. Betra gat það ekki verið fyrir mig. En Dagmar dróg spil þar sem hún átti að sitja með eldri herramannni. Jú jú eiginmanni einnar konunnar sem vinnur í framleiðsludeildinni hjá Bíffó.
Og hér kemur innskot: á árshátíðinni í fyrra hafði herra Jens borðfélagi Dagmar í ár. Jú því miður ekki náð í forréttinn. Í rútinni hafði verið boðnir drykkir og síðan seinna um daginn. Þegar kom að forréttinum var Hr. Jens aðframkominn að þreytu....nei annars hann var Dauður.
Studdur var hann uppá herbergi, því þangað komst hann ekki hjálparlaust. Herra Jens hafði hinsvegar lært af þessari reynslu sinni því í ár, fór hann Aðeins hægar í sakirnar.
Nú Dagmar og Herra Jens gengu til borðs og ég með minni nýju borðdömu. Viti menn, spilið sem ég dróg hafði verið klippt í tvennt, borðfélaginn minn hafði sitt heila spil og átti að elta mig. En við borðið þar sem við síðan áttum að sitja var helmingur spilsins sem ég hafði fengið og þar áttum við að sitja. Ég settist og nú var spenningurinn hver skyldi nú sitja með manni til borðs. Birtist nú ekki Herra Jens og Dagmar. Dagmar hafði því dregið sæti við hliðinu á mínu og sátum við því hlið við hlið allt kvöldið. Já við erum bara svo hrikalega samrýmd.
Herra Jens og frú hans sat reyndar ekki langt frá því hún sat ská á móti honum til borðs með okkur. Frú Jens sat bara beint á móti mér. Hún hafði þann skemmtilega sið allan tímann sem við borðuðum að kalla til Herra Jens. "Jens, drekktu ekki svona mikið" eða "Jens kláraðu nú þennan rétt, það er ekkert að þessu" og síðan "Jens ætlar þú ekki að klára hvítvínið". Svona gekk þetta fyrsta klukkutímann. Þegar hinn vondi eftirréttur kom á borðið sagði Frú Jens. "Jens minn, vertu nú duglegur að borða, þú mátt síðan bara fá réttinn minn" en þá svaraði Jens "nei nei, ÞÚ mátt fá minn rétt og láttu mig svo í friði "
Herra Jens var nú orðin æði þreyttur á þessu og reyndi að ræða við Dagmar. Hann sagði við Dagmar "Hvað ert þú nú eiginlega gömul ?" Ekki veit ég hvað Jens hafði í huga en Dagmar svaraði (veit reyndar ekki hverju) og missti Jens allgjörlega andlitið og þegar hún sagði honum að hún ætti 10 ára gamalt barn sagði Jens "Hvernig farið þið aðþví að halda ykkur svona unglegum þarna á Íslandi ?" og áður en Dagmar gat svarað því sagði Herra Jens við konuna sína sem sat ská á móti.
"Heyrðu góða mín, hættu nú að gala þetta á mig, ég ætla að bjóða þér í ferð til Íslands, þar sem þú yngist örugglega upp. Ég borga uppihald fyrir þig í fjögur ár og passa hundinn á meðan, þú bara drífur þig af stað" Þetta þótti öllum við borðið ótrúlega skondin framsetning en ekki henni......
Stígin var dans við hljómsveit Geirmundar á þessum stað. Kristinn Litli fann hinsvegar út eftir að hafa leitað ráða hjá heimamönnum, hvar næturklúbba staðarins var að finna. Þangað drógum við Morten og frú en það var stutt. Herra Morten hafði fengið sér heldur mikið Feðöl (öl í krana) þetta kvöldið og var því vart viðræðuhæfur. Við fórum því fljótlega útaf klúbbnum og fylgdum þeim heim. Þegar við hótel dyrnar var komið, var farið að þykkna í Frú Morten sem þótti hinn nýbakaði eiginmaður hafa fengið sér fullmikið neðan í því. Dagmar sagði reynslusögu af sér og sagði þetta vera verst fyrstu sjö árin síðan myndi þetta skána. Hvað hún átti við hef ég ekki skilið og mun ekki setja mig inní.
K0mum heim með svipaðri rútu og við lögðum af stað með. En eitt verð ég að nefna. Aldrei nokkurn tíman höfum við bæði tvö reykt eins margar sígarettur, án þess að setja þær nokkurn tímann í munnin....aðrar eins reykingar höfum við aldrei upplifað. Við vorum reykt í Hel þennan sólarhring sem við tókum þátt í Árshátíð Bífó. Þar voru danir á heimavelli. Þvílíkt og annað eins...nei því munum við seint gleyma.
Kristinn Reykur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home