mánudagur, október 04, 2004

Sáþern komfort.

Nú er sá tími kominn að maður fær sér Southern Comfort svona á síðkvöldum. Já hér hefur kvefið tekið öll völd hjá heimilisfólkinu. Ég sjálfur orðinn æði nefmæltur, úr drengnum lekur stöðugt, móðir hans hnerrarndi og frussandi hér yfir allt og alla. Anna Marín svona tiltölulega sloppið því það er svo mikið hjá henni að gera. Axel Orra gekk vel í dag á öðrum degi leikskólans en það er nú betra að fagna ekki of snemma.

Senn líður aðþví að maður hugsar um dekkjakaup, hér verða þó ekki brúkaðir naglar því það telja menn óþarfa. Svo vetrardekk án nagla verða því ofaná. Er að bíða tilboða frá dekkjasölum bæjarins. Öðru leyti allt við það sama tók hjólið framm í morgunn, um var sestur á það um hálf sjö í svörtu myrkri og grenjandi rigningu. Já það er ekkert sem heitir, hún verður nú að fá bílinn litla skinnið, sambýliskonan. En hvað gerðist sef með hitateppi og Sáþern.

Kristinn Klaki.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter